---
language: "is"
---
# Stafrænt Pósthólf

## Stafrænt Pósthólf

Stafrænt Island.is Tengilinn fyrir Business Central er viðbót fyrir Business Central. Kerfið leyfir líka umsýslu fyrir önnur kerfi enn Business Central sem geta...

### Skjöl

*

  #### [Handbók vegna Stafrænt Ísland](https://docs.wise.is/ss/handbok-vegna-stafrnt-island.md)

  * [Business Central 14](https://docs.wise.is/ss/business-central-14.md)
  * [Business Central í SaaS](https://docs.wise.is/ss/business-central-i-saas.md)
  * [SharePoint / Power Platform](https://docs.wise.is/ss/sharepoint-power-platform.md)

---
language: "is"
---
# Business Central 14

Þessi kafla af handbókinni snýst um stuðning við Business Central 14.

Kerfið sér um að mynda **Sölureikninga með viðhengjum** , **Sölukreditreikningar með viðhengjum** , **Launaseðla** , **Greiðsluseðla** og senda þá yfir í Stafræna miðju Wise.

Gögn eru send yfir í Stafræna miðju Wise og eru gögnin annað hvort geymd í hýsingu hjá Wise eða í Azure, AWS og Google kerfum viðskiptavinar eftir stillingum. Uppitími og uppfærslu í Business Central hafa ekki áhrif á birtingu í stafrænu pósthólfi, þar sem eftir myndingu gagna er ekki kallað aftur í Business Central.

---
language: "is"
---
# Business Central í SaaS

Sveitarstjóri fyrir SaaS útgáfu Business Central er áætlaður í útgáfu bráðlega og verða þá upplýsingar hér uppfærðar.

Frekari upplýsingar má nálgast hér → [Yfirlit - Centara Support Documentation](https://docs.centara.com/eMailbox/)

---
language: "is"
---
# Handbók vegna Stafrænt Ísland

**Stafrænt** [**Ísland.is**](http://xn--sland-ysa.is/)**Tengilinn fyrir Business Central er viðbót fyrir Business Central. Kerfið leyfir líka umsýslu fyrir önnur kerfi enn Business Central sem geta API samskipti, svo sem PowerPlatform ( Sharepoint, Workpoint og fleiri kerfi ). Viðbótin virkar bæði fyrir Business Central 14 og Business Central í skýinu.**

Wise gefur út handbók fyrir öll þau sérkerfi sem fyrirtækið hefur þróað. Handbækurnar taka fyrir virkni kerfanna og er því ekki um kennslubók að ræða. Farið er í gegnum aðalvalmynd kerfisins þar sem útskýrt er hvaða upplýsingar þar eru geymdar og hvaða virkni er í boði hverju sinni.

---
language: "is"
---
# Senda launaseðil í heimabanka

Launakerfi Wise er tengt við Stafræna Miðju Wise. Farið er í **Launakerfi** → **Ferill** → Afgreidd Laun → **Senda launaseðil í heimabanka**

![CleanShot 2024-09-02 at 16.11.46@2x-20240902-161244.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_cd0ad37f74ea878c9c90b34ee97bcdb92a70d3fbd4880a41a6b9cd085c30b8ef/CleanShot%202024-09-02%20at%2016.11.46@2x-20240902-161244.png?cb=ca60ad125a3cd9299990bd90a9fc4cd7)

Við það að smella á þennan valmöguleika, kemur upp glugginn til að afhenda launaseðla bæði í heimabanka eða önnur kerfið. Þar er hakað við "Senda til [Íslands.is](http://xn--slands-2va.is/)" og þá afhendast launaseðlar í Stafrænt Pósthólf. Þegar búið er að fara yfir útborgun og renna yfir þá er smellt á **Í lagi** og launaseðlar afhendast

![CleanShot 2024-09-02 at 16.13.15@2x-20240902-161338.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_33686e548c67717618548f7c749a22298e76d26c753cca44bfb1e8c22ef24ac0/CleanShot%202024-09-02%20at%2016.13.15@2x-20240902-161338.png?cb=b0511f25877af38a77053fd129836e82)

## Sjálfgefnar stillingar

Til að sjálfgefin stilling í kerfinu er að senda launaseðla í Stafrænt Pósthólf. Þá er farið í **Launakerfi** → **Uppsetning → Stjórnun → Stofngögn**

Undir fellimyndinni **Rafræn samskipti** er fundið **Senda til** [**Ísland.is**](http://xn--sland-ysa.is/) og hakað er í þann möguleika.

---
language: "is"
---
# Senda reikninga \& greiðsluseðla

## Hvernig skal senda skjöl til Stafrænt Pósthólf

Í Uppsetningunni er valið hvaða skjöl skal senda sjálfkrafa til Stafrænt Pósthólfs. Þegar skjal er bókað eru gögnin send yfir til Stafrænt Pósthólfs.

Það þýðir að þegar skjal er bókað, sendi skjalið sjálfkrafa yfir til Stafrænt Pósthólfs [Island.is](http://island.is/). Möguleiki er að senda fleiri gögn yfir til Stafrænt Pósthólf heldur enn eingöngu gögnin sem eru nefnd í Uppsetningu og má vera í sambandi við Wise vegna þess.

## Senda eldri reikninga eða greiðsluseðla

Ef eldri reikningar eiga að fara til Stafrænt Pósthólfs, þá er hægt að senda þau gögn eftir á. Farið er í listann af sölureikningum.

Reikningar eru valdir í lista ( möguleiki er að velja marga ) og smellt á Aðgerðina **Send to Wise Courier**. Athugið að þar sem þetta er þung vinnsla þá tekur Business Central tekið smá stund við það að framkvæma aðgerðina. Ef það er verið að senda mörg hundruð reikninga þá getur verið sniðugt að velja bara nokkra reikninga til sendinga ( 100-200 stykki ) og senda þá í hólfum.

Ef reikningur er sendur tvisvar, þá finnur kerfið það og sendir hann ekki aftur til Stafrænt Pósthólfs, svo það þarf ekki að hafa áhyggjur af því.  
![CleanShot 2024-09-02 at 16.00.19@2x-20240902-160334.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_5a7ef340cfe66e283136018aa62c8fa7dca91edbf34a7c4b858254aaa5c3dd55/CleanShot%202024-09-02%20at%2016.00.19@2x-20240902-160334.png?cb=cb32cdbeab085fce90add2e001b74b5d)

---
language: "is"
---
# SharePoint / Power Platform

Stafrænt Pósthólf lausnin er með tengingar REST API sem hægt er að tengja einfaldlega aðrar lausnir við.

Hér er Postman Collection til að tengjast við APInn, tengi strengurinn er við þróunarumhverfi, enn það má breyta í [https://api.centara.com](https://api.centara.com/) til að tengjast við raunumhverfi.

[Power Platform.json](https://docs.wise.is/__attachments/a_9bc2a69e6aec49e88aca1698d68eb38053a395becf95f04a6b5378b8a8e0d723/Power%2520Platform.json.md?cb=6c620166180cab329bc413837dfa8d1b)

Tengja SharePoint

Farið er í Power Automate ( <https://make.powerautomate.com/create> ) og valið er Instant Cloud flow  
![CleanShot 2025-01-08 at 10.50.34@2x-20250108-105041.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_e0c83ec6e8f904f281caa3f71bd22a8ce8bb703c3451aba91deb953d7121eda7/CleanShot%202025-01-08%20at%2010.50.34@2x-20250108-105041.png?cb=a4ac6dc289f93643e380cc01e616294f)

Valið er SharePoint site og Library sem valið er. Í Libraryinu þarf að vera reitur fyrir kennitölu eða þá að kennitalan er fastsett.

![CleanShot 2025-01-08 at 10.51.38@2x-20250108-105157.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_5a94ce511ba4e608853ff7eb0cf56f2ddf6d4dd3b8cca7f251524564a20081c5/CleanShot%202025-01-08%20at%2010.51.38@2x-20250108-105157.png?cb=6e058cc085005957a251d79b9e5b492d)

Valinn er HTTP tengilinn er hann er ekki Premium tengill sem hjálpar við kostnað.

URI: <https://api.centara.com/api/document/Power?api_key=>\<api_key\> - þetta er API keyinn sem hefur verið úthlutaður. Best er að geyma hann sem breytu. Valið er [https://my.outskira.com](https://my.outskira.com/) ef það á að senda á þróunarumhverfi.  
![CleanShot 2025-01-08 at 10.52.36@2x-20250108-105249.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a6b77cab0995d185af1592501b06a5d9c2566f982d084b8b55cef8a4a0a82cb3/CleanShot%202025-01-08%20at%2010.52.36@2x-20250108-105249.png?cb=efb2687f52b33ea7e804ce8b3510f7bd)

**Method**: POST

Body:

    {
      "documentNumber": "@{triggerBody()?['entity']['ID']}",
      "documentType": "Document",
      "receivers": [
        {
          "number": "@{triggerBody()?['entity']['NationalID']}"
        }
      ],
      "document": {
        "file": "@{triggerBody()}",
        "main": true
      }
    }

Möguleiki er að bæta við gildum eins og properties, til þess að bjóða uppá betri síun eða merkja skjölin sérstaklega. Ennfremur er stutt að setja inn "Subject" til að yfirskrifa heiti inná [Ísland.is](http://xn--sland-ysa.is/)

þá er sett inn properties: \[ {"Subject": "Subject"} \] fyrir neðan document í JSON

Mögulega þarf að skipta út NationalID

Möguleiki er að senda eitt skjal á marga aðila með því að fjölga recievers þá er gerð Forloopa í staðinn.

---
language: "is"
---
# Uppsetning á Stafrænu pósthólfi

## Grunnur

Í Business Central 14, er auðveldast að fara í leitargluggan í kerfinu og skrifa þar inn "Wise Courier Grunnur".

Þá opnast valmynd með möguleikum.  
![CleanShot 2024-09-02 at 15.31.02@2x-20240902-153119.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_dcc92a7ea2233fec4491a3f902c88cf3fee25002d01f07603ec57a92b02fd68d/CleanShot%202024-09-02%20at%2015.31.02@2x-20240902-153119.png?cb=11ca99c9f5bbcf8b5ed3ddfaffcf831b)

### Aðgerðir

**Import Certificate:** Smellt á hnappinn og skilríki úthlutað af Wise er keyrt inní kerfið. Þetta er nauðsynlegt til þess að það sé möguleiki að tala við vefþjónustur Wise. Hakið **Certificate imported** verður þá valið

### Reitir

**Kennitala fyrir móttöku**: Þessi valmöguleiki er ekki notaður í þessari útgáfu af Business Central

**Override Id for Sending Document**: Ef kerfið er notað af mörgum mismunandi félögum, er möguleiki að yfirskrifa kennitölu sendana sem er send til kerfis.

**Web service URL**: Slóð að kerfi Wise. Þessi slóð er uppgefin af Wise við uppsetningu ásamt skilríki

**Certificate imported:** Segir til umhvort að skilríki sé til í kerfinu

**Delete message after sending:**Til þess að kerfið hægir ekki á vinnslu, þá er kerfið stillt uppá þann máta að skjöl eru ekki send í rauntíma til stafræn pósthólfs, heldur yfirleitt á 15 mínútuna fresti. Þegar skjalið hefur verið sent, þá er möguleiki að eyða gögnum um sendinguna sem sparar pláss í kerfinu

**Max Retries of Message Sent:**Skal yfirleitt skilið eftir í 100. Segir til um hversu oft er reynt að senda skjalið ef að skjalið lendir á villu.

**Send Sales Invoices:**Segir til hvort að það skuli senda Sölureikninga yfir til Stafrænnar Íslands

**Send Sales Credit Memo:**Segir til um hvort það skuli senda Sölukreditreikninga yfir til Stafrænnar Íslands

**Send Payslips:**Segir til um hvort það skuli senda Launaseðla yfir til Stafrænnar Island.is

**Send Payment Slips:**Segir til um hvort það skuli senda Greiðsluseðla til Stafrænt Íslands.is

**Receiver Number Is:**Ef vilji er fyrir því að breyta því að Viðskiptamanna kennitala er notuð sem móttakandi skeytis að þá er möguleiki að breyta því hér.

**Senda viðhengi:**Ef það á að senda viðhengi með skjölum, þá eru viðhengi sem eru hengd við skjölum sameinuðum upprunalega skjalinu og send til birtinga hjá Stafrænu á Íslandi. Ef þetta er ekki hakað, þá sendast engin viðhengi á Stafræn pósthólf.

## Verkröð

Kerfið nýtir sér verkraðir til að senda skjöl úr kerfinu yfir á stafrænu miðju. Nota skal leitin Ctrl + F3 og finna síðuna **Verkraðafærslur** . Þar skal vela **Nýtt**.

Þar þarf að breyta **Hlutategund í keyrslu** yfir í **Codeunit**.  
![CleanShot 2024-09-02 at 15.48.27@2x-20240902-154848.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_70b28b6eff01fb4014c6af06b70466784bfd5dbd6e1a366882dd12e5730e9d2d/CleanShot%202024-09-02%20at%2015.48.27@2x-20240902-154848.png?cb=8560e6731b28143ecf807e4c0e287486)

**Hlutakenni í keyrslu:**10058488

**Hámarksfj. tilrauna til keyrslu:**15

### Endurtekning

Undir flekanum endurtekning er mælt með að haka við alla keyrsludagana og setja svo **Mínútufj** . **á milli keyrslna** í 15. Tímabil lokunar vegna eingrar virkni skal vera 0.

Þegar þessari uppsetningu er lokið skal svo breyta stöðunni í "Tilbúið".

---
language: "is"
---
# CoreData

## CoreData

CoreData ECM byggir á nútímalegri nálgun á stjórnun upplýsinga og verkefna fyrirtækja, stofnana og félaga. Áhersla er lögð á notendavænt og lipurt viðmót.

### Skjöl

*

  #### [Notendur - Handbók](https://docs.wise.is/cored/notendahandbok-islandic-manual.md)

  * [Innskráning og yfirlit yfir sjónarhorn](https://docs.wise.is/cored/1-yfirlit-yfir-sjonarhorn.md)
  * [Hagnýtar upplýsingar](https://docs.wise.is/cored/8-hagnytar-upplysingar.md)
  * [Heim](https://docs.wise.is/cored/2-heim.md)
  * [Verkefni](https://docs.wise.is/cored/3-verkefni.md)
  * [Verkliðir](https://docs.wise.is/cored/6-verkliir.md)
  * [10 more pages](https://docs.wise.is/cored/notendahandbok-islandic-manual.md)
*

  #### [CoreAdmin - Handbók](https://docs.wise.is/cored/coreadmin-handbok.md)

  * [Yfirlit](https://docs.wise.is/cored/1-yfirlit.md)
  * [Öryggi - Aðgangur](https://docs.wise.is/cored/5-oryggi.md)
  * [Skjalalyklar](https://docs.wise.is/cored/2-skjalalyklar.md)
  * [Svæði](https://docs.wise.is/cored/3-svi.md)
  * [Sniðmát](https://docs.wise.is/cored/4-snimat.md)
  * [4 more pages](https://docs.wise.is/cored/coreadmin-handbok.md)
*

  #### [Útgáfulýsingar](https://docs.wise.is/cored/utgafulysingar.md)

  * [2026.1 - CoreData útgáfulýsing](https://docs.wise.is/cored/2026-1-coredata-utgafulysing.md)
  * [2025.2.3 - CoreData útgáfulýsing](https://docs.wise.is/cored/2025-2-3-coredata-utgafulysing.md)
  * [2025.2 - CoreData útgáfulýsing](https://docs.wise.is/cored/2025-2-coredata-utgafulysing.md)
  * [2025.1.5 - CoreData Útgáfulýsing](https://docs.wise.is/cored/2025-1-5-coredata-utgafulysing.md)
  * [2025.1.4 - CoreData útgáfulýsing](https://docs.wise.is/cored/2025-1-4-coredata-utgafulysing.md)
  * [20 more pages](https://docs.wise.is/cored/utgafulysingar.md)
*

  #### [Kerfisstjórar / System Administrators](https://docs.wise.is/cored/manual.md)

  * [Almennar upplýsingar / General information](https://docs.wise.is/cored/almennar-upplysingar-general-information.md)
  * [Innskráningarleiðir / Authentication methods](https://docs.wise.is/cored/authentication-methods.md)
  * [Gagnaafrit á Íslandi / Backups in Iceland](https://docs.wise.is/cored/gagnaafrit-a-islandi-backup.md)
  * [Aðgerðir / Operations](https://docs.wise.is/cored/operations.md)
  * [Notendur / Users](https://docs.wise.is/cored/users.md)
*

  #### [Forritarar / Developers](https://docs.wise.is/cored/forritarar-developers.md)

  * [CoreData domain model](https://docs.wise.is/cored/coredata-domain-model.md)
  * [CoreData API](https://docs.wise.is/cored/coredata-api.md)

---
language: "is"
---
# Yfirlit

Notandi þarf að hafa tilskilin réttindi (hópurinn admin_delegate) til þess að fara inn á **admin** síðu CoreData. [https://\[fyrirtæki\].coredata.is/coreadmin](https://docs.wise.is/cored/1-yfirlit.md)

Í CoreAdmin er umsjón með eftirfarandi:

**Öryggi** (e. security)

**Skjalalyklar** (e. fileplan)

**Svæði** (e. spaces)

**Sniðmát** (e.templates)

**Atburðaskrá** (e. audit)

**Óútkljáð** (e. pending)

**Configuration** \> Efnisorð, ásamt ýmsum viðbótum og stillingum í kerfinu.

**Ruslatunna** (e. trash)

![image-20221124-104703.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_c6362128bc831999def771165ff1a7bbadd1edf08eedf5a81a92837bc34583b0/image-20221124-104703.png?cb=7b60476f0f7cd66d1dfe8694338e572c)

Upphafssíða *admin* hluta CoreData er **svæði** (e. spaces).

Til þess að breyta um sjónarhorn er smellt á það **sjónarhorn** sem við á.  
![image-20221124-104936.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_747baba60576050d08994f5f74d97beca5de02fbe13e2bf341d28d4b2037c503/image-20221124-104936.png?cb=100b75a53faa78e292a73eff7c9b203e)

## **Öryggi**

Aðgangsstýringar í CoreData byggja á notendum og hópum. Réttindi á svæði eru veitt aðgangshópum og svo eru notendur settir í viðkomandi hópa. Sjá má yfirlit yfir notendur og hópa í CoreData ásamt yfirliti yfir réttindi notenda. Sjá nánar í kaflanum [Öryggi](https://docs.wise.is/cored/5-oryggi).

### **Skjalalyklar**

Uppsetning og umsýsla á skjalaflokkunarkerfi skipulagsheildar. Sjá nánar í kaflanum [Skjalalyklar](https://docs.wise.is/cored/2-skjalalyklar).

### **Svæði**

Hér sést hvernig CoreData er byggt upp. Ennfremur má sjá hvaða notendahópar hafa aðgang að hverju svæði fyrir sig með því að smella á viðkomandi svæði og síðan á **Öryggi**. Aðgangsstýringar í CoreData byggja á aðgengi notenda að svæðum.

### **Sniðmát**

Valmyndin skiptist í fjóra flipa; Projects, Folders \[Files\], Tasks og Contacts. Sjá nánar í kaflanum [Sniðmát](https://docs.wise.is/cored/4-snimat).

Í þessum flipum er hægt að setja upp ýmiskonar sniðmát, t.d. er hægt að:

1. Sérhanna verkefnasniðmát með verkliðum og skjölum sem gott er að nota við endurtekin verkefni, t.d. umsóknir og móttöku nýrra starfsmanna.

2. Setja inn skráarsniðmát fyrir hverskonar skjöl, t.d. fundargerðir og eyðublöð.

3. Búa til verkliðasniðmát (to-do lista eða flæði) fyrir verkefni en huga þarf að því að í mörgum tilfellum fylgja verkliðir verkefnasniðmátum. Athugið að ef verkliðir fylgja verkefnasniðmátum þá þarf ekki að búa þá til undir Tasks.

### **Atburðaskrá**

Inniheldur yfirlit yfir allar aðgerðir sem framkvæmdar eru í CoreData.

### **Óútkljáð**

Yfirlit yfir skjöl sem á að eyða samkvæmt skjalavistunaráætlun eða eyðingaráætlun svæðis eða forgangsraða neðar í leitarheimtum. Sjá nánar í kaflanum [Óútkljáð](https://docs.wise.is/cored/6-outklja).

### **Configuration**

Hér er að finna lista yfir efnisorð og hægt að eyða þeim og búa til ný. Sjá nánar í kaflanum [Configuration](https://docs.wise.is/cored/7-configuration).

Gott að fá aðstoð hjá notendaþjónustu CoreData varðandi annað sem er að finna hér undir.

Breytingar geta haft áhrif á grunnvirkni í kerfinu.

---
language: "is"
---
# Innskráning og yfirlit yfir sjónarhorn

## **Innskráning**

Notandi skráir sig inn með því að slá inn vefslóð fyrirtækisins/stofnunar í netvafra: **https://\[fyrirtaeki\].coredata.is**

Efst uppi fyrir miðju er hægt að velja tungumál: Íslenska \| English **(1)**  
**Innskráning með notendanafni og lykilorði:**

Notandi slær inn notendanafn **(2)** og lykilorð **(3)** , smellir síðan á **Innskráning** **(4)**.  
**Innskráning með rafrænum skilríkjum:**

Smella á **Rafræn skilríki** **(5)** og skráir notar rafræn skilríki til innskráningar  
**Innskráning með SSO:**

Tenging innskráningar við Active directory og notast við Single sign on (SSO) **(6)**.

Neðst í vinstra horninu eru svo upplýsingar um hvaða útgáfu af CoreData viðskiptavinur er með **(7)**.  
![image-20221031-154103.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_fed74ce19ccd88914387dafb2e3e4e6fd3e5c91ba796ef150291562d7a8f7366/image-20221031-154103.png?cb=225eea1280ec0ed15436e324a9fed8c4)

Þegar notandi skráir sig inn í CoreData kemur upp viðmótið Heim**(1)** . Til að opna annað viðmót er smellt á textann í stikunni til vinstri t.d. Svæði **(2)** til að fá upp lista yfir svæði sem viðkomandi hefur aðgang að. Smellt er á viðkomandi svæði til að skoða verkefni á því svæði eða Viðskiptavinir **(3)** til að fá upp lista yfir alla skráða viðskiptavini.  
![image-20240312-104538.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_19fce97ed61389e6b2cdf524c4f8d6e5d95d37d0d6165e62f419c69fa08d9c19/image-20240312-104538.png?cb=761a413da7933deb1c3bf3ded191a89e)

## Valmöguleikar á upphafsskjá

Það fer eftir starfsemi hvers fyrirtækis / stofnunar hvort notast er við hugtakið **verkefni** eða **mál** .

Í þessum leiðbeiningum er **verkefni** notað sem **samheiti** á hvoru tveggja og nær yfir allar tegundir verkefna og mála sem skrá á í kerfið.

## Heim **(1)**

**Heim** er vinnusvæði notanda. Þar er hægt að vinna með **verkefni, verkliði og skrár** .

Sjá nánar í kafla um [Heim](https://docs.wise.is/cored/2-heim).

## Svæði **(2)**

**Svæði** birtir lista yfir svæði sem notandi hefur aðgang að. Þegar smellt er á valið svæði birtist listi yfir þau **verkefni sem skráð eru á viðkomandi svæði** og notandinn hefur aðgang að. Í þeim lista er hægt að að breyta verkefnum og bæta við nýjum. Sjá nánar í kafla um [Verkefni](https://docs.wise.is/cored/3-verkefni).

## Viðskiptavinir **(3)**

**Viðskiptavinir** birtir lista yfir alla skráða viðskiptavini, **fyrirtæki** og **einstaklinga** . Þar er hægt að breyta viðskiptavinum og skrá nýja. Einstaklingar geta síðan verið tengdir ákveðnum fyrirtækjum eða ekki.

Sjá nánar í kafla um [Viðskiptavini](https://docs.wise.is/cored/5-viskiptavinir).

## Sýnir **(4)**

Við bjóðum upp á nokkrar sérsýnir í kerfinu:

### **Eignir**

Þegar **Eignasýn** er virk, bætist við reitur á skráningarspjaldi verkefna og skjala, **Eign** .

Stillingaratriði er í hvaða tegundum verkefna og skjala reiturinn birtist.

Í Eignasýninni sjálfri eru svo allar eignir skráðar og þegar smellt er á eign birtist listi yfir öll verkefni og skjöl sem eignin er skráð á. Sjá nánar undir [Eignir](https://docs.wise.is/cored/eignir).

### **Samningar**

Kveikja þarf sérstaklega á þessari viðbót fyrir viðskiptavini.

Í **samningasýn** er öllum skjölum á skjalategundinni **Samningur** safnað saman á einn stað.

Samningur er skráartegund / skjalategund og það þarf því að nota hana svo samningar birtist í samningasýn.

*Athugið:* Þetta er ekki svæði þar sem samningar eru vistaðir, þeir eru vistaðir í viðeigandi verkefnum í CoreData. Þessi sýn safnar þeim einungis saman til að auðvelda alla vinnu og yfirsýn yfir samninga.

Sjá nánar undir [Samningar](https://docs.wise.is/cored/samningar).

### **Skjalalyklar**

Í **skjalalyklasýn** birtast öll verkefni í CoreData sem skjalalykill hefur verið skráður á og hægt er að afmarka eftir ákveðnum skjalalyklum. Notendur geta þá farið yfir öll verkefni á ákveðnum skjalalyklum.

Sjá nánar undir [Skjalalyklar / Málalyklar](https://docs.wise.is/cored/skjalalyklar-malalyklar).

### **KKS kóðar**

Kveikja þarf sérstaklega á þessari viðbót fyrir viðskiptavini. Þegar KKS kóðar eru virkir í kerfinu þá birtist KKS í vinstri valstiku. Öll verkefni og skjöl sem hafa skráðan KKS kóða birtast á í þessari sýn.

Við virkjun þá bætist við skráningarreitur í verkefni og skjöl til að skrá KKS kóða.

### **Stafrænt pósthólf**

Sækja þarf um heimild fyrir þessari tengingu og kveikja þarf sérstaklega á þessari viðbót fyrir viðskiptavini, sjá nánar undir [Senda skjal í stafrænt pósthólf á Island.is](https://docs.wise.is/cored/senda-i-stafrnt-postholf-a-island-is).

*Athugið:*Þetta er ekki svæði þar sem skjöl sem send eru í stafrænt pósthólf eru vistuð, þau eru vistuð í viðeigandi verkefnum í CoreData.

## Leit **(5)**

**Leit** gerir notanda kleift að leita að**verkefnum, verkliðum, skjölum og viðskiptavinum** . Þarna er líka hægt að leita eftir **texta inni í skjali** og **texta í lýsingu** . Sjá nánar í kafla um [Leit](https://docs.wise.is/cored/7-leit).

## Lokið fyrir **(6)**

e.due dates

Hér er yfirlit yfir þau verkefni og þá verkliði sem eru með skráða **Lokið fyrir** dagsetningu og notandi er ábyrgur fyrir. Hægt er að nota eftirfarandi síur: **Komið fram yfir** , **Í dag** , **Næstu 7 daga** , **Næsta mánuð** .

Þetta gerir notendum kleift að hafa betra yfirlit yfir þau verkefni sem þeir eru ábyrgir fyrir og forgangsraða þeim. Í yfirlitinu birtast öll verkefni og verkliðir sem eru með stöður sem eru ekki skilgreindar sem lokið.

Hægt er að smella á heiti verkefnis / verkliðs til að komast beint í það úr þessu yfirliti.

**Lokið fyrir** gefur til kynna með tölu þann fjölda atburða sem eru með skráða lokið fyrir dagsetningu en talan breytist ef búið er að sía (sjá hér fyrir ofan).

## Virkni **(7)**

e. activity feed

Hér er hægt að fylgjast með virkni í kerfinu. Notandi sér atburði sem eiga sér stað í kerfinu í tengslum við verkefni, verkliði og skjöl sem hann stofnar og verkefni/verkliði sem hann er ábyrgur fyrir eða tengdur.

Þær breytingar sem notandi gerir sjálfur, birtast ekki í hans virkniyfirliti.

Virkni gefur til kynna með númeri, fjölda þeirra atburða sem hafa átt sér stað og notandi hefur ekki séð.

Litið er á atburð sem séðan ef hann er í fellilistanum á þeim tíma sem smellt er á **Virkni**.

## Notandi **(8)**

Upphafsstafir innskráðs notanda birtast í stikunni efst til hægri. Smellt er á **notanda** til að breyta stillingum, skipta um tungumál og skrá sig út.

Einnig er í boði að hafa mynd af notendum, þá birtist mynd af notanda í stað upphafsstafa notenda efst í hægra hornið: Breyta mínum stillingum \> Mynd \> Upload picture.

Sjá nánar í kafla um Stillingar (6) undir [Heim](https://docs.wise.is/cored/2-heim).

## **Útgáfa**

Neðst í skjámynd birtist **útgáfunúmer CoreData**. Númerið samanstendur af útgáfunúmeri og uppfærslu (á mynd útgáfa 2.59.4).  
![image-20221031-160833.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_36179b2be3c524804959c18163b9362fdabd98c45208c60f0b024435cae1ac3a/image-20221031-160833.png?cb=defc4036e07c304942d7a821342ff12a)

## Afmörkun og röðun á listum og í leit

Í þeim sjónarhornum sem birta lista af skjölum eða verkefnum er hægt að breyta **röðun lista** með því að smella á heiti dálka. Einnig er hægt að afmarka niðurstöður í listum með því að smella á atriði í dálkinum **Afmörkun** á hægri hlið. Hægt er að afmarka eftir fleiri en einu atriði í einu.

Undir **Viðskiptavinir** er til dæmis hægt að afmarka eftir stöðu og tegund.

Gott getur verið að vista afmarkanir sem oft er unnið með í Bookmarks í vafranum.

Sjá einnig undir [Leit](https://docs.wise.is/cored/7-leit).  
![image-20221031-160953.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_90b5e2939e897423fac1ab5538a5ab7160f22b3a96707edeb4306370f09f2d57/image-20221031-160953.png?cb=28394d4201f774beae286a80fb2b3348)

## Flytja upplýsingar út í Excel

Hægt er að flytja upplýsingar úr CoreData yfir í excel og vinna þannig áfram með þær.

Virknin er í tannhjólinu á svæðum og í leitarniðurstöðum.

Sjá einnig svipaða virkni undir Viðskiptavinir.  
![image-20221031-160733.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_41011e9103a2c6c1c1728a4d9b009a96d739ca6339412918660d1fb0c2134aa1/image-20221031-160733.png?cb=75bede6157e599b495a422a523db1b65)

---
language: "is"
---
# Rafræn undirritun skjala

Virkni sem kveikja þarf sérstaklega á fyrir hvern viðskiptavin.

* **Senda til undirritunar** og **Undirrita** er sitthvor virknin.

  Hægt er að hafa kveikt á báðum eða annarri hvorri.

* Viðskiptavinur ákveður á hvaða svæðum virknin á að vera og hvaða hópar eiga að geta sýslað með skjöl í undirritunarferli.

* Rafræn undirritun getur verið í öllum þeim löndum sem Dokobit styður. Hér getið þið kynnt ykkur þau lönd og svæði sem Dokobit styður:

  <https://www.dokobit.com/is/lausnir>

---
language: "is"
---
# Utanumhald funda - Stjórnarfundir

CoreData Stjórnarvefgátt (BoardMeetings) er veflausn sem heldur utan um stjórnarfundi og öll tilheyrandi fundargögn, svo sem dagskrá, fundargerðir, ítarefni, verkefni og áætlanir.

Með notkun á stjórnarvefgátt þarf ekki lengur að senda fundargögn í tölvupósti eða á pappír. Stjórnarmenn skrá sig inn á vefnum og nálgast þar sín gögn í öruggu umhverfi. Þeir geta einnig gert athugasemdir við fundargerðir og/eða fundi í CoreData og notast við öfluga leit til þess að finna gögn og upplýsingar.

Lausnin er jafnframt kjörin fyrir aðra fundi, t.d. nefndir og ráð, deildar-, sviðs-, hópa- og verkefnafundi.  
**ATHUGIÐ** að aðgangur stjórnarmanna að stjórnarfundarverkefnum getur verið óheftur, þ.e. öll verkefni á svæðinu sjást og hægt er að skoða öll gögn. Einnig er hægt að hafa UP aðgang sem þýðir að setja þarf viðeigandi stjórnarmenn á verkefni svo þeir sjái gögnin. Það er mismunandi eftir fyrirtækjum / stofnunum hvort nýir stjórnarmenn megi sjá gögn eldri funda eða ekki. Þeir sem eru með CoreAdmin réttindi geta aðstoðað við að skoða hvernig skráningu aðgangs er háttað.

## **Uppsetning svæða**

Í uppsetningu stjórnarvefgáttar er til dæmis hægt að hafa eftirtalin svæði undir yfirsvæðinu **Stjórn**

* **Stjórnarfundir**-- þar er haldið er utan um hvern fund fyrir sig sem sér verkefni ásamt gögnum fundar og verkliðum. Stjórnin hefur aðgang að þessu svæði.

* **Undirbúningur funda** -- vinnusvæði þar sem þeir starfsmenn fyrirtækisins geta unnið að undirbúningi stjórnarfunda áður en þeir eru aðgengilegir fyrir stjórn en þar geta starfsmenn líka haft sín vinnuskjöl tengd fundum. Stjórn hefur ekki aðgang að þessu svæði.

* **Upplýsingar** -- Þar eru vistuð gögn sem stjórn hefur aðgang að en tengjast ekki ákveðnum fundum t.d. samþykktir stjórnar, skýrslur, reglur og fleira. Á svæðinu er eingöngu að finna skjöl og möppur en ekki verkefni/fundi. Stjórn hefur aðgang að þessu svæði.

* Athugasemdir við fundargerðir og/eða fundi eru skráðar inn í kerfið.

* Öflug leit að gögnum.

## **Yfirlit yfir verklag**

Hver fundur er stofnaður sem sér verkefni á svæðinu **Stjórnarfundir**.

Skráð er inn nafn og númer fundar í titil verkefnis og dagskrá samkvæmt fundarboði er sett inn í **Lýsing**.

### Skjöl

Öll viðeigandi skjöl til upplýsingar fyrir stjórnarmenn eru sett inn undir viðkomandi fund með því að hlaða upp skjölum.

* Skjöl sett í pdf eða word formi

* Heiti á skjölum - vísa í nr. dagskrárliðar, dæmi **04 Skýrsla um ....**

* Ef uppfæra þarf skjal þá er vistað yfir eldri útgáfu

* Hægt er að búa til möppur til þess að halda utan um mörg skjöl tengdum einum dagskrárlið

### Fundargerðir

* Athugasemdir frá stjórnarmönnum er hægt að skrá í vefgáttina

* Athugasemdum er einnig hægt að svara þar

* Endanleg fundargerð er vistuð undir viðkomandi fund

* Fundargerð er undirrituð í CoreData (fullgild rafræn undirritun)

### Upplýsingar um nýtt efni

Tölvupóstur er sendur til stjórnarmanna með tengil á slóð fundar - þá þurfa þeir eingöngu að setja inn notendanafn og lykilorð eða skrá sig inn með rafrænum skilríkjum til að nálgast gögnin.

### Minnispunktar

Stjórnarmenn geta skráð minnispunkta við skjöl sem aðeins þeir sjá, nánar [hér](https://docs.wise.is/cored/2-heim#Heim-Minnispunktar(5)).

---
language: "is"
---
# Stjórnarmenn - Stjórnarvefgátt

CoreData Stjórnarvefgátt er veflausn sem heldur utan um stjórnarfundi og öll tilheyrandi fundargögn svo sem dagskrá, fundargerðir, ítarefni, verkefni og áætlanir. Stjórnarmenn fá aðgang að gögnum í öruggu vefumhverfi í stað útprentaðra gagna eða sendinga í tölvupósti.

* Allt efni fyrir stjórnarfund ásamt fundargerð er aðgengilegt þegar á þarf að halda

* Auðvelt er að leita að upplýsingum og gögnum með öflugri leit

* Stjórnarmenn geta skráð athugasemdir vegna fundargerða og/eða funda

* Stjórnarmenn geta undirritað fundargerðir og önnur gögn

## **Notendastillingar**

Við fyrstu innskráningu er nauðsynlegt að breyta lykilorði, ++nema ef þú skráir þig með rafrænum skilríkjum++ . Hægt er að breyta lykilorði með því að velja stafina sína uppi í hægra horninu og velja **Breyta mínum stillingum** , sjá nánar [hér](https://docs.wise.is/cored/2-heim#Heim-Stillingar(6)).

Lykilorð ætti að vera minnst 8 stafir og blanda af tölustöfum og stórum og litlum stöfum.  
**ATHUGIÐ**að notendanafn er aldrei netfang.

## **Tungumál**

CoreData er bæði á íslensku og ensku. Ef smellt er á stafi innskráðs notanda efst í hægra horni þá birtist valmöguleikinn **Tungumál**.  
![image-20221230-095734.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a9f1c27d0f8aeca30b1e1a687c3b0d7b418e765636ae4924d049d0f833e6142b/image-20221230-095734.png?cb=ac88caeea27e3d3f3e95ecddca47a2a1)

## **Yfirlit funda og verkliða**

Þegar stjórnarmaður hefur skráð sig inn í CoreData birtist hliðarstika þar sem **smellt er á** **Svæði**til að sjá svæðin sem stjórnarmaður hefur aðgang að.  
![image-20221230-100528.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a38ad66253d1f34b6de7a4863bf8d84b1c5c5c84c19e09c7291cde1f08108b46/image-20221230-100528.png?cb=fb8273e67dca4fe6799900d5b7190911)

Ef smellt er á **Stjórnarfundir** birtist yfirlitssíða með lista yfir nýjustu stjórnarfundi. Hægt er að smella á **Sjá öll verkefni**(neðarlega á síðunni) til þess að sjá lista yfir alla skráða fundi í CoreData. Á yfirlitssíðu er einnig hægt að sjá ókláraða verkliði ef skráðir hafa verið verkliðir í kjölfar funda.

Ef smellt er á ákveðinn fund í listanum opnast yfirlitssíða fundarins á sama hátt og lýst er hér að ofan.  
![image-20221230-100607.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_77e78b8be66122ff722cd0e7a3c42fb4874c1912ad4a667db7b790016c45f678/image-20221230-100607.png?cb=5949e609c07ddfa3a3e175e06c631b86)

## **Fundir, yfirlit og fundargögn**

Hver fundur er aðgengilegur í CoreData ásamt dagskrá og gögnum. Tengill er oftast sendur á stjórnarmenn í tölvupósti þegar nýr fundur er kominn inn á vefgáttina. Þegar smellt er á tengilinn þarf að slá inn notendanafn (username) og lykilorð (password) eða nota rafræn skilríki til innskráningar.

Eftir innskráningu opnast yfirlitssíða fundarins og gögn tengd honum.  
![image-20230104-103746.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_49653e4c35f426723dddff21ec5505551749b9e5bcda5cf77e004f1c8fe946f7/image-20230104-103746.png?cb=d323f5efad423c9b54d5d3aed0780819)

Á yfirliti fundar er oftast dregin fram dagskrá fundarins, hægt að sjá fimm nýjustu skjöl fundarins og fleiri upplýsingar. Ef fleiri skjöl tilheyra fundinum sjást þau undir flipanum **Skrár** .

Skjöl opnast í skoðunarham þegar smellt er á þau.

## **Athugasemdir**

Neðst á yfirlitssíðu fundar og við hvert skjal er athugasemdareitur. Skráðar athugasemdir birtast öllum með aðgang að fundinum með upplýsingum um hver skrifaði athugasemdina og hvenær.

Aðrir stjórnarmenn og starfsmenn geta svarað athugasemdum með því að skrifa nýjar.  
![image-20221230-095946.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_8a0ff0b3e0b51ed2095423a29d62322ea5b4fbf7b0225b9c9801f665f5305b57/image-20221230-095946.png?cb=d258b60ad209119e3ac0dbfa3bd53f81)

## **Yfirferð skjala**

Þegar smellt er á skjal opnast það í skoðunarham þar sem hægt er að lesa innihald skjalsins gegnum viðmót CoreData.  
![image-20221230-100024.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_5348730854b8d2543c6febcdb4d5e73088a0d190fcc447b32f879fe4302a85a3/image-20221230-100024.png?cb=d4e05b815a789d72af69b9d409bd1195)

* Efst birtist nafn viðkomandi fundar sem skjalið tilheyrir. Ef smellt er á nafn eða flipann **Skrár**þá opnast yfirlitssíða yfir skjöl fundarins.

* Nafn skjalsins sem verið er að skoða er birt fyrir ofan stjórnstiku skjals (hér fyrir ofan í rauðum kassa)

* Stjórnstika skjals býður upp á að fletta á milli blaðsíða í skjali, skrá inn númer síðu sem á að birta auk þess að opna stærri útgáfu í öðrum flipa með **Fylla skjá** *.*

## **Leit að fundum og skjölum**

Auðvelt er að leita að fundum, skjölum og upplýsingum í CoreData með leitinni sem aðgengileg er úr stjórnstikunni.  
![image-20221230-100638.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_eeba252a38f3dd35580ec9b6097bdd687f4af6227e78576fc9251c1c65f5289b/image-20221230-100638.png?cb=aefc5c77e79ba45cc0642f7ea1ecc8b0)

Leitað er samtímis í öllum gögnum þ.e. fundum, kynningum og öðrum gögnum. Hægt er að leita eftir texta (google leit) og/eða afmarka leitina við flokkana sem eru hægra megin á síðunni undir **Afmörkun**t.d. skjalategund, skráarsnið og efnisorð.

---
language: "is"
---
# 2.54 - CoreData release

It's been a busy fall for us on the CoreData product and development team so we'd like to present the latest product updates in CoreData release v.2.54.

We are very excited about this new product release (v2.54) and believe that some of these new features and improvements will enhance the businesses of our clients.

If you have any questions or comments please reach out to us at [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is)

Here's what's new:

## Use secure access with E-Identification

Mobile ID is designed to ensure secure online identification and allows your employees, clients, and vendors to use mobile phones as a form of secure digital ID. Now, through a partnership with Dokobit, CoreData offers the ability to securely prove your identity online by using your mobile ID in 9 European countries and many more countries will follow.

### Project comment notifications will keep you in the loop

Timely communication is of utmost importance in an organization. Therefore, CoreData introduces comment notifications on the project level. So from now on, you can keep a responsible person or the associated team members notified about the project status.

#### Image export

Do you want to turn images, that you have stored, into data that you can edit in Excel? With the new CoreData Image Export feature, it's a snap.

#### Register your files with a correct and complete info

We are always serious about receiving input from our customers and then using it to constantly improve CoreData. This update is proof of that. Our record managers asked us to improve the copying of email attachment files directly to the CoreData system. So now user can complete file info during the registration process.

#### Required fields

The Required fields feature is one of the many useful features of the new CoreData product release. It allows you to select which data fields should be mandatory while adding or editing a project, file, task, or contact. Setting up and editing the Required fields can only be done by Admin users.

#### Other noteworthy updates:

* Client-specific or third-party API extensions and integrations

* Naming convention updates

* Updates and minor bugfixes

Lastly, we'd appreciate your feedback on our product email updates. Please let us know what's working well or what you'd like to see improved. Thanks for your time, and have a great rest of the day!

---
language: "is"
---
# 2.55 - CoreData release

As we reach the last month of 2020, we'd like to wrap up this year with a couple of exciting product updates we have prepared for our Clients.

If you have any questions or comments please reach out to us at [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is).

Here's what's new:

## Breadcrumbs make navigation easier

We introduce hierarchy-based breadcrumbs to our product! Breadcrumbs are a secondary navigation system that helps users easily understand their location and orientation when in a CoreData file or project space. Now users can see, while viewing the file, the exact location(s) where the file has been stored, in which project, folder, or space.

### Extended User Capabilities

At CoreData we always like to listen and receive our Clients' comments and questions, therefore we have decided to upgrade the overall CoreData experience with a couple of new enhancements. Now, our users are able to perform some of the old activities in a smarter and faster way. With this update, users will need one click less to open a file or a folder.

Also, you can copy a file attachment directly from your e-mail to a project on CoreData.

Hope you'll enjoy these small improvements!

#### E-signing -- simple, faster, better document signing process

We've already announced our partnership with Dokobit, the biggest electronic signature solutions provider, also based in Iceland, enabling e-signing and e-identification in Lithuania, Latvia, Estonia, Iceland, Poland, Finland, Belgium, Portugal, and Spain (with more countries to follow.)

In our previous product update (v2.54), we launched a secure online identification feature that allows your employees, clients, and vendors to use mobile phones as a form of a secure digital ID in 9 European countries.

In this product update (v2.55) we are extending CoreData capabilities to support document e-signing that will allow your users to sign documents directly through CoreData. No more meetings merely for paper document singing. This improves the user experience of your employees, clients, and partners and simplifies document singing in many senses: from cost saving to the prevention of forgery.

Lastly, we'd appreciate your feedback on our product email updates. Please let us know what's working well or what you'd like to see improved.

To all our dear clients, partners, and their families across the globe, we wish you all, peace and hope at Christmas and a new year full of better days.

Warmest wishes for a happy holiday season from all of us at CoreData!  
![CoreData - Jólakveðja 2021.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_9e901ef2be04a187f9f579c1529e578fce8708f320070e92573475d39897f0a6/CoreData%20-%20J%C3%B3lakve%C3%B0ja%202021.png?cb=6e0a68ce41b008f1e0bd057df9956ced)

---
language: "is"
---
# 2.56 - CoreData release

First two quarters of 2021 have been marked with the first phase (out of two) of the product hardening and security enhancement to CoreData solution and infrastructure by upgrading to Python 3.

By using Python 3, CoreData enforces better security and compliance and continues accessing new features and libraries from the wider Python community. Continuous security protection along with continuity of customer environments are our highest priorities.

Also, this year [CoreData became ISO27001 certified,](https://coredata.digital/news/iso27001) meeting the highest internationally recognized security standard.

Other product improvements in this v2.56 release can be grouped as follows:

## **API improvements**

In this release, there are a couple of API enhancements that bring enriched data and better-captured data accuracy and information quality, especially when managing contact details (emails, phone numbers).

* (APIv2) User is enabled to set organization when create/update contacts

* (APIv3) Ability to capture various metadata (dynatypes) for contacts

* (APIv3) Ability to set template when creating files

* (APIv3) Support for various metadata (dynatypes) of file creation

**User Interface improvements**

User interface improvements in this version are related to data cleansing and data quality which imply a better and smarter way of how phone numbers, email addresses and tags are created, trimmed and saved.

In terms of functional improvements, this product release has improved the way of how users can search realities through global search.

**CoreData Virtual Drive updates \& Outlook plugin updates**

CoreData Virtual Drive update is available and all the clients using the virtual drive are invited to update their CoreData Virtual Drives on the new version 4.8 as well as Outlook plugin version 2.2.

CoreData Virtual Drive and Outlook plugin improvements are reflected through security hardening and the support of TLS 1.2 and higher. Transport Layer Security (TLS) is the successor protocol to SSL, supported by CoreData. TLS is an improved version of SSL. It works in much the same way as the SSL, using encryption to protect the transfer of data and information.

Our clients who use CoreData Virtual Drive will notice the new icon(s) that we have implemented to make it more recognizable and aligned with our product brand.  
![Desktop merki gamla 2022.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a9bd447bd28ce07869be858557be356da243379244262a351016b477c41965b6/Desktop%20merki%20gamla%202022.png?cb=7d0b9a24a8d80de201109881909166b3)

If you have any questions or comments, please reach out to us at [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is).

We invite you to contact us to let us know what's working well or what you'd like to see improved.

---
language: "is"
---
# 2.57 - CoreData útgáfulýsing

29. september 2021

Eins og fram hefur komið áður er undirstaða CoreData okkur hugleikin og tókum við áhlaup í sumar til að klára að fullu uppfærslu yfir í Python 3 sem partur af því að tryggja öryggi og rekstrarsamfellu lausnarinnar.

Þessi CoreData útgáfa er því nokkuð miðuð að öryggis-, rekstrarsamfellu og stöðuleika sem viljum tryggja í lausninni. Hér má finna þau atriði sem koma með úgáfu 2.57 á næstu dögum.

**Uppfærsla í Python 3.9**

Þar sem við höfum skýra sýn með framþróun CoreData lausnarinnar þá var uppfærsla á Python 3.9 mikilvægt skref. Með þessu skrefi fetum við okkur áfram á þeirri vegferð að viðhalda og auka öryggi lausnarinnar. Okkur er mikið í mun að tryggja öryggi gagna og reksturs hjá viðskiptavinum okkar. Með þessari uppfærslu í nýjustu útgáfu af Python þá erum við að taka mikilvæg skref í þeirri baráttu við öryggisógnanir á netinu.

**Stöðugleiki og sjálfvirkar prófanir**

Yfir allan þennan tíma sem við tókum í að yfirfara kerfið og laga það að breyttum grunnkóða þá höfum við verið í tiltekt í kerfinu, einfaldari breytingar sem bæta stöðugleika og bæta við sjálfvirkum prófunum. Yfirgripsmiklar sjálfvirkar prófanir eru í nútíma hugbúnaðargerð sjálfsagður hluti af kerfum. Það sparar og einfaldar vinnu auk þess sem handgerðar prófanir fara þá meira að skorðast við upplifun notenda sem hjálpar til við að bæta hana til lengri tíma. Með slíkum sjálfvirkum prófunum sjáum við strax hvort eitthvað sé að brotna snemma í þróunarferlinu sem sparar gríðarlega mikla vinnu og tíma til lengri tíma séð. Eins er líklegra að við grípum villur áður en kerfið fer alla leið í raunumhverfi.

**Betra skipulag og skorður á óæskilegum skrám í ruslinu**

Fyrir skjalastjóra og ofurnotanda er nú komin betri yfirsýn á upplýsingum í ruslatunnu með því að efla leitarskorður. Nú er hægt að velja dagsetningar hvenær verkefnum, verkliðum, möppum, skjölum og svæðum var stofnað og var eytt. Þetta hjálpar notendum í kerfinu að hafa stjórn á upplýsingum sem mögulega lenda óvart í ruslinu og þarf að endurheimta eða endanlega eyða.  
[CoreAdmin-trach-by-dates.mp4](https://docs.wise.is/__attachments/a_ae772c790089f76719c8456646cf7ca8f7037caec3a20176d3077ecd163bb2ca/CoreAdmin-trach-by-dates.mp4.md?cb=73a25da98437775fcc4473257af18e77)

**Bættar leitarskorður í "stóru leitinni"**

Nú höfum við bætt við nýjum leitarskilyrðum í afmörkun á heildarleitinni. Þetta bætir yfirsýn fyrir notendur

og gerir þeim kleyft að vera fljótari að finna þau gögn og skjöl sem leitað er að með bættum afköstum.

Hafðu samband við okkur, [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is) og við stillum afmörkun á heildarleitinni eins og hentar best fyrir ykkur.  
[Global-filter-1.mp4](https://docs.wise.is/__attachments/a_1bd5f40a838e8c32a98ed3171cdb5da88cca351115c530d33a5d900976693641/Global-filter-1.mp4.md?cb=938913e6203e3d4c93231e1deffb8e28)

**Bætt yfirsýn samninga**

Mikilvægt er að ná utanum og hafa yfirsýn yfir hinar ýmsu tegundir af samningum við viðskiptavini, þjónustuaðila, birgja sem og aðra samninga. Við höfum bætt við skorðum í samningasýn til að bæta umsýslu samninga sama hvaða líftíma þeir eru. Með því að nota nýjar flokkanir á samningum þá er hægt að ná betur utanum samninga sem eru að renna út, eru í gildi eða þarfnast skoðunar. Þessar breytingar eru til þess ætlaðar og styðja viðskiptavini okkar við að ná betur utanum samningamál og yfirsýn þeirra.  
[Contracts-filter.mp4](https://docs.wise.is/__attachments/a_f5698d4a6d7abfc17d7859b1ec42440d81c4c59af2a846e3d79f0bb5f8870e4d/Contracts-filter.mp4.md?cb=5440a8f7eaa7614656215b98d4c8a751)

**Bætt afköst og API viðbætur**

Síðast en ekki síst eru það allar þær minni lagfæringar sem þarf alltaf að taka með inn í allar útgáfur þar sem við erum að bæta afköst og gæði kerfisins auk þess að bæta við möguleikum í notkun á API lagi CoreData kerfisins. Viðskiptavinir okkar eru í enn meira mæli að samþætta lausnir sínar við CoreData þannig að skjöl séu varðveitt á réttum stöðum. Þá skiptir miklu máli að þessar aðgerðir séu einfaldar og auðvelt að nota. Það sparar ykkur tíma í innleiðingu, samþættingu og viðhaldi á heildar tækniumhverfi ykkar.

Ef þið hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir til okkar, endilega sendið okkur línu á [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is).

---
language: "is"
---
# 2.58 - CoreData útgáfulýsing

**15. desember 2021**

Eftir þunga Python 3 uppfærslu undanfarinna mánuði var komið að því að útfæra spennandi eiginleika sem þið notendur hafið verið að bíða eftir. Í blálokin kom upp veikleiki kenndur við „log4j" og fórum við strax í að bregðast við honum þar sem öryggi er okkur alltaf ofarlega í huga.

Hér eru nýjungar í úgáfu 2.58

**Uppfærsla vegna log4j öryggisógnar**

Minnisblað um aðgerðaráætlun var sent út á tengiliði CoreData. Þar kom fram að 13.12.2021 voru gerðar config breytingar á þessum kóðasöfnum sem tengjast þessum veikleika. Það var ein af þeim leiðum sem framleiðendur ráðlögðu m.a. til að koma í veg fyrir þennan veikleika. Í framhaldinu var þetta kóðasafn uppfært í þá útgáfu sem inniheldur ekki þennan veikleika og sú uppfærsla hluti af þessari útgáfu.  
![https://coredata.digital/wp-content/uploads/2022/07/utg-2.58-mynd-1.jpg](https://coredata.digital/wp-content/uploads/2022/07/utg-2.58-mynd-1.jpg)

**Notendur geta breytt röðun í „Flýtileiðir"**

Nú geta notendur sjálfir breytt röðuninni á þeim hlutum sem þeir hafa merkt við að hafa í flýtileiðum (e. my favourites). Notandi einfaldlega fer með músina yfir myndina fremst í línunni og þá myndast „kross" þar sem músabendillinn er staðsettur, dregur línuna til og sleppir henni þar sem þú vilt að hún sé í röðinni.  
![image-20230123-125003.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_3747bcf125586afd78475309c675c1f9e8fd160360b1580da44ef1aac0d15b2b/image-20230123-125003.png?cb=5df0d3edbb4525e997a4ce804ff02bf8)

**Aðgerðarhnappar í „Allar skrár" flipanum fyrir yfirverkefni**

Þeir sem nýta sér yfirverkefni sjá nú að við höfum bætt við aðgerðarhnöppum sem flýtileið fyrir notendur þegar þeir eru að vinna í flipanum „Allar skrá".  
![https://coredata.digital/wp-content/uploads/2022/07/utg-2.58-mynd-3.jpg](https://coredata.digital/wp-content/uploads/2022/07/utg-2.58-mynd-3.jpg)

Þeir sem óska eftir að geta haft yfirverkefni geta haft samband við okkur á þjónustuborðinu, [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is) og við stillum þetta fyrir ykkur.

**Brauðmylsluslóð**

Í yfirverkefnum er nú hægt að sjá "brauðmylsluslóð" eins og fyrir venjuleg verkefni (undirverkefni).  
![image-20230123-125703.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_4a49355bafb2f13090caec7f69b8a2d8091d881e5ece17e295d595f2ca227d34/image-20230123-125703.png?cb=71392a9a89b75f5ab6dfc2e9302764b7)

**Númer verkefnis / máls**

Nú hefur verið settur svigi utanum númer verkefnis til þess að hjálpa notendum við að aðgreina betur númerið í slóð verkefnisins. Það er algengt að ártöl og dagsetningar séu í heitum verkefna viðskiptavina okkar. Notendur hafa beðið um betri aðgreiningu þarna og nú höfum við brugðist við með því að draga fram númerið á þennan hátt.  
![image-20230123-125804.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_1d40ac2dccbdbaeb2800beb567a9cd4d317f84a9e1d2fa4270885a580061fc58/image-20230123-125804.png?cb=660f15e0111d95611cc863bace188979)

**Skjalalykill kominn í afmörkun**

Möguleikinn við að bæta við upplýsingum um skjalalykil í afmörkun fyrir skjöl hefur nú verið aðlöguð -- bestu þakkir sendum við notendahópnum okkar sem bennti á að þetta væri fýsilegur kostur fyrir notendur.  
![https://coredata.digital/wp-content/uploads/2022/07/utg-2.58-mynd-6-1024x390.jpg](https://coredata.digital/wp-content/uploads/2022/07/utg-2.58-mynd-6-1024x390.jpg)

Þeir sem óska eftir að fá þessa breytingu geta haft samband við þjónustuborðið, [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is) og við stillum afmörkunina.

**Enn meiri sveigjanleiki í framsetningu málsnúmera / verkefnanúmera**

Búið er að bæta möguleika á sveigjanlegri framsetningu máls- / verkefnanúmera.

Nú er hægt að setja saman málsnúmer/verkefnanúmer á nokkra vegu sem er samsettur úr mismunandi framsetningu einnig er hægt að raða númerinu saman á þá vegu sem hentar hverjum og einum. Sjá til dæmis:

* 2021-12-hlaupandi teljari (byrjar 1. hvers mánaðar)

* 2021 -- hlaupandi teljari (byrjar í upphafi árs)

* Teljari/ár

Þeir sem óska eftir að breyta framsetningu á málsnúmerum / verkefnanúmerum geta haft samband við þjónustuborð, [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is) og við förum yfir hvaða möguleikar eru í boði.

**CoreAdmin -- utanumhald og skráning þjónustureikninga hjá notendum**

Útbúin er möguleiki á skráningu og utanumhaldi á notendum í kerfisstjóraaðgangi CoreData (CoreAdmin). Nú er hægt að skrá þjónustureikninga í viðmótinu og viðhalda lykilorðum (e.secrets) á þeim. Þetta er mjög takmarkaður aðgangur fyrir umsjónamenn kerfisins og nauðsynlegur m.a. til að tryggja rétta notkun og reglulegar breytingar á lykilorðum fyrir slíka þjónustureikninga. Það er góð venja í öryggismálum að breyta þessum lykilorðum reglulega.

**Bætt afköst, minni lagfæingar og API viðbætur**

Síðast en ekki síst eru það allar þær minni lagfæringar sem þarf alltaf að taka með inn í allar útgáfur þar sem við erum að bæta afköst og gæði kerfisins auk þess að bæta við möguleikum í notkun á API lagi CoreData. Viðskiptavinir okkar eru í enn meira mæli að samþætta lausnir sínar við CoreData þannig að skjöl séu varðveitt á réttum stöðum. Þá skiptir miklu máli að þessar aðgerðir séu einfaldar og auðvelt að nota. Það sparar ykkur tíma í innleiðingu, samþættingu og viðhaldi á heildar tækniumhverfi ykkar.

Ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar, endilega sendið okkur línu á þjónustuborðið, [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is)

---
language: "is"
---
# 2.59 - CoreData útgáfulýsing

12. júlí 2022

Í þessari útgáfu eru margir spennandi eiginleikar sem notendur hafa verið að bíða eftir. Öryggismál eru okkur alltaf hugleikin og því eru nýjungar í útgáfunni sem bæta öryggi og aðgangsmál auk annarra minni lagfæringa.

**CoreData og Wise -- samþætting fyrirtækjanna**

Unnið hefur verið að því undanfarnar vikur að samþætta lausnir CoreData og Wise. Á komandi mánuðum munum við sjá enn frekari samþættingu fyrirtækjanna og lausna þeirra þó svo að rekstur verði aðskilinn fyrst um sinn. Fyrsta skref í samþættingu fyrirtækjanna er nýtt merki CoreData en það var hannað með merki Wise að leiðarljósi.  
![image-20221209-073519.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_124681e16106451454669fb3419f26d39e48ac1519aa8ac12e3a353c23957e4f/image-20221209-073519.png?cb=63a54d56340522ac2ea6cfa61b333bd0)

Þar með verða merki fyrirtækjanna í samsteypunni þannig að þau kallast á og gefa til kynna að þau styðja lausnarmengi hvers annars. Á komandi misserum munum við sýna nýjungar og viðbætur í þessum lausnum sem styrkja þessar samþættingar.  
![image-20221208-112933.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_bfbe1ec22a7bd31c325761a7979f5bf72392b7cf01373ebbbec226ec5e452ea2/image-20221208-112933.png?cb=d7559e71f1af43636e7ed6674404640d)

**Meðfylgjandi er lýsing á nýjungum í úgáfu 2.59:**

**Rafrænar undirritanir**

**Undirritun í CoreData**

Rafræn undirritun hefur nú verið uppfærð í CoreData. Ekki er þörf á að „senda skjal til undirritunar" nema þegar aðili hefur ekki aðgang að CoreData. Búið er að útleiða eldri útgáfu undirritunar og komin er fullgild rafræn undirritun með Dokobit þegar notað er „undirrita" eins og þegar notað er „senda til undirritunar".

Rafræn undirritun getur verið í öllum þeim löndum sem Dokobit styður. Hér getið þið kynnt ykkur þau lönd og svæði sem Dokobit styður: <https://www.dokobit.com/is/lausnir>  
![image-20221209-074110.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_712fc6273ede3fcda32e1cb6076663c015dc4a007bb8493666285aa44da144c7/image-20221209-074110.png?cb=854f486fbfe69ba86c8f350974478003)

**Senda til undirritunar í CoreData**

Töluverðar viðbætur og lagfæringar hafa verið gerðar á „senda skjal til undirritunar":

* Möguleiki að senda á ábyrgðaraðila og/eða tengda aðila verkefnis.

* Möguleiki að senda á viðskiptavini verkefnis.

* Auðkenning með rafrænum skilríkjum áður en skjal er undirritað.

* Undirritanir dregnar út úr skjalinu til upplýsinga í undirskriftarboxinu.

* Áminning -- minna undirritendur á að klára undirritun.

* Leita í stóru leitinni og finna á auðveldari hátt skjöl sem hafa verið undirrituð rafrænt.

* Skjölum aflæst eftir að undirritunarferli lýkur.

* Hægt að búa til HTML útgáfu af tilkynningarpóstum til að gera slóðir að skjölum læsilegri.

![image-20221209-074225.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_03cce1e8a24283630843e4f33c91a09dd42e28f8d2c8e95ac0308f8199894313/image-20221209-074225.png?cb=2537beb8ce36e8680626b6a8f675c119)

**Undirritunarferlið**  
![image-20221209-074332.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_e58ca67d419cd94664ab8196ed404066c9a4f9efdd332a128adc85def2ef915d/image-20221209-074332.png?cb=a204b293593ba1f89d779261fca2153f)

**Undirritun varin með auðkenningu:**

Þar sem undirritun er nú varin með rafrænni auðkenningu þá er tryggt að eingöngu þeir sem hafa aðgang og ætlað er að skrifa undir komist í skjalið. Hægt er að taka hakið af og þá þarf ekki að auðkenna sig áður en skjalið er undirritað.  
![image-20221209-074434.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_2aaec82f867cbd50eeb1b9c1e76b8f052e4d47071d6a510ce5694ddfdd308ea7/image-20221209-074434.png?cb=cf29308fdb8de091f942221e94871d0f)

**Minna undirritendur á að klára rafræna undirritun:**

Listi yfir alla þá undirritendur sem sent var á og eiga eftir að skrifa undir birtist og hægt er að velja þá úr lista.  
![image-20221209-074534.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_90e0cc583b27f849f4b63b5df5a4e42e0c01ef0a8c84a49ff133d9cb942af470/image-20221209-074534.png?cb=3778882ba98cf9fca33268fa96f33866)

Þeir sem óska eftir að fá frekari upplýsingar eða vilja láta virkja rafrænar undirritanir geta haft samband við þjónustuborðið: [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is)

**CoreAdmin -- bætt utanumhald og skráning aðgangs hjá notendum**

* Tímabil aðgangsopnunar.

* Bætt sýn á stöðu auðkenningar notanda.

* Tengja notanda við þegar skráðan tengilið.

* Allar aðgerðir í API lagi tengjast settum öryggisreglum.

**Tímabil aðgangsopnunar:**

Ákveðið tímabil sem opið er fyrir notanda. Þetta er gott að nota t.d. fyrir tímabundinn aðgang ytri notanda þ.a. ekki gleymist að loka fyrir notanda.  
![image-20221208-112547.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_2f6593b05b9618f8b01c45e44b96c841d69eb5bbfe7921337614952f1214934d/image-20221208-112547.png?cb=b6fc8c2ee7bdd6f93cb9545739ecf4b2)

**Bætt sýn á stöðu aðgangs notanda:**

Viðbótin „User inactivity" er öryggisstilling sem tryggir að ef notendur hafa ekki skráð sig inn í ákveðið langan tíma eru gerðir óvirkir í kerfinu. Þetta hjálpar fyrirtækjum að tryggja að ef það gleymist að loka notendum þá hafi þeir a.m.k. ekki ótímabundnar aðgangsheimildir að gögnum í kerfinu.  
![image-20221208-112517.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_7cc3f4c9a551644ae262ca6dd040d187787d792073f03e430e838ff5feb8fcc9/image-20221208-112517.png?cb=1ce42c799101653d5e4c7d1b93ca055d)

**Tengja notanda við þegar skráðan tengilið:**

Einfaldar skráningu notenda t.d. þegar verið er að stofna ytri notendur sem eru partur af öðru fyrirtæki en þínu.  
![image-20221208-112425.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_0be1df0f0a2ade9185ea9d63d27d750e670379114d04f92846116595bebb98bf/image-20221208-112425.png?cb=503b76a33bbaa04efa4f6422f0266314)

**Minni lagfæringar sem vert er að minnast á**

**Sýna lýsingu á svæði undir heiti svæðis**

Nú er hægt að sýna lýsingu á svæði sem skráð er í CoreAdmin (takmörkuð lengd). Haka þarf við í bakenda ef birta á lýsingu í framenda.  
![https://coredata.digital/wp-content/uploads/2022/07/utg-2.59-mynd-10.jpg](https://coredata.digital/wp-content/uploads/2022/07/utg-2.59-mynd-10.jpg)

**Tegund verkefna í lista og afmörkun**

Nú er hægt að bæta í lista og afmörkun upplýsinga um tegund verkefna (verkefni, yfirverkefni).  
![https://coredata.digital/wp-content/uploads/2022/07/utg-2.59-mynd-11-1024x407.jpg](https://coredata.digital/wp-content/uploads/2022/07/utg-2.59-mynd-11-1024x407.jpg)

**Bætt afköst, minni lagfæringar og API viðbætur**

Síðast en ekki síst eru það allar þær minni lagfæringar sem þarf alltaf að taka með inn í allar útgáfur þar sem við erum að bæta afköst og gæði kerfisins auk þess að bæta við möguleikum í notkun á API lagi CoreData. Viðskiptavinir okkar eru í enn meira mæli að samþætta lausnir sínar við CoreData þannig að skjöl séu varðveitt á réttum stöðum. Þá skiptir miklu máli að þessar aðgerðir séu einfaldar og auðvelt að nota. Það sparar ykkur tíma í innleiðingu, samþættingu og viðhaldi á heildar tækniumhverfi ykkar.

**Ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar, endilega sendið okkur línu á þjónustuborðið:** [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is)

---
language: "is"
---
# 2.60 - CoreData útgáfulýsing

## 14.febrúar 2023

Í þessari útgáfu eru spennandi hlutir sem margir hafa verið að bíða eftir en fyrst langar okkur til að tæpa á nokkrum hlutum sem skipta máli í rekstrinum.

## ISO27001 úttekt - Desember 2022

Í desember 2022 fórum við í gegnum úttekt á vegum BSI á Íslandi sem tók út öryggiskerfið okkar eða ISO27001. Það má með sanni segja að það hafi gengið vel því niðurstöður voru þær að 2 minni athugasemdir komu og 2 tækifæri til úrbóta.

## Innbrotsprófanir - Janúar 2023

Innbrotsprófanir voru gerðar í janúar 2023 og voru þær framkvæmdar af fyrirtækinu NCC Group sem við höfum nú unnið með í 2 ár. Niðurstöður þessara prófana voru mjög góðar þar sem ekkert markvert kom fram. Því má á meðal annars þakka því gæðastarfi sem er innanhúss og öryggismeðvitund starfsmanna fyrirtækisins.

## **Lýsing á nýjungum í úgáfu 2.60:**

### Sniðmát sem erfa gögn úr verkefnum (e.dynamic templates)

Nú er hægt að útbúa sniðmát sem taka lýsigögn úr verkefni og fara inn í fyrirfram skilgreind svæði á word sniðmáti. Sniðmát þarf að skilgreina á ákveðinn hátt og við höfum útbúið 2 sniðmát sem við munum deila með þeim sem vilja nýta sér þennan möguleika.

Notandi velur sniðmát (sem skilgreint er sem dynamic template í CoreAdmin) og við það kemur upp skjámynd fyrir lýsigögn viðkomandi skjals (sjá almennar notendaleiðbeiningar og leiðbeiningar fyrir CoreAdmin).

![image-20230214-120429.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_e453f14189978370cb965b506e19c7ff101fd350e2485338e45508f5c25beba8/image-20230214-120429.png?cb=9580c0a0cedaa642dd07c10db69c9ba3)

![image-20230214-121340.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_4aea596736abffc1af92acfe96be3493ccd27f9b1866487834a99c3080f0fafa/image-20230214-121340.png?cb=1b14a4d7895dedea41568f2699b0a21a)

**Þetta er viðbót (e.extension) sem þarf að virkja fyrir hvern og einn.**

**Vinsamlegast hafið samband við þjónustuborð til að virkja þessa viðbót.**

### Rafrænar undirritanir

Bætt loggun á undirritunum í audit fyrir rekjanleika.

Hægt er að flýta fyrir við rafræna undirritun með því að setja sjálfgefið símanúmer við undirritun í stillingum notanda og bætt við villuprófun (e.data validation) á skráningu símanúmer. Hér er átt við undirritun sem gerð er beint á skjal í CoreData (ekki senda til undirritunar).  
![image-20230214-121843.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_ec1f2e7b69f71280578e340cf2e1128cba5dbc5b39d6f65392ba449e8606f3dd/image-20230214-121843.png?cb=eabf65cf373da44105482cf5430a869c)

Lagfæring á undirritunum þ.a. þær yfirskrifi ekki hverja aðra þegar mikið er af undirritunum á sama skjali. Einnig er nú hægt að velja hvort undirritun er efst eða neðst á skjali.  
![image-20230213-125200.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_6e4628593e75766a101c01c2c14a7262aa2678ef17edd10487190c111860e1f3/image-20230213-125200.png?cb=2c59900e9155f64afba0ac36d0a42b87)

#### Bættar leitarskorður fyrir rafrænar undirritanir

Nú er hægt að bæta við stóru leitina þannig að notandi geti fundið þau skjöl sem hafa verið send til undirritunar og eru ennþá í undirritunarferli. Hægt er að leita að dagsetningum skjala sem hafa verið send í undirritun og hvenær þau voru undirrituð. Einnig er hægt að leita að þeim skjölum sem eru með undirritun. Þetta gerir notendum kleift að ná betri yfirsýn yfir þau skjöl sem eru í undirritunarferli.  
![image-20230213-130502.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_d9e09cbcb73c82255c50cd108495a3546857fd9f3e41b7f337caccbedc526cac/image-20230213-130502.png?cb=26c2e5ba7135fc264994abd11de941b6)

### Bætt leit

Nú er hægt að leita í athugasemdum. Athugsemdir hafa sérstakt icon í listanum.  
![image-20230213-131249.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_aba4caa8fd360eaf848b69f9a85dc79ee7a49e440d8860e76488f05f7379ff6e/image-20230213-131249.png?cb=4407ed8f77815458f49a2fe1eec0d509)

### SSO (Single Sign on) viðbætur fyrir Azure AD

Nú er búið að bæta virkni við SSO þ.a. betri stuðningur er við Azure AD. Bætt notkun á SAML og skírteinum þ.a. uppfærsla á skírteinum í Azure AD eiga ekki að triggera breytingar CoreData megin. Viðbætur í CoreAdmin hlutanum og stillingar í Microsoft Azure AD skjalaðar fyrir kerfisstjóra til að setja upp má finna [hér](https://docs.wise.is/cored/microsoft-azure-sso-implementation-steps). Bætt meðhöndlun á loggun við SSO innskráningu fyrir betri rekjanleika. Stuðningur í CoreData disknum og Outlook plugin eru á síðustu metrum í prófunum og koma út á næstu vikum.

### Forskoðun á skrám (e.preview)

Bætt villumeðhöndlun við forkoðun á stórum skrám. Áður voru að birtast villur í þeim tilfellum þegar skrár voru of stórar til að meðhöndla með forskoðun þó svo að ekkert væri að skjalinu, það þurfti bara að opna það til að sjá innihaldið. Nú koma sérstök villuskilaboð sem gefa til kynna að skráin sé stór og ekki hægt að útbúa forskoðun á skjalið.  
![image-20230127-180353.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_10bc9034d2d84e4d6a338680c1206ac3c4a320d8695790b47aafced1848007ea/image-20230127-180353.png?cb=bc4f23d89e0875190712d9c750bed97c)

### Breyting á verkefnasniðmátum - skráning verkefna vegna skjalalykla

Ef skjalalyklar hafa verið settir á svæði og verkefni hefur ekki verið hægt að breyta þeim verkefnum eftir að lyklar eru settir á. Nú er búið að laga það við t..d við flutning á verkefnum á milli svæða þar sem skjalalyklar eru á því svæði sem verkefnið er flutt á eða öfugt. Eins þegar skjalasniðmát eru skilgreind að þá er hægt að breyta skráningu þeirra og taka af skráningu lykla á verkefnin.

### Smærri lagfæringar og grunnbreytingar

* Umsýsla skjalalykla í verkefnasniðmátum

* Bættur stuðningur við flutning verkefna af svæðum með skilgreinda skjalalykla yfir á svæði sem ekki eru með skjalalykla

* UI röðun á notendum á verkefnum eru eftir tegund notanda og síðan í stafrófsröð

* Bætt villumeðhöndlun, hraði í aðgerðum og loggun í API lagi CoreData

* Hraðavandamál lagfærð þegar verið er að fara niður í verkefni og möppur í disknum (CDD)

* Bætt villumeðhöndlun í rafrænum undirritunum

* Bætt vistun á skilríkjum í Signet Transfer samþættingu

* Möguleiki að bæta við slóð á skjöl og verkefni þegar upplýsingar eru teknar út í excel til að vinna með

* Uppfærslur á grunn kóðasafni fyrir öryggi

* Innri þjónustur fluttar yfir á EKS úr eldra k8s

* Bættar prófanir (e2e test, integration test) fyrir gæðaferli og sjálfvirkar prófanir á CoreData

**Ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar, endilega sendið okkur línu á þjónustuborðið:** [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is)

---
language: "is"
---
# Heim

**Heim** er vinnusvæði þar sem notandi getur unnið með **verkefni, verkliði og skrár**sem tengjast honum. Smellt er á flipana til að opna viðmót.  
![image-20221018-142013.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_953bd77fec39ae67bc411d400e86452b5565b6af80186afebe30c579abe2bf35/image-20221018-142013.png?cb=c6579c2c2fce2a88421e2c2ade17163a)

## Yfirlit **(1)**

Í yfirliti **Heim** birtast**Nýleg verkefni, Nýlegir verkliðir** og**Flýtileiðir** sem tengjast innskráðum notanda.

### **Nýleg verkefni**

Sýnir nýjustu verkefni sem tengjast notanda en í þessum lista birtast verkefni sem notandi hefur stofnað og þau verkefni þar sem einhver annar hefur tengt notanda við, sem ábyrgðaraðila eða tengdan aðila. Hægt er að opna verkefni með því að smella á tengil fyrir verkefnið. Hægt er að sjá öll verkefni sem tengjast notanda með því að smella á **Sjá öll verkefni** en þá er sjónarhornið **Verkefni** **(3)** opnað þar sem er að finna lista yfir öll verkefni sem tengjast notanda. Til að skrá nýtt verkefni er smellt á **Nýtt verkefni** .

Sjá nánar um skráningu verkefnis í kafla um [Verkefni](https://docs.wise.is/cored/3-verkefni).

### **Nýlegir verkliðir**

Sýnir nýjustu verkliði sem tengjast notanda en í þessum lista birtast verkliðir sem notandi hefur búið til og þeir verkliðir þar sem einhver annar hefur tengt notanda við verklið. Hægt er að opna verklið með því að smella á tengil fyrir verklið. Hægt er að sjá alla verkliði sem tengjast notanda með því að smella á **Sjá alla verkliði** en þá opnast sjónarhornið **Verkliðir (4)** þar sem er að finna lista yfir alla verkliði sem tengjast notanda. Sjá nánar um skráningu verkliða í kafla um [Verkliði](https://docs.wise.is/cored/6-verkliir).

### **Flýtileiðir**

Sýnir öll þau verkefni, skrár og viðskiptavini sem notandi velur að bæta við sem sínar **flýtileiðir** .

Í þessu sjónarhorni er hægt að bæta við verkefni með því að að smella á **Bæta við** *.*Þá opnast leitargluggi þar sem hægt er að finna þau verkefni sem bæta á við.

* Smelltu á **Bæta við** . Veldu svæði og skráðu inn auðkenni eða heiti viðkomandi verkefnis. Smelltu á **leit** (stækkunarglerið) eða ýtið á **enter**.

* Til að velja er **smellt á viðkomandi verkefni eða skjal** og síðan á **Vista** neðst í glugganum.

![image-20221018-142413.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_79e341c8ff8b089eba51efd1f14fd0eadf1d123225cc71c18748b5045f0ab67b/image-20221018-142413.png?cb=32b57b472b62ec30aff48b62ba5eb0cb)

Þegar notandi er staddur í kerfinu; í verkefni, skrá eða viðskiptavini er stjarna ofarlega hægra megin sem smellt er á til að bæta við í flýtileiðir. Stjarnan er grá/blá **(1)** en verður græn/hvít **(2)** þegar notandi bætir því við **flýtileiðir** ***.***

![image-20221107-092518.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_1a7d262d2ab3caf23e7a4acddc9ceef5be65ac2fb6e93f9219812cfdde035856/image-20221107-092518.png?cb=acab3698291d30a96b1e9909838aba2c)

## Skrár **(2)**

Hér er einkasvæði notandans. Ekki er hægt að gefa öðrum notendum aðgang að þessu svæði.

Hægt er að útbúa ný skjöl, hlaða upp skjölum, setja í möppur og færa síðan yfir í verkefni ef við á.

## Verkefni **(3)**

**Verkefni** birtir lista yfir öll verkefni sem tengjast notanda. Hægt er að smella hvar sem er í línu í listanum til að opna verkefni. Hægt er að nota Afmörkun til hægri til að afmarka t.d. við verkefni sem notandi er ábyrgaraðili á. Sjá nánar í kafla um [Verkefni](https://docs.wise.is/cored/3-verkefni).

## Verkliðir **(4)**

**Verkliðir** birtir lista yfir alla verkliði sem tengjast notanda. Smellt er á verklið til að opna verkliðinn.

Hægt er að nota afmörkun til hægri til að afmarka t.d. við verkliði sem notandi er ábyrgaraðili á.

Sjá nánar í kafla um [Verkliði](https://docs.wise.is/cored/6-verkliir).

## Minnispunktar **(5)**

Séraðlögun og því ekki sjáanlegt hjá öllum viðskiptavinum.

Býður notendum upp á að gera minnispunkta við skjöl í kerfinu sem eru eingöngu fyrir notandann sjálfan, það er minnispunktarnir birtast ekki öðrum notendum í kerfinu. Í þessum flipa er listi af öllum minnispunktum sem notandinn hefur gert.  
![image-20221107-092826.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_516306ef75f287d07301633272667a0978ef5ca7ffbd52db2ff827aaf52f6782/image-20221107-092826.png?cb=71753783fd906f866de002810ed5616a)  
![image-20221107-091142.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_6ec7a62e9e8ad4bc6f746fcdbdbfd74a870d6464c28b2176cb813a47c2f10d15/image-20221107-091142.png?cb=1c5d04071ce858b60d323098063fbcb2)

## Stillingar **(6)**

### **Að breyta lykilorði**

![image-20221107-092556.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_9cccce780bfeafd9ce7af643fde80f8fd894553a5fd56bc41df62f5da10d478e/image-20221107-092556.png?cb=e0b2b7f074e7232a7119a00419e804ca)

* Smellt er á **Breyta lykilorði.**

<!-- -->

* Í gluggann þarf að skrifa inn **gamla lykilorðið** í efsta reitinn, skrifið því næst **nýtt lykilorð** í mið reitinn og **staðfestið lykilorð** í þeim neðsta. Smellið á **Vista** að því loknu. Við næstu innskráningu í kerfið þarf að skrá nýja lykilorðið.

![image-20221107-092703.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_889219caf65652bb6717ca423ee5f3d48677dacc082a62df954a7ccdf8f70087/image-20221107-092703.png?cb=7176c8b72f8a787a14c1cb484288deaa)

### ***Mynd***

Séraðlögun.

Hér er sett inn mynd af notanda. Ef engin mynd er valin, eru upphafsstafir notanda birtir.

---
language: "is"
---
# Skjalalyklar

Kaflinn lýsir því hvernig setja á upp **skjalaflokkunarkerfi** í CoreData og viðhalda því.

Athugið að skjalaflokkunarkerfi eru einnig kölluð; málalykill, bréfalykill, efnisflokkun o.fl.

## Skjalalyklar -- Yfirlit

Upphafssíðan veitir yfirsýn yfir gildandi skjalaflokkunarkerfi auk aðgerða til þess að breyta og viðhalda flokkunarkerfinu.

Uppsettan skjalalykil er hægt að flytja rafrænt inn í kerfið.  
![image-20221124-105852.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_9fc310d9c06fcadc2b577ce8ff8201aed1c78e02587c90e93285b10d152e4d53/image-20221124-105852.png?cb=e69981370d987c9b7d6df9d7d116fec4)

## Hugtök og uppbygging skjalaflokkunarkerfis

### Almennt um skjalaflokkunarkerfi

Skjalaflokkunarkerfi eru stigveldisskipuð frá hinu almenna til hins sértæka.

Skjalalykill, málalykill og efnisflokkun eru orð sem jafnan eru notuð um skjalaflokkunarkerfi.

* Efsta þrep er **rót**kerfisins og skilgreinir m.a. gildistíma þess.

* Annað þrep eru svokölluð **efnissvið**sem eru undirskipt í flokka.

* Þriðja þrep eru aðalflokkar, sem ýmist hafa undirflokka eða ekki. Almenn regla er að ekki má vista í skjöl í aðalflokka heldur einungis undirflokka hans.

* Fjórða þrep eru undirflokkar aðalflokka.

* Fimmta þrep eru undir-undirflokkar undirflokka o.s.frv.

### Hugtök og uppbygging skjalaflokkunarkerfa CoreData

|----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------|
| **Series** er undirskiptur flokkur þ.e. hefur undirflokka. **Ekki er hægt að vista skjöl beint í series.** **Category** er **ekki** undirskiptur flokkur. Skjöl eru vistuð undir categories. |

Skjalaflokkunarkerfi í CoreData byggja á **Series** og **Categories.**

Kerfið skilgreinir **Series** og**Categories** sjálfkrafa eftir því hvar nýtt svæði er staðsett (beint undir rót eða ekki)

**Category**er notað fyrir flokka sem greinast ekki niður í frekari flokka.

* Category er einkum notað fyrir aðalflokka og/eða undirflokka.

* Categories hafa eigindi á við aðgangstakmarkanir og geymslu- og grisjunaráætlun.

* Skjöl eru vistuð beint undir categories.

Uppbygging skjalaflokkunarkerfa í CoreData:  
![image-20221124-110159.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_93befd9fd8a61a0fecb1a9ec8c753509e841a5bf779950f042ae718910b906fb/image-20221124-110159.png?cb=73cafc5625e158d27a5bd1dbbffaf8cb)

## Grunnupplýsingar um skjalaflokkunarkerfið

Til að setja upp nýtt skjalaflokkunarkerfi, t.d. vegna gildistíma skjalalykla, er smellt á **Add Fileplan Root.**

Þá kemur upp skráningarviðmót þar sem grunnupplýsingar eru skráðar þ.e. titill, lýsing og gildistími.  
![image-20221124-110308.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_8c70fc6df459d9dd123df0640296ab6e1c767605fa1205895369972e4944a3ea/image-20221124-110308.png?cb=e0662853214a68a4ba7c9052c29be842)

Til þess að breyta grunnupplýsingum er smellt á **Edit** á yfirlitssíðunni, breytingar gerðar og síðan smellt á **Vista / Save** eða **Cancel**, eftir því sem við á.

## Búa til nýjan skjalaflokk

Staðsetning skjalaflokksins: Mikilvægt er að vera rétt staðsett/ur þegar flokkurinn er búinn til svo að hann verði til á réttum stað.

* Skjalaflokkur beint undir rót þ.e. efnissvið? Ef já, þá þarf að velja rót skjalaflokkunarkerfisins og síðan bæta við yfirflokki eða undirflokki.

* Er skjalaflokkurinn undirflokkur annars flokks? Ef já, þá þarf að velja flokkinn sem við á og síðan bæta við undirflokki.

Búa til óundirskiptan skjalaflokk (categories). Smelltu á þann flokk sem á að vera yfirflokkur flokksins og því næst á **Add Fileplan Category.**  
![image-20221125-102842.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_58587a6a87c2499a14a810814ad62c92a7237cc0f95cd99024b0b7b580ac34ec/image-20221125-102842.png?cb=29512961ac114afc11367716e9bbf43e)

![image-20221125-102948.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_240241c703e6a3e6a88c36738b3a07db694e2555c45bfa6db59ffd2834d646b2/image-20221125-102948.png?cb=4c8386d0ef411ece0d3ea50e66460355)

Skráðu upplýsingar um skjalaflokkinn þ.e. heiti, lýsingu/tilmæli og breyttu númeri ef þess þarf. Taktu eftir að fyrri hluti númer skjalaflokksins er dreginn af yfirflokknum (series). Þegar skráningin hefur verið vistuð verður flokkurinn sýnilegur í skjalaflokkunarkerfinu.

Stilltu eigindi skjalaflokksins þ.e. aðgangstakmarkanir og geymslu- og grisjunartíma ef við á (sjá kaflana [Aðgangsstýringar](https://docs.wise.is/cored/5-oryggi#id-5.%C3%96ryggi-A%C3%B0gangur-5.4A%C3%B0gangsst%C3%BDringar) og [Óútkljáð](https://docs.wise.is/cored/6-outklja))

## Eyðing verkefnis og skjala með skjalalykli

Í CoreData er **ekki** hægt að eyða út **verkefni** með skjalalykli nema í gegnum CoreAdmin.

Verkefnum án skjalalykla er hægt að eyða í framendanum, þ.e. ekki í CoreAdmin.

**Skjölum** með skjalalykli er hægt að eyða í gegnum framendan eða gegnum ferlið hér fyrir neðan:

Til að finna verkefni með skjalalykli er:

a) Farið í flipann **Skjalalyklar**

b) Veljið skjalalykilinn sem verkefnið er skráð á

c) Velja flipa sem heitir **Skjöl**

d) Velja verkefnið / skjalið sem á að eyða. Þegar verkefnið / skjal hefur verið valið kemur upp eftirfarandi valmynd, þar er hægt að smella á **Ruslatunna**til að eyða verkefninu / skjalinu.  
![image-20221124-110740.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_eb866316609521dc1adbe838428cde7af63851f9d772b06cd114ed6dcd1c0afe/image-20221124-110740.png?cb=1d879c614780d3885e43a5a4b4fa3b68)

---
language: "is"
---
# 2023.1 - CoreData útgáfulýsing

## 12.maí 2023

Útgáfunúmerum verður nú breytt frá og með þessari útgáfu þ.a. í stað þess að telja áfram úr 2.60 í 2.61 munum við nú hafa númerin á útgáfum CoreData sem ártal þegar útgáfan er gefin út og síðan hlaupandi númer útgáfunnar innan ársins. Þannig ætti númerið að gefa betri upplýsingar um hversu ný útgáfa er hverju sinni. Markmið CoreData er að gefa út nýjar útgáfur 3-4 sinnum á ári.

## **Lýsing á nýjungum í úgáfu 2023.1:**

Tvær nýjar aðgerðir eru megin breytingar þessarar útgáfu. Í fyrsta lagi að "Senda skjal í stafrænt pósthólf" (<https://island.is/minarsidur/postholf> ) og í öðru lagi að "Afrita verkefni".

### Senda skjal í stafrænt pósthólf

Einstaklingar og lögaðilar eiga sitt stafræna pósthólf. Þar eru birtar sértækar, persónulegar upplýsingar og skilaboð frá hinu opinbera til einstaklinga og fyrirtækja. Nú geta þau félög og fyrirtæki sem heyra undir hið opinbera og eru í viðskiptum við CoreData sent skjöl til aðila í stafrænt pósthólf úr CoreData kerfinu.

Áður en þessi viðbót er virkjuð þurfa stofnanir að setja sig í samband við Stafrænt Ísland og sækja um heimild fyrir þessu og beiðni um að koma þessari samþættingu á.

Notandi getur nú úr verkefni valið að senda ákveðið skjal í stafrænt pósthólf á einn eða fleiri viðtakendur.  
![image-20230512-133131.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_6610a4fa39f514ca782a51ed0aeca0a52ad70c67bd7b92f4ede298137cd2a9a6/image-20230512-133131.png?cb=0e79007c36445dfbdb062f94632df1de)  
![image-20230512-150542.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_98803b488312d1ed2c9a795d4455f6480a4063bdba981d7e49abb5eef86bbcd9/image-20230512-150542.png?cb=2895f05374181da28cf0cb22f66e609a)  
![image-20230512-150718.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_0652bbf642211dab4b7eae61f2ee78dff0f7e80f96abd72aec873db52f9a835e/image-20230512-150718.png?cb=d106f1946c1db8b325102fc5db975351)

Hægt að er að leita að skjölum sem send hafa verið í stafrænt pósthólf í "stóru leitinni". Það þarf að bæta þeirri afmörkun inn í global leit þegar verið er að virkja viðbótina.

Lesa má nánar um stafrænt pósthólf [hér](https://island.is/s/stafraent-island/thjonustur/stafraent-postholf).

**Þetta er viðbót (e.extension) sem þarf að virkja fyrir hvern og einn.**

**Vinsamlegast hafið samband við þjónustuborð til að virkja þessa viðbót.**

### Afrita verkefni

Nú er hægt að afrita verkefni sem tekur lýsigögn og verkliði úr verkefni og afritar þau yfir í nýtt verkefni en hægt er að breyta lýsigögnum í afritunarferlinu.  
![image-20230512-124053.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a9d319cd8849b0f8712cfc63a61a96613fcaaa9e76aeab44ff43efc523851b8d/image-20230512-124053.png?cb=c1d7e6e8c3732b2782d5fe66dd18184f)

![image-20230512-124426.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a6209fc9d0cd1c25e1fb1e40e153c1dfb92777579c57e8802f9e85bed22d128c/image-20230512-124426.png?cb=6ddf5d8834356b9b6759cba5c79d6a74)

Ef titli er ekki breytt í afritunarferlinu þá kemur *(afritað)* aftast í titil á undan málsnúmeri / verkefnanúmeri.  
![image-20230512-124148.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a5a1cb5909479a79286020bb1fa5763f36331089674b2b417e8f1470b63080de/image-20230512-124148.png?cb=40df0fd97d0324ed0c6585ee5405df9a)

**ATHUGIÐ**að ef verkliðir eru skráðir á verkefnið þá afritast þeir einnig með í nýja verkefnið en engin skjöl fylgja með í afrituninni. Mögulega þarf að endurglæða síðuna til að fá verkliði inn í nýja verkefnið.

### Smærri lagfæringar og grunnbreytingar

* Leit að notendum úr verkefnum bætt

* Bætt villumeðhöndlun, hraði í aðgerðum og loggun í API lagi CoreData

* Hraðavandamál lagfærð þegar verið er að fara niður í verkefni og möppur

* Undirbúningur fyrir Ubuntu uppfærslu sem farið verður í eftir þessa uppfærslu

* Uppfærsla á innri kóða-library'um

* Herða á öryggi vegna mögulegra netárása

* Bæta skilaboð við að forskoða skjöl sem ekki studd af preview server (skjöl sem ekki er hægt að fá sýnishorn af)

**Ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar, endilega sendið okkur línu á þjónustuborðið:** [coredata@coredata.is](mailto:coredata@coredata.is)

---
language: "is"
---
# 2023.2 - CoreData útgáfulýsing

## 6. nóvember 2023

Þriðja útgáfa ársins er tilbúin og margt hefur verið í gangi hjá CoreData teyminu.

Fyrir utan það að vinna að breytingum á kerfinu er búið að vera að vinna í sameiningu CoreData og Wise og fjárhagsleg sameining gekk í gegn 01.07.2023. Það hefur leitt af sér vinnu við að taka upp önnur tól og aðlaga ákveðna vinnu á milli kerfa. Það helsta sem snýr að breyttu verklagi teymisins er upptaka Atlassian afurða við utanumhald á sprettum og skipulagi á vinnu þróunarteymisins. Teymið var fljótt að aðlagast notkun á Jira, Tempo og Confluence enda afar reynslumikið teymi.

Nýr samstarfssamningur við Dokobit var gerður í september 2023, svokallaður "Solution partner agreement" sem leiðir af sér ennþá betri samstarfsmöguleika og endursölu Wise á afurðum og samþættingu á lausnum Dokobit með lausnum Wise.

## **ISO27001 úttekt - Nóvember 2023**

Þann 1. og 2. nóvember sl. fórum við í gegnum endurvottun á vegum BSI á Íslandi sem tók út öryggiskerfið okkar eða ISO27001. Það má með sanni segja að það hafi gengið mjög vel því niðurstöður voru þær að aðeins voru tiltekin 3 tækifæri til úrbóta.

## **Lýsing á helstu breytingum í úgáfu 2023.2:**

Mikið af áhugaverðum breytingum má finna í þessari útgáfu. Sennilega er stærsta og flóknasta breytingin sem hefur áhrif á þá notendur sem nýta sér að senda skjöl í rafræna undirritun. Við vorum að færa okkur yfir á nýrri gerð vefþjónustu sem mun í framhaldinu opna á tækifæri og breidd í rafrænum undirritunum í kjölfarið.

Aðrar breytingar eru m.a. viðbætur við fyrstu útgáfu af aðgerðinni að "Senda skjal í stafrænt pósthólf" ([Mínar síður - Ísland.is](https://island.is/minarsidur/postholf)) til þess að bæta sýn á þau skjöl sem send hafa verið í stafræna pósthólfið og bæta aðgengi og upplifun notenda að þeim skjölum í CoreData lausninni.

Breytingar á viðmóti til að auka skilvirkni notenda og bæta notendaupplifun. Sérstaklega í magnaðgerðum eins og að færa og eyða fjölda verkefna.

Margar breytingar hafa verið gerðar sem tengjast skilaverkefnum til Þjóðskjalasafns Íslands og bæta gæði þeirra gagna og einfalda ferlið við rafræn skil. Verið er að vinna í tveimur skilaverkefnum með viðskiptavinum í dag.

Gagnaflutningar (e.data migration) í og úr kerfinu eru einnig í vinnslu. Verið er betrumbæta það tól sem notað er við að draga gögn út úr CoreData kerfinu og koma á form sem þarf til að skila til Þjóðskjalasafns og héraðsskjalasafna. Einnig er því tengt verið að vinna ákveðið grunn "flutningslag" (e.pattern and templates) til að koma gögnum á einfaldari máta úr öðrum skjalakerfum inn í CoreData og mikill árangur hefur náðst þar með viðskiptavinum sem eru að flytja sig í CoreData úr öðrum sambærilegum málaskrár- og skjalakerfum.

### Senda skjal í rafræna undirritun

Sendingarglugginn breytist og hægt er að velja hvort send er tilkynning með tölvupósti eða sms ásamt því að hægt er að senda skilaboð til þeirra sem eiga að undirrita skjalið.  
![image-20231102-141553.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_d7275776cc3504af4f44271464197d4b8eb96c77c45b3af9c3851fa6623ea18f/image-20231102-141553.png?cb=82af8056ed3bccd9e47383d3227fa418)

Sjá nánar [hér](https://docs.wise.is/cored/senda-til-undirritunar-fra-og-me-utgafu-2023-2).

### Senda skjal í stafrænt pósthólf

Einstaklingar og lögaðilar eiga sitt stafræna pósthólf. Þar eru birtar sértækar, persónulegar upplýsingar og skilaboð frá hinu opinbera til einstaklinga og fyrirtækja. Nú geta þau félög og fyrirtæki sem heyra undir hið opinbera og eru í viðskiptum við CoreData sent skjöl til aðila í stafrænt pósthólf úr CoreData kerfinu.

Ný yfirsýn er komin á stiku til vinstri fyrir öll skjöl sem send hafa verið í Stafrænt Pósthólf  
![image-20231102-145846.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_333f2150f907799d33f45c38673c2a5da75cb56176c7bada8bd7ef3795f83ad2/image-20231102-145846.png?cb=fcddf47125043f1643d2b38d7c842cdc)

Skerpt er á sýn þegar skjöl eru send á marga og bætt við upplýsingum um hvort skjal hefur verið skoðað af viðtakanda:  
![Digital Mailbox improved data box.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_cc06aea38acacd50120c037535b52b8446bbc82ca8161edf4bf8ec7e0d75b977/Digital%20Mailbox%20improved%20data%20box.png?cb=cfe0e854a996a66d380c8ac216c60fd2)

![Digital Mailbox improved data last viewed.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_cfe0c207628f9b6647c308e85f5ce817d2baf29f06acbcd7f58c9500b6dfa845/Digital%20Mailbox%20improved%20data%20last%20viewed.png?cb=cadf088545a54c87c244a21d3637076a)

### Bætt skilvirkni notenda og notendaupplifun

Breytt uppsetning við skráningu á lýsigögnum á skjöl til að styðja við bætt gæði gagna og skráninga og unnið í samráði við notendahóp CoreData (skjalastjórar í stærri fyrirtækjum). Notendur áttuðu sig ekki alltaf á því að þeir þyrftu að velja og breyta skjalategundum þegar þeir voru að skrá skjöl í CoreData.

**Fyrir breytingu:**  
![dynatype and file - before.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_4e501ee385ad970a77f45c89bb4d4bf016cfe8219cb29e66928ae2b417cad962/dynatype%20and%20file%20-%20before.png?cb=15d2de36c01a563dc6c871ed52020c3a)

**Eftir breytingu:**  
![dynatype and file - after.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a48fbb8896adaa5490d4d842639d7fe335133db49765ecdb30656f5f21da3d7a/dynatype%20and%20file%20-%20after.png?cb=bde04f18df361915196cec3247f563c2)

#### Bættur stuðningur við að eyða mörgum verkefnum:

![Multi delete projects.gif](https://docs.wise.is/__attachments/a_3654a1f153beeb4d9e325d991d4f72a67f0ae4089289262082cd3de72f0b9f99/Multi%20delete%20projects.gif?cb=47f784f5ec7f3c8515eb37242b85923d)

#### Bættur stuðningur við að flytja mörg verkefni

![Multi move projects.gif](https://docs.wise.is/__attachments/a_beb8d9699c5c57a6cf48d4d738514be93e72e4da4d081b1899719be6a0f1ec70/Multi%20move%20projects.gif?cb=f5e99a75e3124f21059c66df319be83d)

### Uppröðun svæða og betri skilaboð

Uppröðun svæða hefur verið breytt og þau raðast nú í stafrófsröð þannig að yfirsýn verður einfaldari.

Við höfum einnig bætt skilaboð við læsingu skjala eftir því hvaða aðgerðir verið er að framkvæma.

Sjálfgefin skilaboð:  
![Default lock message.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_18729946c4bea1c859977a8541e4bb6e2124e4fe8b7f8d90fabd8ee52c9fa0bc/Default%20lock%20message.png?cb=e9418f806f959a21dc3004ac92741d66)

Skilaboð þegar skjal er sent í undirritun:  
![Signing lock message.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_0cdce5595cfdd7728f7bed0b8bec79501d2138bb055eb070152f5daa0b172671/Signing%20lock%20message.png?cb=85d62c375c72cc987615d3ca4303da73)

Skilaboð þegar skjal er sent í Stafrænt pósthólf:  
![Digital Iceland lock message.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_85d4435e3bf55209ba00d3c18a219aa4e77c30d9a3de5987a3cec7242bbbf845/Digital%20Iceland%20lock%20message.png?cb=21af3ecc8bff0b689993defcce8783d8)

CoreData logo sést nú á flipa í vafra sem einfaldar notendum að sjá þegar þeir eru með fjölda glugga/flipa opnum í vafra. Var blár hringur en er nú merki CoreData.  
![CoreData icon fyrir vafra.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_8654936e9c2fc3399179cb18ed1552553952ed20be3c520db37993968fc56a7d/CoreData%20icon%20fyrir%20vafra.png?cb=ccb73dc279331dd85f72fceb429fefda)

### Tenging milli viðhengja og tölvupósts

Bætt gagnagæði með tengingu milli viðhengja úr tölvupóstum við þann tölvupóst sem viðhengið kemur úr.  
![Reference between email and attachment.gif](https://docs.wise.is/__attachments/a_28aff4e09f9bf6ead6fd4eb1a7fb664f5df2a934db3b980ff218eb55e28b6896/Reference%20between%20email%20and%20attachment.gif?cb=d133f73739a9cc8ee5347b9f17afc242)

### Skjalastjórnun og rafræn skil

Endurgerð á ferli og flæði við að taka gögn út úr CoreData til að setja inn í tól sem notuð eru við rafræn skil til Þjóðskjalasafns Íslands. Ferlið er nú mun styttra og einfaldara til að styðja það verklag sem raungerist í skilaverkefnum þar sem oft þarf að fara í gegnum nokkrar ítranir áður en lokaskil geta farið fram og Þjóðskjalasafn getur staðfest endanleg skil.

Einfaldað ferli við að setja upp og uppfæra skjalalykla og nýtt skjalalyklatré (e.fileplan root). Nú getur skjalastjóri tekið eldri skjalalykil út í excel og unnið með hann þar í þessu uppfærsluferli áður en nýr lykill er fluttur inn.

### Gagnaflutningar - tól og tæki

Þegar verið er að innleiða CoreData hjá viðskiptavinum þarf stundum að flytja gögn t.d. úr öðrum kerfum og af sameignardrifum. Þetta gagnaflutningatól er innra tól fyrir starfsmenn CoreData til að styðja betur við gagnaflutningana og flýta fyrir þeim verkefnum. Svona gagnaflutningar geta oft orðið óheyrilega dýrir og eru stundum stór partur af innleiðingu nýrra kerfa, sérstaklega svo hægt sé að loka eldri kerfum og færa alla notkun yfir í nýja lausn sem verið er að innleiða.

Viðbætur í API lagi CoreData til að styðja við þessa gagnaflutninga og útfærsla á þessum mynstrum (e.patterns) við ákveðin verkefni.

### Stöðugar umbætur: Minni lagfæringar, bætt kjarnavirkni og afköst

* Undirbúningur fyrir uppfærslu á gagnagrunni

* Bætt ferli við uppfærslu á kerfinu hjá viðskiptavinum

* Bæta við sjálfvirkum prófunum í kerfinu til að bæta gæði prófana

* Uppfærsla á indexum í gagnagrunni til að hraða fyrirspurnum og lagfæringar á fyrirspurnum

* Bætt við söfnun gagna í minni (e.caching) til að flýta aðgerðum

* Uppfærsla á tæknilegum innviðum

* Öryggisuppfærslur

---
language: "is"
---
# 2023.3 - CoreData útgáfulýsing

## 26. janúar 2024

Fjórða útgáfa ársins 2023 er tilbúin til dreifingar og margt var í gangi hjá CoreData teyminu á síðasta fjórðungi nýliðins árs.

Samhliða þessari uppfærslu erum við að uppfæra gagnagrunna úr PostgreSQL-11 í PostgreSQL-15. Hér er verið að stökkva um nokkrar útgáfur og er undirbúningur búinn að standa yfir um nokkurt skeið. Ferlið er orðið nokkuð vel smurt eftir nokkrar ítranir og væntur niðritími kerfa er lágmarkaður. Gagnagrunnsuppfærslan mun fara fram samhliða eða aðeins á undan nýju útgáfunni.

Endurbætur á skilum til Þjóðskjalasafns Íslands og héraðsskjalasafna hafa verið mikil á þeim tíma sem þessi útgáfa var unnin. Borgarskjalasafn Reykjavíkur valdi CoreData til að keyra "pilot" verkefni og vera fyrsti aðili til að skila rafrænt til safnsins. Vinnan hefur gengið mjög vel og nú er verið að vinna að síðustu endurbótunum sem miða af því að stytta ferlið og bæta gæði svo um munar.

## **Lýsing á helstu breytingum í útgáfu 2023.3:**

Mikið af áhugaverðum breytingum má finna í þessari útgáfu:

* Ný tegund undirritunar stendur nú til boða sem einfaldar undirritanir fyrir þá aðila sem ekki hafa rafræn skilríki. Þessu fylgja þó ákveðnar takmarkanir að því leyti að þessar undirritanir eru ekki fullgildar.

* Bætt stýring á hvaða notendahópar mega senda til undirritunar, haft umsjón með skjölum í undirritunarferli og eins er núna hægt að senda skjal aftur til undirritunar.

* Bætt flytja út virkni þ.e. að hægt er að flytja upplýsingar úr CoreData með því að taka þær út í excel.

* Bæta við virkni til að gera breytingar á mörgum samningum í einu.

* Bæta við virkni til að gera breytingar á mörgum viðskiptavinum í einu.

* Vista skjöl sem pdf.

* Vistun viðhengja úr tölvupósti um leið og pósturinn er vistaður í CoreData.

* Lagfæring á skráningu tölvupósta í möppur verkefna ("Send to CoreData" í Outlook viðbótinni).

* Bætt skjölun fyrir forritara sem eru að skrifa á móti CoreData vegna samþættinga.

* Uppfærsla á gagnagrunni.

### Ný tegund undirritunar - einföld undirritun með sms einskiptis kóða

Hægt er að virkja nýja viðbót sem einfaldar undirritanir fyrir þá aðila sem ekki hafa rafræn skilríki. Þessu fylgja þó ákveðnar takmarkanir að því leyti að þessar undirritanir eru ekki fullgildar. Nánari útskýringar má finna hér: <https://blog.dokobit.com/is/nyjungar/vid-erum-ad-hefja-nyja-leid-til-ad-skrifa-undir/> .

Þess má geta að ódýrara er að framkvæma þessa tegund undirritunar þar sem hún notar ekki eins dýrar aðferðir við auðkenningu og undirritun.

Hafa þarf samband við okkur ([coredata@wise.is](mailto:coredata@wise.is)) til að virkja **einfalda undirritun**.

### Bætt stýring á senda til undirritunar virkninni

Bætt stýring á hvaða notendur geta sent skjöl til undirritunar og haft umsjón með skjölum í undirritunarferli. Ef enginn aðgangshópur er tilgreindur með undirritunarumsjón (e. signing managers) þá hafa allir notendahópar leyfi til að senda skjal til undirritunar. Eingöngu sá sem sendir skjal til undirritunar getur sent áminningu og hætt við undirritun skjalsins. Með þessum hætti er hægt að stýra hvaða hópar notenda mega framkvæmda þessar aðgerðir. Áður gat aðeins sá sem sendi skjalið í undirritun eða "Administrator" notandinn hætt við undirritun og/eða sent áminningu. Núna er hægt að velja þá aðgangashópa sem mega hafa þessi réttindi en þá er einnig aðgerðin að senda skjal til undirritunar bundin við þann hóp.

Með þessari uppfærslu er einnig hægt að senda skjal sem búið er að undirrita aftur til undirritunar.

### Flytja út virkni

Bætt flytja út virkni þ.e. að hægt sé að vinna með upplýsingar úr CoreData með því að taka þær út í excel. Nú er hægt að flytja út upplýsingar um alla samninga úr samningasýninni yfir í excel. Bæta þarf samningum við í "Exports extension" til að virkja þennan möguleika. Valmöguleikinn birtist í fellilista í tannhjólinu í samningasýninni.  
![066c3c96-c28f-44c3-81ac-36646e3bc736#media-blob-url=true&id=f7cfd72e-d8ed-43f4-ab76-d9f4bdf8586f&collection=&contextId=58478&height=175&width=955&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_010fd807aba8f4d8590e00c78c1b0c18330cae40496ac9530582f67cc50400de/066c3c96-c28f-44c3-81ac-36646e3bc736%23media-blob-url=true&id=f7cfd72e-d8ed-43f4-ab76-d9f4bdf8586f&collection=&contextId=58478&height=175&width=955&alt=?cb=b8d32386fe620b412295db8647374fa1)

Þegar listinn er tilbúinn birtist tilkynning sem tilgreinir heitið á skránni og hún fer í "downloads" möppuna.  
![27e833f9-c11d-4fab-a0db-3d6a56174bc2#media-blob-url=true&id=05b517ac-8935-4b8c-bbd1-3f1f12045bf9&collection=&contextId=58478&height=51&width=465&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_6106cadd94644f54c2e1c0fa3aba6b3f236dbc800a385ddca8878374eb354fa0/27e833f9-c11d-4fab-a0db-3d6a56174bc2%23media-blob-url=true&id=05b517ac-8935-4b8c-bbd1-3f1f12045bf9&collection=&contextId=58478&height=51&width=465&alt=?cb=3f5328b7b4097c92ccf2f5ea7ddaad4f)

Hafa þarf samband við okkur ([coredata@wise.is](mailto:coredata@wise.is)) til að virkja **Flytja út** í samningasýn.

### Breyta mörgum - Samningar

Bætt hefur verið við virkni til að breyta mörgum samningum í einu. Virknin er möguleg ef "Multi edit" extension er virkjuð. Þá er mögulegt að velja hvaða svæði mega vera virk í "breyta mörgum" hamnum. Svæðin eru skilgreind undir: `CoreAdmin` → `Configuration` → `Dynatypes` → `Contracts` → (`Enable Multiedit` svæðin):  
![93119d0e-675d-4dba-9042-53e85483ce17#media-blob-url=true&id=a5eb6023-c4a1-4202-8a1b-dccd8bff1d2a&collection=&contextId=58473&height=575&width=713&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_172b62a89012e659fc9a99e05809031935c3f41c4201a7b6961bc17f92212776/93119d0e-675d-4dba-9042-53e85483ce17%23media-blob-url=true&id=a5eb6023-c4a1-4202-8a1b-dccd8bff1d2a&collection=&contextId=58473&height=575&width=713&alt=?cb=3378679cf2d2b3da5bc753a137a3c7b7)

Þegar þetta hefur verið stillt af þá birtist hnappurinn ef einn eða fleiri samningar eru valdir.

ATH. endilega ekki hika við að hafa samband ef ykkur vantar aðstoð við þetta, sjá nánar um **Configuration**í **CoreAdmin** [hér](https://docs.wise.is/cored/7-configuration).  
![9929fd4e-7670-4fa4-af75-2b1964668a6b#media-blob-url=true&id=27c04859-4721-474b-bd13-b2cecb2f76c3&collection=&contextId=58473&height=278&width=960&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_5adb8ffedc31d56a501be2427504ee8d6b98eaad86c05c88ef77649c8430b9b2/9929fd4e-7670-4fa4-af75-2b1964668a6b%23media-blob-url=true&id=27c04859-4721-474b-bd13-b2cecb2f76c3&collection=&contextId=58473&height=278&width=960&alt=?cb=af4e870208b4dfa70458b2811f7f93fa)

Ef við veljum nokkra samninga þá birtast þau svæði sem stillt hafa verið undir skjalategundinni "Samningur":  
![b765bf0f-152c-4315-b2cb-59afab443808#media-blob-url=true&id=db5922aa-c355-4470-9ae2-fa975524a087&collection=&contextId=58473&height=554&width=641&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_ed4b34aa8a698f3d679eee808362591a1ecec816a33f9daeca2979f22d6d5d8a/b765bf0f-152c-4315-b2cb-59afab443808%23media-blob-url=true&id=db5922aa-c355-4470-9ae2-fa975524a087&collection=&contextId=58473&height=554&width=641&alt=?cb=e30c374744331a8773847a5600a30c88)

Þegar svæðin sem breyta á hafa verið valin, gildum breytt og smellt hefur verið á **Vista** / **Save**þá kemur staðfestingargluggi eins og þessi:  
![e7f2804c-a9ce-4209-8408-af792ec3e6d3#media-blob-url=true&id=577dbac5-729e-44e9-a910-9b339ffbf946&collection=&contextId=58473&height=170&width=638&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_feedef86175b68550c869d8f4f5299fcf05aef0d329903e4b2503630a359275f/e7f2804c-a9ce-4209-8408-af792ec3e6d3%23media-blob-url=true&id=577dbac5-729e-44e9-a910-9b339ffbf946&collection=&contextId=58473&height=170&width=638&alt=?cb=06563f4b5921c3c6a19570e6f37781ff)

Við höfum þrjá valmöguleika í þessum glugga:

1. `Confirm and save` vistar breytingar.

2. `Cancel` lokar glugganum og hættir við aðgerðina.

3. `Back` fer til baka í gluggan þar sem valið er hverju á að breyta.

   Ef smellt er á **Staðfesta og vista** / **Confirm and save** þá biritst þessi staðfesting ef breytingar vistuðust:

![e5920645-c3b4-4624-9701-140cbe3aab0a#media-blob-url=true&id=f1c439fa-f04e-46bf-9df4-357a7f6b2491&collection=&contextId=58473&height=58&width=220&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_59fcb7645c8c29067ef14f9b37e698c15a17e487e505356e4df47807af6590a7/e5920645-c3b4-4624-9701-140cbe3aab0a%23media-blob-url=true&id=f1c439fa-f04e-46bf-9df4-357a7f6b2491&collection=&contextId=58473&height=58&width=220&alt=?cb=1d2da7b3c0c226f81fef494833b0aa1b)

### Breyta mörgum - Viðskiptavinir / Tengiliðir

Bætt hefur verið við virkni til að breyta mörgum viðskiptavinum / tengiliðum í einu. Sama á við eins og um virkni við breyta mörgum á samningum nema hvað "base type" fyrir dynatype er nú contacts (einstaklingur og fyrirtæki).  
![93119d0e-675d-4dba-9042-53e85483ce17#media-blob-url=true&id=a5eb6023-c4a1-4202-8a1b-dccd8bff1d2a&collection=&contextId=58473&height=575&width=713&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_172b62a89012e659fc9a99e05809031935c3f41c4201a7b6961bc17f92212776/93119d0e-675d-4dba-9042-53e85483ce17%23media-blob-url=true&id=a5eb6023-c4a1-4202-8a1b-dccd8bff1d2a&collection=&contextId=58473&height=575&width=713&alt=?cb=3378679cf2d2b3da5bc753a137a3c7b7)

Þegar þetta hefur verið stillt af þá birtist hnappurinn ef einn eða fleiri viðskiptavinir / tengiliðir eru valdir.

ATH. endilega ekki hika við að hafa samband ef ykkur vantar aðstoð við þetta, sjá nánar um **Configuration**í **CoreAdmin**[hér](https://docs.wise.is/cored/7-configuration).  
![image-20240124-205424.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_742c45e0a3d73ebdd10321363aff1aa666ab95e9e7afdb1a1bfadf63fc9184fc/image-20240124-205424.png?cb=115957ae6cf884ea593f319e0251ae06)

Ef við veljum nokkra viðskiptavini / tengiliði þá birtast þau svæði sem stillt hafa verið í dynatype Contact:  
![image-20240124-210143.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_19aef6cf0981240a687dc461ef02d28777792066545074a1273179bd5b353cb6/image-20240124-210143.png?cb=320822bbd6600386e490a037a06ee23b)

Þegar svæðin sem breyta á hafa verið valin, gildum breytt og smellt hefur verið á **Vista** / **Save**þá kemur staðfestingargluggi eins og þessi:  
![image-20240124-210342.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_673ced5a20d71101c707d8457681178eb89f76e48e10bbbe3a3fa911453ec406/image-20240124-210342.png?cb=d67a35b417ffad5c73c5a8a276f59c91)

Við höfum þrjá valmöguleika í þessum glugga:

1. `Staðfesta og vista` vistar breytingar.

2. `Hætta við` lokar glugganum og hættir við aðgerðina.

3. `Til baka` fer til baka í gluggan þar sem valið er hverju á að breyta.

Ef við veljum að `Staðfesta og vista` þá fáum við tilkynningu um að Viðskiptavinum / Tengiliðum hafi verið breytt.  
![image-20240124-211225.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_6570246835dc892c3e4cdac46d044da94b3ed82ca61c5364bb503e96f972804b/image-20240124-211225.png?cb=32ece8dbada31617f4652b9f29501e44)

### Vista skjöl sem PDF

Bætt hefur verið við aðgerðinni að vista skjöl sem PDF. Hér er um að ræða einföldun í notendaviðmóti fyrir endanotanda sem er t.d. að vinna með samninga, tilboð eða annað efni sem þarf að enda sem .pdf t.d. fyrir rafræna undirritun. Hægt er að gera þessa aðgerð fyrir eitt skjal eða mörg. Skjalasniðin (e.file type) sem um ræðir eru öll skjalasnið sem eru umbreytanleg í CoreData (`.doc, .docx, .ppt, .pptx, .odt, .ods, .odp, .txt, .rtf, .htm, .html, .eml, .msg`)

Ef vista á eitt skjal sem pdf þá er hægt að smella á skjalið, velja tannhjólið og smella þar á Vista sem PDF:  
![Vista sem pdf útgáfulýsing-20240125-114617.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_e2a2d0fc0ee6f4a9d6d28cae8936cc8b7b5b568fcdb7a1983ffcd8721487a53a/Vista%20sem%20pdf%20%C3%BAtg%C3%A1ful%C3%BDsing-20240125-114617.png?cb=3f8ec4655357b6a2623a0d5208e5e912)

Þegar vistun sem .pdf er lokið þá er kemur upp melding og þar er hægt að smella á hlekkinn og breyta skráningu á skjalinu (athugið að slökkva þarf á meldingunni með því að smella á X til hægri):  
![Vista sem pdf útgáfulýsing smelltu á hlekkinn-20240125-114747.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_7d237148444a9da6234fd0a988bf8565ae078c3820c0a0d1d0292fd0cd968af3/Vista%20sem%20pdf%20%C3%BAtg%C3%A1ful%C3%BDsing%20smelltu%20%C3%A1%20hlekkinn-20240125-114747.png?cb=49fa5cc28c3c4dbdcb265223e430b13e)

Einnig er hægt að velja eitt skjal í lista og þá virkjast hnappurinn Vista sem PDF / Save as PDF og virkar þá eins og líst er hér fyrir ofan.  
![88896787-0ca3-483f-8f1e-c07ad4a255da#media-blob-url=true&id=34e65485-71fd-4325-9926-efc5ff79bbe0&collection=&contextId=58613&height=358&width=971&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_5d3d87c9e0f2c48acd270cbe453dcd79b0f5a9a129c792ca8003922a7f031c58/88896787-0ca3-483f-8f1e-c07ad4a255da%23media-blob-url=true&id=34e65485-71fd-4325-9926-efc5ff79bbe0&collection=&contextId=58613&height=358&width=971&alt=?cb=d15dd80ba3a91032b8865c84d375cb8f)

Ef valið er eitt eða fleiri skjöl sem ekki er á þessum umbreytanlegu skjalasniðum leysir aðgerðin það þannig að búið er til nýtt .pdf skjal fyrir umbreytanlegu skjölin en listuð eru upp þau skjöl sem ekki var hægt að búa til .pdf skjal úr.  
![8a70a1b3-8282-4d3c-ba02-833be3cf13e5#media-blob-url=true&id=c8126bc1-9282-4ca7-b3d8-433852392b5e&collection=&contextId=58613&height=208&width=642&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_29e32719d1a3b9be7ac05d7b824f10536d509a2b6b8f4d90de63afeef3ea515f/8a70a1b3-8282-4d3c-ba02-833be3cf13e5%23media-blob-url=true&id=c8126bc1-9282-4ca7-b3d8-433852392b5e&collection=&contextId=58613&height=208&width=642&alt=?cb=bfd270324254600a8a415c4ee8a20546)

Í einhverjum tilfellum geta skjöl verið of stór eða eitthvað komið upp þá er hægt að opna það skjal í breytingarham t.d. í Word eða tilheyrandi forriti og vista sem pdf með FIle \> Save As.

Ef valið er að breyta mörgum skjölum í einni aðgerð í .pdf þá og lagfæra þarf skráningu á .pdf skjölunum eftir að þau vistast þá þarf að fara í flipann **Skrár** og breyta þeim þar einu í einu eða nota **Breyta mörgum** aðgerðina ef breyta á öllum skjölunum með sama hætti.

### Vista viðhengi úr tölvupósti þegar hann er vistaður í CoreData

Bætt hefur verið við virkninni að "vista viðhengi úr tölvupósti" þegar hann er vistaður í CoreData í gegnum Outlook addin (Send to CoreData).

Til að byrja með var ákveðið að hafa virknina þannig að sjálfvalið er að vista viðhengin sér. Það var ákveðið þar sem annars er mikil hætta á því að þetta gleymist, sérstaklega hjá þeim fyrirtækjum sem eru afhendingarskyld til Þjóðskjalasafns Íslands eða héraðsskjalasafna. Þessi virkni mun slípast til með tímanum og í kjölfarið verður metið hversu sveigjanlegt þetta þarf að vera. Undanskilið þessu sjálfvali eru mjög litlar myndir sem oftast eru partur af undirritunum í tölvupóstum fólks.  
![image-20240124-223954.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_55e36af0cb7374a9530d43fbb6a16ff6eeb5afe9bbad41e012d2960e312844b1/image-20240124-223954.png?cb=eeaf5c84c4c3ebdec3cac315a770f4f0)

### Send to recently visited, filed og favorite projects (Send to CoreData)

Lagfæring á villu sem var þegar tölvupóstar sem skráðir eru með því að hægri smella á póstinn, smella á **Send to CoreData** og velja eitt af eftirfarandi:

* Recently filed projects

* Recently visited projects

* Favorite projects

Ef valin er mappa í **Send to CoreData** glugganum þá rata þessir póstar núna í þá möppu sem valin er.  
![Send to CoreData recently-20240125-124128.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_0c2a6f06ee3c6b0ac0d0c9edf9ad2e5e503055670dab97fdbe77f257abc13023/Send%20to%20CoreData%20recently-20240125-124128.png?cb=f0ef16cab62b0ff541d982bd32c4e5bd)

### Skjölun fyrir forritara

Bætt hefur verið við skjölun fyrir forritara sem eru að skrifa á móti CoreData vegna samþættinga, sjá [hér](https://docs.wise.is/cored/forritarar-developers). Annars vegar er um að ræða mjög yfirgripsmikla skjölun á "skjala módeli" CoreData sem lýsir því hvernig hlutir hanga saman og hins vegar lýsingar á forritaskilum CoreData (coredata api).

"CoreData document model and hierarchy" má sjá hér:  
![image-20240124-224802.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_efa86d01735ebf3e33f837b4a3a896e71d2ad82e6bac579dd90b2d944f02e0e9/image-20240124-224802.png?cb=f86bc06d0194454894213b1bf2716740)

### Uppfærsla á gagnagrunni

Í tengslum við uppfærslu í 2023.3 erum við að uppfæra gagnagrunna úr PostgreSQL-11 í PostgreSQL-15 sem bætir afköst og öryggi. Hér er verið að stökkva um nokkrar útgáfur en undirbúningur hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Ferlið er orðið nokkuð vel smurt eftir nokkrar ítranir og væntur niðritími kerfa er lágmarkaður. Við erum búin að aðlaga forrit og kóða til þess að keyra betur og vera tilbúin fyrir þessar breytingar. Þessi vinna er að einhverju leyti orsök þess að dreifing á útgáfunni hefur tafist sökum þess að þetta veldur auknu flækjustigi og þarfnast ítarlegri og lengri prófana.

Gagnagrunnsuppfærslan mun fara fram samhliða eða aðeins á undan uppfærslu í útgáfu 2023.3.

---
language: "is"
---
# 2024.1 - CoreData útgáfulýsing

## 29.maí 2024

Fyrsta útgáfa ársins 2024 er tilbúin til dreifingar og margt var í gangi hjá CoreData teyminu á fyrsta fjórðungi ársins og til dagsins í dag.

Vinna við vegvísi CoreData hefur verið mikil á meðan þessi útgáfa er í vinnslu og verið er að leggja grunn að því hvernig CoreData mun þróast og lifa nær Microsoft umhverfinu. Vegvísar vöruþróunar Wise eru einnig í vinnslu og verið að tryggja að mismunandi vörur Wise séu að þróast í takt og ítrun á samþættingu milli mismunandi kerfa og kerfishluta séu sem best. Þetta er partur af vegferð Wise sem hefur haft vinnuheitið Wise Digital og snýst um það að láta grunn kerfishluta og vörur Wise vinna betur saman sem skynlæg heild.

Samhliða þessari uppfærslu var verið að útvíkka scope á ISO27001 fyrir Wise í heild sinni og lauk því 19.apríl síðastliðinn. Verkefninu lauk frábærlega með úttekt frá BSI sem staðfesti áður góða niðurstöðu. Wise mun því hljóta vottun í framhaldi af því.

## Outlook plugin virkar ekki í nýjustu útgáfu Office!

Athugið að ef verið er að uppfæra í nýjustu útgáfu af Microsoft Office hugbúnaðinum þá virka útgáfur af CoreData Outlook addin ekki. Þetta hefur með það að gera að Microsoft hefur ákveðið að leyfa ekki slíkar viðbætur. Þetta hefur áhrif á alla slíkar viðbætur sem sitja inni í Outlook, ekki bara CoreData addin. Verið er að vinna að nýrri leið við að senda í CoreData. Það mun koma út seinnipart ársins 2024.

## **Lýsing á helstu breytingum í útgáfu 2021.1:**

### Rafrænar auðkenningar með Auðkenni Appinu

Bætt hefur verið við leið fyrir notendur að auðkenna sig með Auðkenni-appinu til viðbótar við auðkenningar með rafrænum skilríkjum á SIM-korti og rafrænum skilríkjum á korti. <https://www.audkenni.is/um-audkenni/frettir/audkenni-kynnir-audkennisappid/>

![image-20240522-091120.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_8366f325d869a42cc059e4b827eef1050d370fb8116443acbee55eb54a2ab31c/image-20240522-091120.png?cb=6623fff4ec3dd704677ff59eeb352d17)

### Rafrænar undirritanir

Bætt skilaboð og notendaupplifun við að senda áminningu á undirritendur skjala. Eins hefur verið bætt við upplýsingum um aðgerðir á sögu skjals (e.document history).

### Skjöl erfa gögn úr verkefni stofnuð út frá verkefnasniðmátum

Þegar við stofnum verkefni út frá verkefnasniðmáti og fyllum út í alla reiti verkefnisins þá munu þau skjöl sem eru partur af verkefnasniðmátinu og stofnast inni í verkefninu erfa þau gögn sem skráð eru í skráningarferlinu. Sem dæmi má nefna viðskiptamann, eign, ofl. svæði sem eru sameiginleg verkefninu og þeim skjalategundum sem stofnast undir verkefninu.

### Skráning á aðilum (viðskiptavinum/tengiliðum)

Til einföldunar í skráningarferli þá er landakóði Íslands settur fremst í skráningarsvæðið fyrir símanúmer "+354" til að flýta fyrir skráningu og tryggja réttleika.  
![Screenshot 2024-04-16 at 16.18.33.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a4d8e5d9771b33a481a316f21c4b33dc2b7b60c5d8e6da1f1a3a879dd0d2676d/6939231e-ffaf-4bf5-ad3a-d4100bd327da%23media-blob-url=true&id=7447f082-04be-4559-b951-f1b31444a071&collection=&contextId=1006800&height=627&width=914&alt=Screenshot%25202024-04-16%2520at%252016.18.33.png?cb=e773187e6895a0c890dcd64e2d4a16fb)

Nú er hægt að skrá

### Bætt skráningarferli á tölvupóstum með Outlook viðbót

Verið er í samvinnu við viðskiptavini að tryggja sem besta skráningu á tölvupóstum og viðhengjum þeirra. Nú eru algengustu skráarsnið valin sjálfgefin til að vistast inn í verkefni þegar skjal er "sent til CoreData". Þau viðengi sem ekki eru valin sjálfgefið fá rauðan afgerandi lit til að kalla fram viðbrögð notandans við því að taka afstöðu til þeirra viðhengja sem á að afrita í verkefnið og hver ekki. Notandi getur valið öll viðhengi eða ekkert eftir því hver krafa fyrirtækisins er.  
![4b8ea291-b8a0-44da-a4c6-658b05afc2f1#media-blob-url=true&id=853eea3b-f9db-42b7-9b93-413f7822c246&contextId=1010585&collection=](https://docs.wise.is/__attachments/a_db5c72640e8ef1a1720a52450a4c88c2d08362fb01b06cd77707c7bfcf0b2e1f/4b8ea291-b8a0-44da-a4c6-658b05afc2f1%23media-blob-url=true&id=853eea3b-f9db-42b7-9b93-413f7822c246&contextId=1010585&collection=?cb=a79b346a9a9347bfe4767e896fa91bd7)  
![0c220d75-45cf-4c5c-8b3e-fbaf896f36dc#media-blob-url=true&id=becebd63-b9ef-456b-9da8-2192bc5e893d&contextId=1010585&collection=](https://docs.wise.is/__attachments/a_c4d299154513ea2030bcd02aec8562466a6e5d4ed3c97793188d4286e908bef2/0c220d75-45cf-4c5c-8b3e-fbaf896f36dc%23media-blob-url=true&id=becebd63-b9ef-456b-9da8-2192bc5e893d&contextId=1010585&collection=?cb=33265175781d0c3b37c5cc763d93520f)

**Uppfærsla á Joakim samþættingu**

Uppfærsla á tengiliðum í CoreData út frá gögnum í Jóakim. Þessum skilum hjá Init hefur ekki verið mikið viðhaldið.

### Öryggismál

Miklar uppfærslur voru á innviðum CoreData sem koma til vegna innri úttekta og skönnunar sem er hluti af öryggis- og gæðastarfi Wise.

---
language: "is"
---
# 2024.2.1 - CoreData útgáfulýsing

**31.júlí 2024**

Nýjasta útgáfa af vef vafranum Chrome, útgáfa 127, sem var að koma út er að valda stundum vandræðum í innskráningum með rafrænum skilríkum. Þetta er lítil breyting en ekki ný útgáfa af CoreData, þessi breyting verður auðkennd með útgáfunúmeri 2024.2.1

Vafrinn Edge virkar eðlilega og ef notendur lenda í vandræðum við innskráningar þá beinum við þeim að prófa það þangað til við erum búin

---
language: "is"
---
# 2024.2 - CoreData útgáfulýsing

**8.júlí 2024**

Önnur útgáfa ársins 2024 er tilbúin til dreifingar.

Okkur er mjög umhugað um öryggi og í þessari útgáfu er eingöngu að finna uppfærslu á tækniumhverfi en engar nýjungar eða virknibreytingar eru til viðskiptavina.

Samhliða er verið að vinna að næstu útgáfu sem verður tilbúin fljótlega eftir sumarfrí og mun innihalda viðbætur til viðskiptavina og verður kynnt nánar síðar þegar sú útgáfa verður tilbúin til útgáfu.

---
language: "is"
---
# 2024.3 - CoreData útgáfulýsing

**1.október 2024**

Þriðja útgáfa ársins 2024 er tilbúin til dreifingar.

Áfram höldum við að gefa út viðbætur og uppfærslur á tækniumhverfum sem var unnið að í sumar. Þessar uppfærslur eru að mestu leiti án virkni breytinga fyrir notendur og eingöngu í tækniumhverfi en auk þeirra eru ýmsar litlar viðbætur og lagfæringar eins og þessar hérna helst:

* Ný útgáfa af CoreData disknum og Outlook plugin

* Bæta hraða í leitinni

* Betrumbætur á virkni ruslatunnu fyrir eydd skjöl.

* Bæta virkni í Signet transfer og að reyna aftur ef niðurhal skráa tókst ekki

* Bæta við að sýna óvirka notendur í valmyndum fyrir rafræna auðkenningu notenda

* Auk fleiri og minni betrumbætur

---
language: "is"
---
# 2024.4 - CoreData útgáfulýsing

**1.desember 2024**

Fjórða útgáfa ársins 2024 er tilbúin til dreifingar.

Áfram höldum við að gefa út viðbætur og öryggis uppfærslur á tækniumhverfum sem hefur verið unnið að síðan í sumar. Þessar uppfærslur eru að mestu leiti án virkni breytinga fyrir notendur heldur í tækniumhverfi en auk þeirra eru ýmsar litlar viðbætur og lagfæringar eins og þessar hérna helst:

· Nú er hægt að vista umsóknir í miðju ferli í umsóknarportal CoreData

· Bæta hraða í leitinni

· Bæta hraða í kerfinu

· Betrumbætur á virkni ruslatunnu fyrir eydd skjöl.

· Betrumbætur á virkni atburðaskráninga

· Lagfæringar á villum við að að vista sem PDF

· Lagfæringar á villum í notendainnskráningu

· Auk fleiri og minni betrumbætur

---
language: "is"
---
# 2025.1.3 - CoreData útgáfulýsing

Hér er um litla útgáfu og breytingu að ræða. Eingöngu er verið að fjölga samtíma aðgerðum í reikniverki til að að auka hraða fyrir notendur. Engar breytingar eru í virkni til notenda eða á CoreData.

---
language: "is"
---
# 2025.1.4 - CoreData útgáfulýsing

Stærsta breyting í þessari útgáfu er uppfærsla á hugbúnaði í bakenda, Solr, upp í nýjustu útgáfu. Solr er leitarvél til að vinna með skjöl í CoreData.

Aukinn var stuðningur á meðhöndlun á stærri skjölum, stærð aukin úr 2 GB upp í 5 GB.

Eins og alltaf voru settar inn viðbætur og öryggisuppfærslur á tækniumhverfum. Uppfærslan eru að mestu leyti án virknibreytinga fyrir notendur og varðar fyrst og fremst tækniumhverfiði.

Auk þess eru ýmsar litlar viðbætur og lagfæringar:

· Tryggja öryggi.

· Einföldun í tækniumhverfinu

· Aukinn hraði í leit og almennri kerfisnotkun

---
language: "is"
---
# 2025.1.5 - CoreData Útgáfulýsing

Hér er um litla útgáfu og breytingu að ræða. Eingöngu er verið að aðlaga leitina þannig að það þarf ekki leita eftir verkefni með bandstriki heldur bara skrá númerið fyrir verkefnið. Til dæmis verkefni sem er skilgreind yyyy-mm-dd, þarf ekki að leita með bandstriki heldur bara yyyymmdd.

---
language: "is"
---
# 2025.1 - CoreData útgáfulýsing

**2.júní 2025**

Stærsta breyting í þessari útgáfu eru viðbætur í auðkenningarflæði og nú stuðningur við Microsoft Entra ID og umbætur á auðkenningu fyrir CoreData diskinn með "single sign on"

Áfram höldum við að gefa út viðbætur og öryggis uppfærslur á tækniumhverfum sem hefur verið unnið að síðan í sumar. Þessar uppfærslur eru að mestu leiti án virkni breytinga fyrir notendur heldur í tækniumhverfi en auk þeirra eru ýmsar litlar viðbætur og lagfæringar eins og þessar hérna helst:

· Einföldun í tækniumhverfinu

· Bæta hraða í leitinni

· Bæta hraða í kerfinu

· Bættum við hlekk frá CoreData kerfinu yfir í notendaleiðbeiningar síðuna þannig að notendur eigi auðveldara með leita sér aðstoðar.

· Auk fleiri og minni betrumbætur

---
language: "is"
---
# 2025.2.3 CoreData Desktop \& 2025.2.3 Outlook Plugin

**19. ágúst 2025**

Nýjar útgáfur CoreData desktop 2025.2.3 og Outlook Plugin 2025.2.3. eru komnar á uppsetningasíðuna okkar <https://www.coredata.is/um-okkur/uppsetning>. Nauðsynlegt er fyrir alla viðskiptavini CoreData að uppfæra þessi forrit þegar nýjar útgáfur koma út.

Gjörbreytt uppsetning sem styður allar innskráningaraðferðir CoreData þ.a.m. rafræna innskráningu fyrir bæði CoreData Desktop og Outlook Plugin.

Stöðugur diskur, sem flæðir vel á milli neta. Ásamt mikið af litlum betrumbætum á disknum.

Nýjar útgáfur CoreData Desktop og Outlook Plugin eru komnar út og tilbúnar til uppsetningar hjá notendum.

* **CoreData Desktop 2025.2.3**

* **Outlook Addin 2025.2.3**

Þessar nýju útgáfur eru verulega endurbætt virkni í öryggi og aðgangstengingum og mjög mikilvægt að allir notendur uppfæri hjá sér

til að upplifun, virkni og öryggi sé sem best tryggt fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Við mælum með að auðkenningarleið verði stillt sem **„Sign in with browser"** sem leiðir notendur áfram í sama innskráningarferli og innskráning í CoreData.

![image-20251008-105732.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_d8cf0b58934d7d8b42f58725103d64401fbb594ebc94764c2150f55e9442667f/image-20251008-105732.png?cb=fd5b2a655646ce9dbcb64ba0f452609f)

Við erum klár til aðstoðar með ykkur og myndum gjarnan vilja taka samtalið með ykkur og aðstoða við uppfærslu með notendum

Nýjar útgáfur af skrám til að keyra inn á tölvur notanda: [https://www.coredata.is/um-okkur/uppsetning](https://eur01.safelinks.protection.outlook.com/?url=https%3A%2F%2Fwww.coredata.is%2Fum-okkur%2Fuppsetning&data=05%7C02%7Cgunnarm%40wise.is%7Cdd2db65433d5424196fb08dddf341281%7C78817a159e9841fc9d587082228c4b10%7C0%7C0%7C638912136930906582%7CUnknown%7CTWFpbGZsb3d8eyJFbXB0eU1hcGkiOnRydWUsIlYiOiIwLjAuMDAwMCIsIlAiOiJXaW4zMiIsIkFOIjoiTWFpbCIsIldUIjoyfQ%3D%3D%7C0%7C%7C%7C&sdata=VOA599TLoeEgnZWzBx3GFH1netIz%2B%2BF%2F9iBoZSEhpmQ%3D&reserved=0)

Notendaleiðbeiningar fyrir CoreData Desktop: [https://docs.wise.is/cored/8-coredata-desktop-z-drif-coredata-syndardrif](https://eur01.safelinks.protection.outlook.com/?url=https%3A%2F%2Fdocs.wise.is%2Fcored%2F8-coredata-desktop-z-drif-coredata-syndardrif&data=05%7C02%7Cgunnarm%40wise.is%7Cdd2db65433d5424196fb08dddf341281%7C78817a159e9841fc9d587082228c4b10%7C0%7C0%7C638912136930935223%7CUnknown%7CTWFpbGZsb3d8eyJFbXB0eU1hcGkiOnRydWUsIlYiOiIwLjAuMDAwMCIsIlAiOiJXaW4zMiIsIkFOIjoiTWFpbCIsIldUIjoyfQ%3D%3D%7C0%7C%7C%7C&sdata=9FPPWRhMwRgej8GxIJygS2ucHHvDbtCiZeoSVgi5hQQ%3D&reserved=0)

---
language: "is"
---
# 2025.2.3 - CoreData útgáfulýsing

---
language: "is"
---
# 2025.2.8 CoreData Desktop \& 2025.2.8 Outlook Plugin

Nýjar útgáfur CoreData desktop 2025.2.8 og Outlook Plugin 2025.2.8. eru komnar á uppsetningasíðuna okkar <https://www.coredata.is/um-okkur/uppsetning>.

Breyting var gerð fyrir auðkenningu, núna er hægt að hafa sjálfgefinn vafra notanda eða velja ákveðna vafrategund, Google Chrome eða Edge. Auk þess var lagfæring á villu sem opnaði stundum 2 glugga til að skrá tölvupóst.

Nýjar útgáfur af skrám til að keyra inn á tölvur notanda: [++https://www.coredata.is/um-okkur/uppsetning++](https://eur01.safelinks.protection.outlook.com/?url=https%3A%2F%2Fwww.coredata.is%2Fum-okkur%2Fuppsetning&data=05%7C02%7Cgunnarm%40wise.is%7Cdd2db65433d5424196fb08dddf341281%7C78817a159e9841fc9d587082228c4b10%7C0%7C0%7C638912136930906582%7CUnknown%7CTWFpbGZsb3d8eyJFbXB0eU1hcGkiOnRydWUsIlYiOiIwLjAuMDAwMCIsIlAiOiJXaW4zMiIsIkFOIjoiTWFpbCIsIldUIjoyfQ%3D%3D%7C0%7C%7C%7C&sdata=VOA599TLoeEgnZWzBx3GFH1netIz%2B%2BF%2F9iBoZSEhpmQ%3D&reserved=0)

Notendaleiðbeiningar fyrir CoreData Desktop: [++https://docs.wise.is/cored/8-coredata-desktop-z-drif-coredata-syndardrif++](https://eur01.safelinks.protection.outlook.com/?url=https%3A%2F%2Fdocs.wise.is%2Fcored%2F8-coredata-desktop-z-drif-coredata-syndardrif&data=05%7C02%7Cgunnarm%40wise.is%7Cdd2db65433d5424196fb08dddf341281%7C78817a159e9841fc9d587082228c4b10%7C0%7C0%7C638912136930935223%7CUnknown%7CTWFpbGZsb3d8eyJFbXB0eU1hcGkiOnRydWUsIlYiOiIwLjAuMDAwMCIsIlAiOiJXaW4zMiIsIkFOIjoiTWFpbCIsIldUIjoyfQ%3D%3D%7C0%7C%7C%7C&sdata=9FPPWRhMwRgej8GxIJygS2ucHHvDbtCiZeoSVgi5hQQ%3D&reserved=0)

---
language: "is"
---
# 2025.2 - CoreData útgáfulýsing

## Release notes - CoreData - CoreData 2025.2

Uppfærslur í tækniumhverfi en auk þeirra eru ýmsar litlar viðbætur og lagfæringar eins og þessar hérna helst:

Samtímavinnsla skjala, ný aðgerð

Bætt villumeðhöndlun í rafrænum undirritunum

Viðbætur í atvikaskráningu

Bæta hraða í kerfinu

Bæta hraða í leitinni

Minniháttar lagfæringar í vefþjónustum (API)

Minnihátar villu lagfæringar

Auk fleiri og minni betrumbætur

---
language: "is"
---
# 2026.1 - CoreData útgáfulýsing

## CoreData 2026.1 --- Það sem er nýtt

**Útgáfudagur:** 11. júní 2026

CoreData 2026.1 (2026.1.2 til notenda) er stór útgáfa sem færir notendum nýjan textaritil fyrir lýsingar, sveigjanlegri innskráningu, betri samvinnu í gegnum SharePoint og einfaldara ferli við rafræna undirritun skjala --- auk fjölda endurbóta á afköstum og stöðugleika.

### Helstu nýjungar

**Nýr textaritill fyrir lýsingar** Nú er hægt að sníða texta í Lýsingarreitnum með feitletrun, skáletrun, fyrirsögnum, töflum, listum og kóðablokkum. Ritillinn er í boði víða um kerfið --- í verkefnum, verkþáttum, skrám, tengiliðum og fasteignum --- svo lýsingar verða skýrari og læsilegri.

**Innskráning með netfangi** Nú má nota netfang við SSO-innskráningu. Það einfaldar innskráningu og fækkar aukanotendanöfnum sem áður þurfti að halda utan um.

**Betri meðhöndlun í SharePoint-samvinnu** Þegar samvinnu um skjal er hætt eða henni lokið á meðan skjalið er opið til breytinga í SharePoint birtast nú skýr villuskilaboð, og kerfið kemur í veg fyrir að gögn lendi í ósamræmdu ástandi.

**Einfaldara að senda skjöl til undirritunar** Glugginn „Senda til undirritunar" sýnir nú alla tengiliði --- líka þá sem vantar nauðsynlegar upplýsingar --- og gefur skýrt til kynna hvað vantar. Hægt er að smella á nafn tengiliðar til að opna hann til breytinga beint.

### Íslenskar þýðingar

Allur texti sem tengist SharePoint-samvinnu er nú kominn á íslensku.

### Fleiri endurbætur

* Þegar nýtt verkefni er búið til út frá sniðmáti fylgja tengdir og ábyrgir notendur sniðmátsins nú sjálfkrafa með.

* Ýmsar endurbætur á afköstum og stöðugleika, meðal annars hraðari endurskráning (indexing) á stórum skjalasöfnum og hraðari hleðsla notandastillinga.

### Lagfærðar villur

* Lagað var hvernig kerfið bregst við þegar sótt er efni skjals sem hefur verið eytt. Þetta kemur í veg fyrir að ferli festist í endalausri lykkju.

---
language: "is"
---
# Svæði

Kaflinn lýsir notkun svæða í CoreData, hvernig á að búa til svæði, viðhalda og breyta.

CoreData byggir á notkun svæða sem eru einskonar yfirflokkun á verkefnum og skjölum. Mikilvæg eigindi eins og aðgangsstýringar, grisjun og forgangur í endurheimt auk atriða er varða skjalastjórnun eru skilgreind niður á svæði.  
**ATHUGIÐ** að alls ekki má eiga við yfirsvæðið **system** og undirsvæðin **global** og **test:**  
![image-20230605-074711.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a86ba920fa36c17bfdc0e1921b23c4eaaf5f6407f1d38e4e355fe4dafb7626f2/image-20230605-074711.png?cb=30879af814e84a129a64e8bb2e72120a)

**Ef heitum á þessum möppum er breytt þá er ekki hægt að komast inn í CoreData og hafa þarf samband við okkur til að lagfæra (** [**coredata@wise.is**](mailto:coredata@wise.is)**).**

## Notkun og uppbygging svæða

### Notkun

Möguleikar á notkun svæða eru margir og fer skipulag þeirra eftir hentugleika hvers fyrirtækis. Svæðin geta endurspeglað helstu viðfangsefni fyrirtækis, skipurit, einstök verkefni eða jafnvel ákveðinn viðskiptavin. Aðalatriðið er að átta sig á að aðgangsstýringar byggja fyrst og fremst á svæðum þ.e. notendur geta einungis lesið og vistað skjöl á svæðum sem þeir hafa aðgang að.

### Uppbygging

Svæði eru uppbyggð á stigskiptan hátt. Svæði eru vistuð undir yfirsvæðum (e. Folders).

Svæðum fylgja ýmis eigindi en yfirsvæði innihalda ekki eigindi eins og t.d. aðgangstakmarkanir.

Ekki er hægt að búa til svæði nema undir yfirsvæði.  
**Dæmi**

Vörur og þjónusta -- yfirsvæði ( e. ++folder)++

* Pakkaferðir -- svæði (e. ++space)++

* Sérsniðnar ferðir -- svæði (e. ++space)++

* Vöruþróun -- svæði (e. ++space)++

![image-20221124-111003.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_23459e07db99c73a86dc8402c1e6c426a1938ff8f6fbcd2c7780c69194d0db1d/image-20221124-111003.png?cb=335200a9dbd1b58f063971078fef3d0a)

## Svæði (space) - yfirlit og uppbygging svæða

Svæði er upphafssíða **admin** hluta CoreData en auk þess er hægt að fara inn á umsýslu síðu svæða með því að smella á **Svæði**efst.

Upphafssíða svæða veitir yfirsýn yfir svæði sem eru í CoreData auk hnapps til þess að búa til yfirsvæði (e. folder).

Aðgerðahnappar (fyrir neðan möppu-tréð) breytast eftir því hvort smellt er á **yfirsvæði** (e. folder) eða **svæði**(e. space) í yfitlitinu.

Þegar smellt er á **svæði** (space) þá birtast flipar sem ýmist veita upplýsingar yfir hvaða skjöl svæðið inniheldur, hvaða hópar hafa réttindi, geymsluskrá (e.storage plan) og sögu eða innihalda aðgerðir til að setja eigindi t.d. aðgangstakmarkanir eða grisjun á svæðið.  
![image-20221124-111113.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a0fe97db91ca4c015bfa47209d1958ef8ac015573039a4b0b742b7afcabd9134/image-20221124-111113.png?cb=c7d9bfae171c5978cae5fc5352ab6878)

## Búa til yfirsvæði (folder) og svæði (space)

### Yfirsvæði (e. space folder)

Smelltu á **rót** (e. default domain/efsta svæðið) til þess að búa til yfirsvæði og því næst á **Add Folder.** Síða til þess að skilgreina yfirsvæði opnast. Skrifaðu **heiti á yfirsvæðinu** auk lýsingar ef þörf er á. Hægt er að láta lýsingu birtast notendamegin með því að haka í **Show space description in CoreData** .

Ef hakað er við **hidden space** þá sjá notendur ekki yfirsvæðið né svæðin undir því.

Smelltu á **Save** til þess að vista yfirsvæðið.  
![image-20221124-111158.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_d474b17e68542772095e6cf1d3be4d82528b538afeedf8b5e155dc994250249b/image-20221124-111158.png?cb=a2d50754e5a902254d02d9fb1481bd90)

### Svæði (e. space)

1. Smelltu á **yfirsvæði** sem svæði á að tilheyra og því næst **Add Space.**

2. Síða til þess að skilgreina svæði opnast.

3. Skráðu heiti svæðis, lýsingu, ábyrgðaraðila og stöðu. Einnig er hægt að skrá sjálfgefin sniðmát (ef þau eru til) fyrir skráartegund, verkefnasniðmát og verkliðasniðmát.

   Smelltu því næst á **Save** til að vista.

4. Ef svæðið á að vera skráarsvæði (e. filespace) þarf að velja það í **Svæðasniðmát**.

**ATHUGIÐ**ekki er hægt að breyta núverandi verkefnasvæði í skráarsvæði eða öfugt.

5. Sjá nánar í [Skilgreining á eigindum svæða](https://docs.wise.is/cored/3-svi#Sv%C3%A6%C3%B0i-Skilgreining%C3%A1eigindumsv%C3%A6%C3%B0a).

![image-20221124-111418.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_cf1811727e737a1119279672369f5918cba627ad9d104f45e6a5ea4f4b1703a5/image-20221124-111418.png?cb=c786505ae69cf29befca75fcc2a0dfc3)

Hvert svæði þarf að heita einstöku nafni, ef tvö svæði heita nákvæmlega sama nafni þó þau séu undir sitthvoru yfirsvæðinu þá mun [CoreData Desktop](https://docs.wise.is/cored/8-coredata-desktop-z-drif-coredata-syndardrif)tengiforritið ekki gera greinarmun á þeim og birta sömu gögn í báðum möppunum.

## Skilgreining á eigindum svæða

Þegar smellt er á tiltekið svæði eða við vistun á nýju svæði þá opnast yfirlitssíða þess. Á yfirlitsíðunni er hnappur til þess að breyta grunnupplýsingum um svæðið. Sjá nánar í [Búa til yfirsvæði ( folder) og svæði (space)](https://docs.wise.is/cored/3-svi#Sv%C3%A6%C3%B0i-B%C3%BAatilyfirsv%C3%A6%C3%B0i(spacefolder)ogsv%C3%A6%C3%B0i(space)) og [Skilgreining á eigindum svæða](https://docs.wise.is/cored/3-svi#Sv%C3%A6%C3%B0i-Skilgreining%C3%A1eigindumsv%C3%A6%C3%B0a).

### Yfirlit (Overview)

* Skjöl (e. Documents)

* Skjalastjórnun (e. Record management)

* Skjalavistunaráætlun (e. Storage plan) (sjá nánar í [Óútkljáð](https://docs.wise.is/cored/6-outklja.md))

* Öryggi (e. Security)

* Saga (e. History)

* Watermark (í. Vatnsmerki), sjá nánar hér.

Í yfirliti er einnig hægt að breyta (e. **Edit** ) skráningunni á svæðinu og breyta stillingum (e. **Lists**).  
![image-20221124-111700.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_b9343562e132e00888b7b40a566bcf59e96d685fc7708954221a9398eeae3fcb/image-20221124-111700.png?cb=c58cf8466f26a285497600770b249e14)

### Stillingar á svæði

Í Yfirliti á svæði er hægt að stilla (e.**Lists**) hvaða dálkar sjást á yfirliti verkefnis (Lists), hvaða afmarkanir eru í boði (Widgets) og fleiri stillingar (Extra).

#### Lists

![image-20221124-112046.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_3d95782445f2ff00e2b087b73479465109ed2782d6eea167d382f149fad94a4e/image-20221124-112046.png?cb=91aec5f416019de6e74227ca5ee338ff)

Dálkar í lista (e. grid) svæða/verkefna.

Skráarflipi verkefnis

Verkliðaflipi verkefnis

Viðskiptavinaskrá

Verkliðaflipi á svæði

Eignasýn

Leitin

Skjalalyklar

KKS kóðar (einungis f. Landsnet/OR)

Verkefni

**Gott er að hafa samband við notendaþjónustu CoreData ef gera á breytingar á þessu.**

#### Widgets

Afmörkun á svæðum/verkefnum

**Gott er að hafa samband við notendaþjónustu CoreData ef gera á breytingar á þessu.**

#### Extra

Auka stillingar á svæðum/verkefnum

**Gott er að hafa samband við notendaþjónstu CoreData ef gera á breytingar á þessu.**

### Skjöl (e. Documents)

Flipinn **Skjöl**(e. Documents) sýnir öll skjöl á tilteknu svæði. Hægt er að afmarka skjöl eftir verkefnum á svæðum með listanum hægra megin eða eftir efnisorðum.

Til að eyða skjölum af svæði þarf að haka við skjöl og smella á **Trash / Ruslatunna.**  
![image-20221124-112258.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_3c11d19e6f2a3f08646a161c53c7ff82b12d87e49a97fa0d634021b6ba0927a2/image-20221124-112258.png?cb=098e3d56d3daa16f58242536855c4447)

### Skjalastjórnun (Record Management*)*

Smelltu á flipann **Record Management** og hakaðu við **Enable record management**til þess að virkja notkun skjalalykla á svæðinu sem verið að vinna með.  
![image-20221124-112322.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a12adbf7982ea15b9792abdd5ee91569b9795076328b72c7f591347f8f968476/image-20221124-112322.png?cb=a5ee287b941006ec94c8e39e3d47d19c)

Möppun við skjalaflokkunarkerfi**(e. fileplan mapping).**Mögulegt er að takmarka þá skjalalykla sem notandi getur valið á verkefni á tilteknu svæði.  
![image-20221124-112338.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_3375ba9c511d9d1980fdc3b0cb0b524f389aed1257a3f2b2737e827bf6ad42b6/image-20221124-112338.png?cb=c6d7a1383902503522663a2fe0c35975)

Til að velja skjalalykla er smellt á **Fileplan / Skjalalykil** (sjálfgefið heiti, virkur málalykill gæti verið með annan titil)**.** Þá kemur upp valmynd fyrir skjalaflokka.

Með því að haka við ákveðna flokka er hægt að velja hvaða flokkar verða sýnilegir fyrir hvert svæði. Litakóðun segir til um skilgreiningu á flokkum. Til að taka af alla skjalaflokka í einu er hægt að smella á **Reset / Hreinsa**neðst á síðunni.

Að loknu vali er smellt á **Save / Vista** til að staðfesta val.  
![image-20221124-112403.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_afe93f21b0a4c33b4f9fcb5b20fee09cb61df7c35463963633f808c7e4f69f53/image-20221124-112403.png?cb=b9cfb39ed5f6b056c7f52ae7ca2b4dc9)

### Skjalavistunaráætlun (e. storage plan)

Kaflinn lýsir virkni geymslu- og grisjunaráætlunar í CoreData (e. storage plan). Geymslu- og grisjunaráætlun tilgreinir hversu lengi skuli geyma skjöl, hvernig þau skuli geymd og hvenær og hvernig þeim skuli eytt.

Skilgreining á geymslu- og grisjun skjala er tvenns konar:

1. Forgangur í endurheimt (e. cutoff)

2. Eyðing (e. disposition)

![image-20221124-112429.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_1ab518d2217d0f1325501627e29025e94ad95569d1b85681001940804fa3b8ed/image-20221124-112429.png?cb=bace3cbb33154055f4613c7b0375656d)

### Forgangur í endurheimt

Skilgreining á forgangi á endurheimt tryggir að skjöl sem eru komin á svokallað **cutoff** tíma er forgangsraðað neðar í leitarheimtum.

1. Hakaðu við **Cutoff is active** til að virkja forgang í endurheimt.

2. Veldu hvort cutoff tími miðast við dagssetningu sem málið var búið til (TimeFromCreate) eða frá dagssetningu sem málinu var lokið (TimeFromClose).

3. Skráðu inn fjölda mánaða sem cutoff á að taka gildi við t.d. 24 mánuðum eftir að máli var lokið.

### Grisjun

Skilgreining á eyðingu skjala tryggir að verkefni og skjöl eru færð í **ruslatunnu**þegar þau eru komin á skilgreindan tíma.

1. Hakaðu við **Disposition is active** .Veldu við hvaða tíma eyðing á að miðast við þ.e. dagssetningu þegar málið var búð til (TimeFromCreate), dagssetningu sem því lauk (TimeFromClose) eða frá cutoff tímabili (TimeFromCutoff).

2. Skráðu inn fjölda mánaða sem eyðing á að taka gildi t.d. 24 mánuði eftir að máli lauk.

### Öryggi

Ávallt þarf að gefa notendahópum/notendum réttindi að svæðum svo þau sjái skjöl og verkefni sem eru vistuð undir því.

**Veita aðgang að svæði**(Öryggi)

Smelltu á flipann **Öryggi** og síðan á **Add / Bæta við** *.*  
![image-20221124-112546.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_df5482c0035a005bd757c08165146eaf3fd68fdc6dd5ab77b792b98789905039/image-20221124-112546.png?cb=72f897a5e79d50b003ba6b51e8461e65)  
![image-20221124-112554.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a9a8ad7051f40faf1bd2e72644deadae34e41c26d372915d1628957dc35d652d/image-20221124-112554.png?cb=4f2cd16169e65b91671569b3da331e40)

Gluggi til þess að velja notendahópa opnast.

1. **Veldu notendahóp**. Sláðu inn heiti hans eða ýttu á örvartakkann niður til þess að fá lista yfir skilgreinda aðgangshópa (sjá nánar Notendur og hópar).

2. **Réttindi.** Hakaðu við:

   **Everything** ef notendahópurinn á að hafa óheft réttindi, þ.e. bæði les- og skrifréttindi

   **Read** ef notendahópurinn á einungis að geta lesið skjöl, þ.e. á ekki að geta bætt við skjölum eða gert breytingar á skjölum/skráningu.

   **Sign**ef notendahópurinn á að geta undirritað skjöl á svæðinu.

3. Trúnaðarstig skjala -- skilgreinir hvaða trúnaðarstig aðgangshópurinn hefur. Þegar skjöl eru sett á svæðið er hægt að skilgreina trúnaðarskjöl þeirra og þá sjá t.d. þeir sem eru með trúnaðarstigið „normal" ekki skjöl á svæðinu sem eru með trúnaðarstigið „sensitive" eða „very sensitive".

4. Haka skal við **UserProject** ef notendur eiga einungis að geta séð verkefni og undirskjöl ef þeir eru ábyrgðaraðilar eða tengdir við verkefnið.

5. Smelltu á **Apply.**

6. Til þess að bæta við notendahóp þá er smellt aftur á **Add**og liður 1 til 4 endurtekinn.

### Breyta / fjarlægja aðgang að svæði

Til þess að fjarlægja réttindi að svæði þarf að smella á **Remove** fyrir aftan nafn hópsins á yfirlitsíðunni.  
![image-20221124-113248.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_9845120d37f92b79d590ce1cefdd047510a700b131a4695d1e71d9f35e430353/image-20221124-113248.png?cb=d6d975485d82f3b3a32440e10985389d)

Ef ætlunin er að fjarlægja/breyta aðgangi tiltekins notanda að svæði þá þarf að fjarlægja hann úr notendahópum sem hafa aðgang að svæðinu, sjá nánar kaflann [Notandi fjarlægður eða bætt við hóp](https://docs.wise.is/cored/5-oryggi.md).

### Saga

Allar breytingar sem eru gerðar á svæðum eru skráðar og birtar í atburðaskrá undir flipanum **Saga** ***.***  
![image-20221124-113323.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_b0bddd5f7249c5b34702d1d21b82290f85a65fbf8c51998a5d5543fdce6f4ae1/image-20221124-113323.png?cb=df7a2bc393c5ce01f0b67bcfd644c347)

### **Watermark (í. vatnsmerki)**

Hægt er að hafa skjöl svæða vatnsmerkt en til þess þarf fyrst að kveikja á Extension Watermark. Hafa þarf samband við okkur ([coredata@wise.is](mailto:coredata@wise.is)) til að kveikja á virkninni.

Það er svo stillingaratriði hvernig vatnsmerkið birtist:  
![image-20240215-113257.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_c3da6f75883d99207a4b0fa01caa6775b427f67ff288edb60a76572c0f7131bb/image-20240215-113257.png?cb=b380317b6c687d285062c77b7c4d1556)

---
language: "is"
---
# Verkefni

Hægt er að skrá nýtt verkefni inni á völdu **Svæði** með því að smella á **Stofna** og skrá upplýsingar um verkefnið frá grunni. Einnig er hægt að vera með tilbúin forskráð verkefni og þá eru verkefni stofnuð með verkefnasniðmáti.

## Að búa til / skrá nýtt verkefni

Fyrst þarf að velja **Svæði** þar sem verkefnið á að stofnast. Smellt er á **Stofna**.  
![image-20221107-094415.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_b8dbbd500e9b6ad8171c59e2b92d57d7e82230de721094fc43474286d9ef73c4/image-20221107-094415.png?cb=52d0321d188e9e39f1fd87b1e9bad6b8)

Hafi verkefnasniðmát verið sett inn fyrir viðkomandi svæði þarf að smella á píluna hægra megin við **Stofna** hnappinn þar sem má finna fellilista með verkefnasniðmátum.

Hver og einn viðskiptavinur setur inn sín verkefnasniðmát í CoreAdmin, stillir á hvaða svæðum sniðmátin eru aðgengileg og hvaða upplýsingar þau innihalda.  
![image-20221107-094534.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_6b71710e3df19fcc1cd2d68f7ef2f52fbed835d9661fe4e4cc9d156a64fe1f2d/image-20221107-094534.png?cb=a51293bd887ab937ad1fd6da101e6da8)

Þegar smellt er á **Stofna** opnast þessi gluggi og hér er hægt að breyta um svæði með því að ýta á fellilistann hægra megin við nafn svæðis og velja úr þeim svæðum sem notandi hefur heimild á.  
![image-20221123-123354.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_e13b0aead11388fd3ef2f96a994e5756446275d5aab627d993ca655786e46215/image-20221123-123354.png?cb=cd39a3bfcf12e1b402cd6e29d2747905)

**Titil** verkefnis. Mikilvægt er að gefa verkefni lýsandi titil.

Gott er að nota **TAB-takkann** til að fara yfir í næsta reit en einnig er hægt að smella í texta fyrir framan skráningarreit til að fá upp skráningarglugga.

**Skjalalykill** . Ef skjalalykill er skráður og tengdur í CoreData er hægt að velja hann hér fyrir verkefnið.

Ef skjalalykill er valinn fá öll skjöl sem tengjast verkefninu sjálfkrafa þann skjalalykil.  
**ATHUGIÐ** að ef skjalalykill hefur verið skráður á verkefni þá geta eingöngu þeir sem hafa CoreAdmin aðgang eytt verkefninu. Verklag getur verið að skrá **- EYÐA** aftast í titil og senda link til þess sem hefur CoreAdminaðgang.

**Lýsing**. Hægt er að skrá nánari lýsingu á verkefninu. Það sem skráð er hér birtist efst í verkefnaspjaldinu (Yfirlit) þegar verkefnið hefur verið vistað.

* ![image-20221107-095827.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_fa4fb61e8d82695617e95e387bdd4d5d1ad1fe227792b5c36ecfb1bf0f533d29/image-20221107-095827.png?cb=adb7a670946f2876662d2ec2a2038766)

**Lokið fyrir (dagsetning)** . Veljið lokadagsetningu ef við á. Til að velja dagsetningu er smellt á **í dag** , valið af **dagatali** sem birtist sjálfkrafa þegar ýtt er á **Skrá lokadagsetningu** eða slegin inn dagsetning*.*

Lokið fyrir dagsetning birtist í yfirliti yfir verkefni á flestum svæðum.

Verkefni með skráða **lokið fyrir** dagsetningu birtast einnig í **Lokið fyrir** reit uppi í stikunni (blá tala þýðir að einhver verkefni eru komin á / fram yfir lokadagsetningu).

**Lokið fyrir** er mjög góð leið til að hafa yfirsýn yfir verkefni sem og forgangsraða verkefnum og verkliðum.  
![image-20221107-113521.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_d89477d6e41aab7c736356d7527b68527916d9a163d61b3e93ba519d1c02bd22/image-20221107-113521.png?cb=cb6451012f0cc41e3089bb81781b3be6)

* **Ábyrgðaraðili** . Til að velja ábyrgðaraðila er smellt á **Skrá ábyrgðaraðila** *.*Skrifið byrjun eða hluta af nafni og veljið af lista sem þá kemur upp. Hægt er að skrá fleiri en einn ábyrgðaraðila.

![image-20221107-113400.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_4b9314ae064a8be7430ee1b89c5e62920eb49140048fa1924a58e1b909823f68/image-20221107-113400.png?cb=44e4c6b769f16558e992bf8197ea6ad6)

* **Tengd/ur.** Til að velja þá sem eiga að vera tengdir er smellt á **Skrá tengdan starfsmann** .

  Skrifið byrjun eða hluta af nafni og veljið af lista sem þá kemur upp. Virkar eins og að skrá ábyrgðaraðila.

* **Viðskiptavinur** . Smellt er á **Skrá viðskiptavin** og fyrstu stafir eða hluti af heiti skrifaðir inn.

  Ef viðskiptavinur hefur ekki verið skráður áður er hægt að skrá hann strax inn í kerfið, annað hvort með því að ýta á**Enter** þegar byrjað er að skrá í reitinn eða á græna plúsinn fyrir aftan. Í báðum tilvikum kemur upp gluggi til að skrá nýjan viðskiptavin (einstakling/fyrirtæki). Sjá nánari lýsingu í kafla um skráningu nýrra viðskiptavina. Þegar verkefni er tengt við viðskiptavin er síðar hægt að finna verkefnið út frá viðkomandi viðskiptavini og hafa þar yfirlit yfir öll verkefni viðskiptavinar óháð svæðum.

* ![image-20221107-120633.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_0598e196392e79cadd2c95f093ad575ccdb5cf35de6320fc769464f42e7e49bc/image-20221107-120633.png?cb=5a7050078e2dea77acc8fbf8cdf07175)

  **Efnisorð** . Skráðu inn efnisorð og smelltu á **Enter** eða **kommu** (**,** ). Þegar byrjað er að skrifa í reitinn birtist listi yfir þau efnisorð sem þegar hafa verið skráð. Ný efnisorð bætast á listann við að smellt er á **Enter** . Hægt er að **skrá inn mörg efnisorð** en athugið að **eftir hvert orð** sem er skrifað verður að smella á**Enter** eða**kommu**. Hægt er að leita eftir verkefnum með ákveðin efnisorð.
* ![image-20221107-120913.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_b80dceb912cbcee9b86dc554f94b83c296c4e9d26fc8f61ff1af40ce28d5e83e/image-20221107-120913.png?cb=3a0e32ffbcada3f9747a6fcbf5ae4321)

  **Staða** . Yfirleitt eru ný verkefni með stöðuna**Í vinnslu** eða**Skráð** en hægt er að velja aðra stöðu úr listanum. Hægt er að skrá skýringu á stöðu í svæði merkt **Skýring** *.*

![image-20221107-121141.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_f830912a7c9ad41df83c2af2537767dabecbb6e749e453152a105014f32a3ff9/image-20221107-121141.png?cb=5e8808c9ce9090a9e03fc995bdf83c1e)

* Þegar allar upplýsingar hafa verið skráðar er smellt á **Vista**.

## Breytingar á verkefnum eftir að þau hafa verið stofnuð

Ef gera þarf breytingar á verkefni eftir að það hefur verið stofnað þá þarf að smella á **Breyta:**  
![image-20230615-085809.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_9c31dbbe197c155a30cca2d2ddcbeb398ee2b08fd1d855fab8941eb41db9f235/image-20230615-085809.png?cb=700471e7892470839fe0a4ffc8452ac4)

Ef smellt er í viðeigandi reit þá er hægt að bæta við í skráningu og ef smellt er á **x** þá fjarlægist skráningin sem skráð er. Þegar búið er að gera breytingar er smellt á **Vista**.  
![image-20230615-103817.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_26745acf5b09bd2a008601106a9d0024aaa49607f2631c289d117c8d748ec63f/image-20230615-103817.png?cb=e903a14df771c7a1adad4388956cb492)

## Breyta mörgum verkefnum með einni aðgerð

Hægt er að breyta skráningu á mörgum verkefnum í einu með því að haka við þau og þá er hægt að smella á

**Breyta mörgum**(ath. tegund verkefnis þarf að vera sú sama fyrir þau verkefni sem á að breyta):  
![image-20221215-150315.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_749af6d2b9b0f3fd4741c30c7a59f3c306ce7c6b6ec26c2f28bbdc75e92f081b/image-20221215-150315.png?cb=2a015fe777f3c34a7a2389fd95975d5c)

## Yfirlit verkefnis

Yfirlitssíða verkefnis (verkefnaspjald) birtir upplýsingar um verkefnið og yfirlit yfir nýjustu hreyfingar innan verkefnis, það er nýleg skjöl og verkliði.  
![image-20221124-150924.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_6c6cc4d82b0f49cb1a8ae53430ae6153bd9ed3aa281f4ebbc0f623c4e4a4316b/image-20221124-150924.png?cb=a0cfd17ecf76734b1528013d420f69db)

Þegar smellt er á **Breyta** hnappinn á yfirliti verkefnis er hægt að breyta upplýsingum um verkefni, s.s. stöðu, skrá í Lýsing o.fl.

Ef smellt er á **Tannhjólið sem staðsett er til hægri við breyta hnappinn**á yfirlitssíðunni er boðið upp á nokkrar aðgerðir:

* **Færa undir annað svæði** sem gerir mögulegt að færa verkefnið ef það hefur verið stofnað á röngu svæði.

* **Eyða verkefni** gerir möguleika á að eyða verkefninu. Athugið að verkefninu er ekki eytt endanlega við þessa aðgerð, heldur er það fært í **ruslatunnu** þar sem að aðili með CoreAdmin aðgang getur endurheimt. Hafa ber í huga að valmöguleikinn **Eyða verkefni**birtist ekki ef skjalalykill er skráður á verkefnið. Til að eyða þeim verkefnum þarf CoreAdmin aðgang.

* **Breyta tilvísunum**ef vísa á í annað verkefni er hægt að gera það þarna.

* **Tilkynning til ábyrgðaraðila** ef senda á póst úr Outlook með hlekk á verkefnið.

  Virkni sem kveikja þarf á sérstaklega fyrir hvern viðskiptavin*.*

* **Tilkynning til ábyrgðaraðila og tengdra** ef senda á póst úr Outlook með hlekk á verkefnið.

  Virkni sem kveikja þarf á sérstaklega fyrir hvern viðskiptavin.

* **Breyta í yfirverkefni**er séraðlögun. Þegar verkefni er yfirverkefni er hægt að stofna verkefni undir því.

### Verkefni

Hægra megin á yfirlitsíðu má finna kassann **Verkefni eða heiti þess verkefnagrunns sem notaður er fyrir verkefnið**. Í honum koma fram helstu upplýsingar um viðkomandi verkefni svo sem efnisorð og staða.

### Saga

Fyrir neðan kassann **Verkefni** er kassinn **Saga** ***.*** Í honum kemur fram hver stofnaði verkefni og hvenær, hver breytti því síðast og hvenær og hvaða útgáfunúmer verkefnið hefur. Með því að smella á **skoða sögu** er hægt að fá fram upplýsingar um hvaða aðgerðir hafa verið gerðar, af hverjum og hvenær. Einnig er hægt að skoða fyrri útgáfur með því að smella á útgáfunúmerið og bakka í eldri útgáfu (Snúa aftur).

**Útgáfustýring** , með því að smella á **Nefndu þessa útgáfu** er hægt að skilgreina nýja útgáfu (major version). Þegar það er gert færist útgáfunúmerið upp í næstu heila tölu (t.d. úr 0.4 í 1.0). Með því er t.d. hægt að skilgreina hvaða útgáfur eru opinberar til notkunar (útgefnar).

### Aðgangur

Svæði og verkefni innan svæða geta haft mismunandi aðgangsstillingar. Í hverju verkefni má finna kassann **Aðgangur** þar sem auðvelt er að sjá yfirlit yfir aðgang að verkefninu. Þegar smellt er á kassann sækir CoreData upplýsingar um fjölda notenda sem hafa lesréttindi og fjölda notenda sem hafa skrifréttindi. Hægt er að smella á **Skoða réttindi** til að sjá hverjir notendurnir eru og hvernig réttindi þeir hafa.

### Viðskiptavinir á verkefni

Á yfirlitssíðu verkefnis birtast allir viðskiptavinir sem tengdir hafa verið verkefninu.

### Skrá athugasemdir

Neðst í yfirliti fyrir **verkefni, viðskiptavin, verklið** og **skjal** er gluggi til að skrá athugasemdir. Smellt er í svæðið, skrifaður inn texti og smellt á hnappinn **Skrá athugasemd** fyrir neðan gluggann.

Athugasemd birtist með upplýsingum um notandann sem skráði og hvenær athugasemdin var skrifuð. Athugasemdin birtist öllum sem hafa aðgang að verkefninu. Sá sem skráir athugasemd getur breytt henni en ekki aðrir.  
![image-20221107-121754.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_96695cecb18c94b7127be14170af0fb9420113b83905491213b6211ba6c1337b/image-20221107-121754.png?cb=e0e35ca4d168bd0fc5a26e11f40ba572)

## Verkliðir á verkefni

Undir flipanum **Verkliðir** er hægt að skrá og vinna með verkliði sem tengjast verkefni.

Sjá nánar kafla um [Verkliði](https://docs.wise.is/cored/6-verkliir).

## Tölvupóstur tengdur við verkefni

Með tengiforritinu **CoreData Outlook Addin** er hægt að vista tölvupóst og viðhengi beint í verkefni í CoreData. Þegar tölvupóstur hefur verið sendur í CoreData með þessum hætti þá birtist merki CoreData á póstinum í Outlook og efst í póstinn (þegar hann er opnaður) kemur lína með upplýsingum um heiti verkefnis sem tölvupósturinn er skráður í og linkur á hann í CoreData.

Hægt er að gera sjálfstæða skrá úr viðhengi tölvupósts eftir að hann hefur verið fluttur inn í CoreData.

Sjá nánari upplýsingar í kafla um [Outlook Addin](https://docs.wise.is/cored/9-outlook-addin-send-to-coredata).

---
language: "is"
---
# 4.14.3 CoreData Desktop \& 2.10.1 Outlook Addin

Nýjar útgáfur CoreData desktop 4.14.3 og Outlook Plugin 2.10.1. eru komnar á uppsetningasíðuna okkar <https://www.coredata.is/um-okkur/uppsetning> . Við hvetjum alla viðskiptavini CoreData að uppfæra þessi forrit þegar nýjar útgáfur koma út.

CoreData diskurinn og Outlook Plugin innihalda öryggisuppfærslur og stuðning við aukið öryggi, bæði við flutningslagið og innri kóðasöfn. Áríðandi er fyrir alla að uppfæra þessi forrit hjá sér þar sem við munum fljótlega herða öryggisreglur þ.a. CoreData kerfið mun eingöngu styðja TLS 1.2 og hærri útgáfur. Það mun þýða að eldri útgáfur af CoreData disknum og Outlook Plugin munu ekki virka eftir að búið er að herða á örygginu.

Smá andlitslyfting var gerð um leið og forritin voru uppfærð. Nú eigið þið að geta tengt þau við liti og merki CoreData.

![image-20221208-114052.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_e9f6d323b47e232fe5f41e0e9e00b1b73ebb8257392ef7ec4e8316399e6f87b0/image-20221208-114052.png?cb=cb1b126df3fdc3edc7f8647377df1046)

---
language: "is"
---
# Skrár / Skjöl

Hægt er að skrá skjöl með því að hlaða þeim upp, draga og sleppa, vista í gegnum Z:drif eða með því að nota skjalasniðmát sem aðgengileg eru á viðeigandi svæði.

## Hlaða upp skjali

Hægt er að hlaða upp skjölum í CoreData: í verkefni, á gagnasvæði og á persónulegt skrársvæði (Skrár undir Heimasvæði hvers notanda). Í verkefnum, flipanum **Skrár** og víðar má finna hnappinn **Hlaða upp skjali** . Þegar smellt er á **Hlaða upp skjali** þá þarf fyrst að velja viðeigandi skjalategund og svo opnast skráningargluggi fyrir viðkomandi skjal.  
![image-20221107-122230.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_bfc82bd57fb571c7672b3e3480b35f5a6b327ec95eb79ba25553a03ccce3eec3/image-20221107-122230.png?cb=d45496a23ea2bf2352e4af6009cc24d1)

Öll skjöl eru vistuð með skjalategund. Sjálfgefna skjalategundin er **Skrá** en mögulegt er að breyta því*.* Efst í skráningarglugganum er hægt að breyta tegund skjals með því að smella á litlu píluna **(1)** sem bendir niður á eftir **Skrá** . Fyrir ákveðnar skjalategundir bætast við ný skráningarsvæði í gluggann, svo sem dagsetning og höfundur. Ef búnar hafa verið til undirmöppur er hægt að láta skjal vistast beint í möppu, með því að smella á litlu örina sem bendir niður á eftir **Möppur (2)**.

* Smellt er á **Veldu skrá** til að ná í þá skrá sem hlaða á upp.

* ![image-20221116-155120.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_31e9323903abfadcb04e470f65d57ec80a74767bbc5fd6b3401c5dce5a21b961/image-20221116-155120.png?cb=8db39069ff8e5a0536204c52e900cb33)

  **Titill** . Hér er hægt að breyta heiti skjals í samræmi við efnisinnihald. Ekki þarf að takmarka stafafjölda en athugið að í CoreData Desktop er takmörkun á heildarslóð skjals, langur titill getur haft þau áhrif að ekki sé hægt að opna skjalið í gegnum Z-drifið (CoreData Desktop). Takmörkun er í Windows og þarf Z-drifið að fylgja þeim takmörkunum.

  Ekki er ráðlegt að notast við skammstafanir.

  Hægt er að **leita eftir titli** í [Leit](https://docs.wise.is/cored/7-leit).

* **Lýsing** . Hægt er að setja inn nánari lýsingu á skjalinu í svæðið **Lýsing** *.* Þegar skjal er lesið í CoreData birtist lýsingin fyrir ofan sýnishorn af skjalinu. Hægt er að leita eftir skráðri lýsingu.

* **Efnisorð** (Tags). Hægt er að skrá inn efnisorð. Hægt er að skrá inn mörg efnisorð. Eftir hvert skráð efnisorð er smellt á **Enter**eða kommu (,).

## Draga og sleppa virkni

Hægt er að hlaða einu eða mörgum skjölum samtímis inn í CoreData í gegnum vefviðmót. Það verkefni eða gagnasvæði sem taka á við skjölum er opnað í vefviðmóti CoreData. Skjöl sem hlaða á inn eru valin (af drifi eða á desktop) og þau dregin yfir í CoreData og sleppt þar.

Á þennan hátt er mögulegt að hlaða allt að 20 skjölum upp í einu. Skjölin vistast sjálfkrafa beint í verkefni.

Ef notandi er með möppu opna og dregur skjal/skjöl yfir í vefviðmóitð vistast þau beint í möppuna. Eftir að skjölin eru komin í CoreData er hægt að breyta upplýsingum um skjölin s.s. skjalategund og titli, einnig er hægt að færa skjölin undir viðeigandi möppur. Einnig er hægt að hafa stillt þannig að skráningargluggi birtist þegar skjali er sleppt í CoreData en þá er betra að taka eitt skjal í einu.

## Nýtt skjal stofnað í CoreData

Hægt er að bæta nýju skjali við með því að smella á **Hlaða upp skjali** (sjá nánar hér fyrir ofan)**.** Ef nota á skjalasniðmát sem búið er að skrá í CoreAdmin er valið **Sniðmát** og opnast þá skráningargluggi sambærilegur og lýst er þegar nýju skjali er hlaðið upp.

Þegar smellt er á hnappinn **Vista** er skjalið vistað í CoreData.

Það skjal má síðan opna, breyta og vista að vild í CoreData.

Skjalasniðmát geta verið svokölluð Dynamic templates sem þýðir að þau erfa lýsigögn úr skráningu á verkefni og/eða skjali. Þessi skjöl þarf að útbúa með sérstökum hætti og stilla í CoreAdmin, sjá nánar í [Sniðmát](https://docs.wise.is/cored/4-snimat).  
![image-20230214-160428.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_2d007d1dbc40178ee03e6748e5bd7c160bb31839c00fe41867aad347f5883847/image-20230214-160428.png?cb=de833a017e2f1c8fedd147a37d8f30b8)

## Frekari möguleikar við vinnslu skjala

Sýn á skjal er mismunandi eftir því hvaða vafri er notaður og hvort CoreData Desktop er virkt eða ekki. Þegar skjal hefur verið valið er hægt að smella á **Tannhjólið** og þar er boðið upp á nokkrar aðgerðir.

Sjá nánar í kafla um [CoreData Desktop](https://docs.wise.is/cored/8-coredata-desktop-z-drif-coredata-syndardrif).

Desktop ekki tengdur  
![image-20221117-092230.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_eb6bdd2181b371e80549f842fb5e15a8640831bd351d413643d0c6c89cfcbd71/image-20221117-092230.png?cb=feb749ec57ade4925bc7959820d450d1)

Desktop tengdur  
![image-20221117-092333.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_5b32255126a61b08f4915d058ef9e8f6531173da528654d2987478ecdb64cf8d/image-20221117-092333.png?cb=4fab789fbfe8374720595bbab63206f9)

* **Opna skrá** býður upp á þann möguleika að opna skrá í ritli svo sem Word. Þegar skjalið er vistað eftir breytingar uppfærist skjalið sjálfkrafa í CoreData (ef CoreData desktop forritið er virkt).

* **Hala niður**veitir möguleika á að hala skjalinu niður og vista á tölvu notanda. Þá er hægt að opna skjalið í ritli og vinna með það. Athugið að ef skrá er opnuð í ritli á þennan hátt er engin tenging við CoreData og því ekki sjálfvirk uppfærsla.

* **Hlaða upp**gefur möguleika á að hlaða skjali yfir fyrri útgáfu skjals og búa til nýja útgáfu. Eldri útgáfur er svo alltaf hægt að sjá í sögu skjals.

* **Breyta upplýsingum** sem gefur notanda færi á að breyta skráningu skjals.

* **Breyta tilvísunum**hægt að vísa í annað verkefni/breyta tilvísunum í önnur verkefni.

* **Læsa**kemur í veg fyrir að aðrir notendur geti breytt skjalinu, sjá nánar hér fyrir neðan.

* **Færa**gefur möguleika á því að færa skjal undir annað verkefni.

* **Deila**skjali úr verkefni yfir á gagnasvæði, sjá nánar hér fyrir neðan.

* **Vista afrit**gerir afrit af skjalinu undir nýju nafni í sama verkefni, sjá nánar hér fyrir neðan.

* **Tilkynning til notanda** senda tilkynningu til ábyrgðaraðila/tengdra aðila með link á skjalið í verkefninu.

  Virkni sem kveikja þarf á sérstaklega fyrir hvern viðskiptavin.

### Læsa skjali

Notendur geta sjálfir læst og aflæst skjölum. Ef notandi opnar skjal á meðan annar notandi er með það læst þá getur sá sem ekki er með skjalið læst ekki vistað yfir útgáfu þess sem er með skjalið læst en hann getur opnað skjalið og vistað aðra útgáfu af skjalinu. Læsing er sett á með eftirfarandi hætti:

* Opna skjalið í sýnishorni

* Smella á tannhjólið

* Velja aðgerðina **Læsa**

![image-20221117-095743.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_77fefe9395754cccce10007ea3d925666255a540d8d62f8887607ec0b4140f6d/image-20221117-095743.png?cb=9743a2bfd6b41e85eda51e809f063f9f)

Til að aflæsa skjalinu er smellt á **Aflæsa** hnappinn.

Ef skjalið er ekki læst þá geta fleiri en einn verið að vinna með sama skjal. Allar útgáfur af skjölunum vistast í CoreData og er hægt að sjá allar breytingar með því að velja að **Skoða sögu** skjals. En samvinna í skjölum er því miður ekki möguleg eins og er.

Hægt er að skilgreina hóp (CoreAdmin) sem getur aflæst skjölum sem aðrir starfsmenn læsa.

### Deila skjali

Hægt er að gera skjal sýnilegt á skjalasvæðum en opna þarf fyrir að deiling sé leyfð inn á skjalasvæði (CoreAdmin). Skjalið er áfram á upprunalega svæðinu en afrit af því sést á því skjalasvæði sem skjalinu er deilt á. Allar breytingar á frumskjalinu sjást á skjalasvæðinu.

Skjali er deilt með því að opna skjalið í sýnishorni og smella á tannhjólið. Veljið aðgerðina **Deila** og þá opnast gluggi með lista yfir þau skjalasvæði þar sem mögulegt er að deila skjölum.

Veljið viðeigandi svæði og smella á **Deila**.  
![image-20221117-095956.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_777530c1e450c8d3a07412fe9c23af6bba4791361845729cc3ffd424398fac53/image-20221117-095956.png?cb=18174cf71e77b0f0a5df71778d505ea2)

Til að hætta að deila skjali þarf að fara inn á svæðið **þar sem deilda skjalið er** og eyða því þar.

Upprunalega útgáfan mun haldast ósnert.

### Vista afrit

Hægt er að afrita skjal með einföldum hætti í CoreData. Það er gert með því að smella á tannjólið og velja aðgerðina **Vista afrit**. Þá birtist glugginn þar sem titill á afritinu er sleginn inn (sjá hér fyrir neðan). CoreData sér um að gefa skjalinu rétta endingu t.d. fær Word skjal sjálfkrafa .doc eða .docx endingu. Þegar smellt er á Vista er skjalið afritað. Nýja afritaða skjalið birtist á skjánum og hægt að hefja vinnu í því. Nýja skjalið er staðsett í sömu möppu og upphaflega skjalið.  
![image-20221117-093000.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_8a85be92bd6cde800ef71ddf08bb20080bfe8a103f0c651bdbd8be51fe85382c/image-20221117-093000.png?cb=e42f19f07241e3f1adeed90c4d15578e)

## Vinna í skjali í CoreData

Hægt er að vinna í skjali sem hefur verið vistað í CoreData og gera á því breytingar sem eru uppfærðar beint í kerfið. CoreData sýnir sýnishorn fyrir skjalið. Til þess að opna það og gera á því breytingar er valið **Opna skrá** (ef notandi er með CoreData Desktop uppsett, sjá nánar í [CoreData Desktop](https://docs.wise.is/cored/8-coredata-desktop-z-drif-coredata-syndardrif)).  
![image-20221117-100737.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_26189ad849833f6467180ffea7adf22c4d46434662acde41dfd35262e2b501b2/image-20221117-100737.png?cb=ff36033444177c5e86d686b5c742d089)

* Skjalið opnast þá í því forriti sem við á, t.d. opnast \*.doc sjálfkrafa í Word, \*. xls skjal í Excel og svo framvegis.

* Þegar búið er að vinna í skjalinu er smell á vista í því forriti sem skjalið er opið í. Breytingarnar koma þá fram í sýnishorni skjalsins.

Athugið að munur er á **Opna skjal** og **Hala niður**(mismunandi er eftir vöfrum og stýrikerfum hvaða valmöguleikar eru í boði, sjá myndir fyrir neðan).

**Opna skrá** -- þá er tenging við CoreData Desktop, gefur tækifæri á vistun og uppfærslu skjals.

**Hala niður** -- boðið er upp á að vista skjal í tölvu notandans og þá er engin tenging við CoreData. Hér þarf að **Hlaða upp** skjali í CoreData eftir breytingar. Engin tenging er við CoreData Desktop.  
![image-20221117-101019.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_f80734933d97bd121080a2a17807d27f590c89631cfedf1f89cc048299992def/image-20221117-101019.png?cb=938c5ffa3781ec957a2018516da3b00c)

## Möppur í verkefnum og á gagnasvæðum

Möppur birtast til hægri undir **Sýn** . Hægt er að **flokka** skjöl í yfirmöppur og undirmöppur.

Hægt er að nota möppur í skráarflipa verkefna, á gagnasvæðum (e. datarooms) og undir **Skrár** í sjónarhorninu **Heima** (athugið að það eru persónulegar skrár og því enginn annar með aðgang að þeim). Huga þarf að því að slóð á skjal sem er ofan í yfirmöppu og undirmöppum getur orðið mjög löng og það getur valdið vandræðum við að opna skjölin, sjá nánar undir Titill hér ofarlega á síðunni.

* Til að bæta við nýrri möppu, breyta nafni eða eyða er smellt á **Tannhjólið**

  ![image-20221117-101211.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_9d9ca85aafb34cf0eee62a0cb29b22af90a3a3222ff7e036242011d608e945d4/image-20221117-101211.png?cb=97d033aad8ad292410ffb78872c50a77)

  Þá birtist listi þar sem valið er **Sýsla með möppur**.

![image-20221117-101440.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_fa26fb48d73c92115b0ebcb661aa44733146b551abe3fb2ac6503f318eb8e790/image-20221117-101440.png?cb=833710e94c523f21027a54b4c89e7120)

Þegar **Sýsla með möppur** er valið opnast glugginn hér fyrir neðan. Þar má stofna nýja möppu, endurnefna möppu eða eyða möppum.

* Þegar stofna á nýja möppu þarf **Möppur** að vera valið (rauður kassi utan um á myndinni hér fyrir neðan).

* Smellið síðan á: **Ný mappa**.

Þá kemur upp **ný mappa** þar sem **skrifað er inn nýtt heiti**. Það þarf ekki að smella í svæðið, heldur er hægt að skrifa nafnið beint inn.

Smellt á **Vista** til að vista möppuna, eða **Hætta við** .

![image-20221117-101647.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_c09844b65e6422cff35cb11643c0d22eb493c296c573721590a8fa808d6e9c15/image-20221117-101647.png?cb=3ec784b5d430a31387153d10027cf8cc)

* Ef stofna á **undirmöppu** þá þarf að velja viðeigandi möppu (sem verður þá yfirmappa -- dæmi mappan **Vinnugögn**á myndinni hér fyrir ofan).

* Til að eyða eða endurnefna möppu er smellt á **Tannhjólið** og **Sýsla með möppur**, mappan valin og smellt á eyða eða endurnefna.

### Draga skrá yfir í möppu

Til að færa skrá yfir í möppu er hægt að setja bendil yfir skrá og halda músarhnappnum niðri. Ef flytja á fleiri en eina skrá er hakað í allar skrár sem á að færa.

Skráin er síðan dregin yfir viðkomandi möppu og músarhnappinum sleppt þar. Notandi sér hvaða möppu hann er að færa skrá í því titill möppunnar fær gráan lit (sjá mynd hér fyrir neðan).  
![image-20221117-102441.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_659ca27bcbe5e257d7189cc8a57eaf861c2959e9a939a6196ff187007ed7aee8/image-20221117-102441.png?cb=d1d1c93227f27dc66a9916d4d97d71f0)

Þá koma upp skilaboð uppi í hægra horni CoreData um að færsla á skrá/skrám yfir í möppu hafi tekist.  
![image-20221018-094219.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_c03da6c7a759fc611b82a71a81dc70ebe935cde9d18c83af25126cdad0ce16f4/image-20221018-094219.png?cb=61335e2cf2b94d78eec29721bb0bdec8)

## Viðhengi úr innfluttum tölvupósti vistað sem sjálfstætt skjal

Sjá einnig [hér](https://docs.wise.is/cored/send-to-coredata-vistun-vihengja) um sjálfkrafa vistun viðhengja

* Hægt er að vista viðhengi úr tölvupósti inni í verkefni/mál. Það er gert með því að smella á tölvupóstinn í CoreData og smella á **Afrita í verkefni** . Einnig er hægt að hala viðhenginu niður beint í tölvuna (**Tannhjól** \> **Hala niður**).

  * ![image-20221117-105640.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_f51d1aa6ab6463f16b75f2f9154ae3a9019ae9e47f9442c9d8f224a39843a7a0/image-20221117-105640.png?cb=cd203a9ed151447ee44fb3c959f04260)

    Verkefnið sem tölvupósturinn er staðsettur í kemur sjálfkrafa upp sem verkefni en hægt er að velja nýtt. Þá þarf að smella á litla x-ið aftast í línunni. Hægt er að fletta upp verkefni sem á að skrá í.
  * Skjalategund kemur einnig sjálfkrafa sem skjalategund póstsins en hægt er að breyta því með því að velja nýja skjalategund efst í glugganum.

    ![image-20221117-105824.png](/__attachments/a_7cf952182e62c968f00784f6e612fe70273433f3baaa101ea180425639bdecd1/image-20221117-105824.png?cb=42800a8a3f633cd2f58c7d670d87eb11)

## Vinna með mörg skjöl í einu / Magnaðgerðir

Hægt er að **Breyta** , **Breyta mörgum** , **Færa** , **Deila, Eyða** og **Hala niður** mörgum skjölum í einu.

Það er gert með því að haka í reitinn framan við skjölin og smella síðan á viðkomandi aðgerð.

Séraðlögun **Samþykkja** er einnig hægt að gera við mörg skjöl í einu.  
![image-20221117-111243.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_735ff45081882e0c7b84a7fd852db18ae24fe1474327cf813a5ad77c7a9162de/image-20221117-111243.png?cb=2f0c370de90756c2af75b5b4d5ed2cb1)

---
language: "is"
---
# Sniðmát

Í Sniðmát (e. template) valmyndinni er hægt að setja upp sniðmát fyrir **Verkefni** (e. projects), **Skjöl** (e.folders), **Verkliði** (e. tasks) og **Viðskiptavini**(e. contacts). Sniðmát eru mjög hentug til notkunar fyrir regluleg verkefni sem koma þá tilbúin með verkliðum og skjölum. Notkun verkefnasniðmáta er mikill tímasparnaður fyrir starfsfólk, eykur samræmda skráningu verkefna og getur innihaldið verkliði sem lýsa ferli verkefnis.  
![image-20221208-090018.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_c3219043f4ecaa866400244fd6ce2cc8b28f6ce52a0cbd1c7996bc49aff04da3/image-20221208-090018.png?cb=12b67f4a741326bf2f8d9765f1ab3f5b)

## Projects \[Projects\]

Ný verkefnasniðmát eru skráð beint undir **Projects** með því að smella á **Projects** og svo á örina hjá **Add Project**.  
![image-20221208-093701.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_8c24400c750e3a94198e65c2d6b1276b799a8c7c47572691e91e89c7d53bd9d2/image-20221208-093701.png?cb=158ed6eb0cced39f96bb762b2c0756ea)

### Add Project

Fyrst þarf að velja verkefnagrunn sem verkefnasniðmátið á að byggja á. Verkefnagrunnar birtast þegar smellt er á örina og geta haft t.d. mismunandi stöður á verkefnum sem stofnuð eru á grunninum. Alltaf er hægt að sjá á hvaða verkefnagrunni verkefnasniðmát er stofnað (ljósgrátt við hliðina á heiti sniðmáts):  
![image-20230519-121908.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_745ca79daca2b40127d25b737dc924f15c59ba6defe4d0f23ea1ac22ca422b01/image-20230519-121908.png?cb=4fdc3f758153398cfc5e96eac525a703)

Ekki er hægt að breyta um verkefnagrunn eftir að byrjað er að gera verkefnasniðmát. Ef breyta þarf verkefnagrunni þá þarf að búa til nýtt verkefnasniðmát á réttum grunni og eyða því sem stofnað var á röngum verkefnagrunni.

Verkefni skiptist í byrjun í **workspace / identifier** og **tasks** *.* Skjöl eru sett undir **workspace** **/ identifier** og verkliðir undir **tasks**.

Verður að heita **task** fyrir verkliði og **workspace** fyrir skjöl  
![image-20260120-161846.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_ccad431ec1d722bd851abdc5c9c1b075c07aec0487280899254e288a639d7c04/image-20260120-161846.png?cb=a623befff995d8e4cb14990507aeb092)

### Workspace

Undir **workspace**er hægt að:

**a)** setja inn skrár (**Add file)**

**b)** einnig er boðið uppá að búa til möppur (**Add folder**) til að auðvelda flokkun og utanumhald skráa.

#### Add file

Fyrst þarf að velja skjalategund og svo er titill skráður og lýsing ef þörf er á. Skjalið / Skráin er svo sótt með því að hlaða henni upp. Ef breytingar verða á skjalinu / skránni þá þarf að hlaða því upp aftur. Smellt á **Save**til að vista.

#### Add folder

Skrá þarf inn nafn á möppu og lýsingu þegar við á.

### Add Task

Til að bæta við verklið undir Task Folder er smellt á **Add Task** eða fellilistann.

Í fellilistanum eru tveir valmöguleikarr:

a) **Section** (yfirflokkur sem birtist í CoreData (feitletraður) og auðveldar flokkun þegar tösk eru orðin mörg)

b) **Task**

Skráningarformin eru eins fyrir **Section** og **Task** svo gæta þarf að velja rétt í byrjun. Eins og áður þarf að fylla út titil og lýsingu ef þörf er á og stilla status fyrir upphafsstöðu verkliðs.

Hægt er að draga verkliði til og raða þeim þannig upp svo þeir séu með réttri uppröðun þegar verkefni er stofnað.  
![image-20221124-113528.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_b0cdec941412d186eec04409a35e52b38e09433b9e48cf1d5a08fc66a4ee42a4/image-20221124-113528.png?cb=36a8963821820f1669897f15146ede0f)

![image-20221124-113533.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_22f6e5358b5a9c25f37efd252786b41011d8c96793a29426a0c9804b1cd19fbd/image-20221124-113533.png?cb=e6979fac4efa5287f05972d50aeb6c53)

**Empty title in form:** Ef hakað hér í þá kemur titill verkefnasniðmáts ekki sjálfkrafa í titil þegar verkefnasniðmátið er notað til að stofna verkefni.

**Create spaces:** Setja inn svæðin þar sem verkefnasniðmátið á að vera aðgengilegt. Ef þetta er tómt þá birtist verkefnasniðmátið á öllum svæðum.  
**ATHUGIÐ**að nota þarf stóran staf í fyrsta staf á heiti svæðis.  
**ATHUGIÐ**að ef sá sem er skráður inn hefur ekki aðgang að svæðinu CoreData megin þá birtist það ekki.

## Folder \[Files\]

Hér sést listi yfir sniðmát skráa, skjalasniðmát. Hægt er að bæta við sniðmátum og skilgreina þau á ákveðin svæði eða óháð svæðum.

Nýtt skjalasniðmát sett inn. Smellt á **Add File**, upp kemur valmynd þar sem titill, lýsing og slóð á skjal er sett inn.

Skjalasniðmát skilgreint fyrir ákveðin svæði**.** Ef skjalasniðmát á ekki að sjást á öllum svæðum skal skrá svæði í **Create spaces**. Hægt er að skrá mörg svæði.  
**ATHUGIÐ** að ef skjalasniðmát er hér og einnig skráð á verkefnasniðmát þá þarf að uppfæra á báðum stöðum ef gera þarf breytingar á sniðmátinu.

Sjá einnig [Dynamic Templates](https://docs.wise.is/cored/4-snimat#Sni%C3%B0m%C3%A1t-DynamicTemplates).

## Tasks \[Tasks\]

Tasks valmyndin setur upp sniðmát fyrir verkliði sem hægt er að velja úr fellilista í **Verkliðir** þegar búið er að stofna **verkefni**. Athugið að verkliðir fylgja oft verkefnasniðmátum.

Hér þarf eins og áður að skrá **Title**og skilgreina stöðu sem verður upphafsstaða þegar verkliður er búinn til.

Create spaces. Hér er hægt að tilgreina á hvaða svæðum verkliður er sjáanlegur. Hægt er að setja inn mörg svæði. Ef ekkert svæði er tilgreint er verkliður sjáanlegur á öllum svæðum í CoreData.

Caption / Caption plural -- Texti sem birtist í fellivalmynd.

Ef enginn texti er settur inn birtist verkliður ekki í fellivalmynd.

## Contacts \[Contacts\]

Hér er hægt að búa til fleiri flokkanir á viðskiptavinum. Í flestum tilfellum nægir að skrá inn **Fyrirtæki** og **Einstaklingur**.

## Dynamic Templates

Dynamic templates er viðbót sem **hægt er að kveikja á** fyrir viðskiptavini og nýta til dæmis til að gera sniðmát að útsendum bréfum. Sniðmátin eru búin til í CoreAdmin eins og venjuleg skjalasniðmát en haka þarf í **Template is dynamic** til að lýsigögn erfist. Skjalið sjálft þarf hins vegar að innihalda **upplýsingar**til að draga fram það sem við viljum sjá í skjalasniðmátinu:  
![image-20230214-155637.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_d5b3008765e1d324db850f5bddd7f11cf273052b68cf569d03f7a9acaf8f8cd9/image-20230214-155637.png?cb=c6d5a2cb10008271734b20bb8b81b8c8)

Við getum látið ykkur hafa drög að sniðmátum fyrir **Bréf út með einni undirskrift** og **Bréf út með tveimur undirskriftum**. Ef þörf er á sérsniðnum sniðmátum þá endilega hafið samband og við finnum út úr því í sameiningu.  
**ATHUGIÐ**að skjöl þurfa að vera .docx svo hægt sé að sækja skjalasniðmátið í CoreData.  
Endilega hafið samband við þjónustuborðið ef ykkur vantar frekari upplýsingar eða aðstoð, [coredata@wise.is](mailto:coredata@wise.is).

---
language: "is"
---
# Öryggi - Aðgangur

## Aðgangshópar - gott að hafa í huga

* Aðgangsveitingar eru niður á svæði þannig að mismunandi hópar geta veitt mismunandi réttindi á svæði.

* Hver hópur getur gefið réttindi á fleiri en eitt svæði.

* Hver aðgangshópur í CoreData ECM gegnir mismunandi hlutverki. Sumir hópar eru til þess að gefa aðgang að ákveðinni virkni í kerfinu en eiga ekki að gefa aðgang að gögnum á svæðum, sjá nánar [Aðgangshópar](https://docs.wise.is/cored/9-agangshopar). Aðrir hópar eru eingöngu til að gefa aðgang að gögnum.

## Notendur og hópar

Kaflinn lýsir uppsetningu notenda, hvernig hægt er að breyta stillingum notanda og hvernig hægt er að búa til aðgangshópa. Sjá einnig [Aðgangshópar](https://docs.wise.is/cored/9-agangshopar).

Aðgangshópar skilgreina réttindi notanda í CoreData.  
![image-20221124-113706.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_540e2699116e8a58b486a4b8af63d4ab55855831fe894d5b0c39637d0180570b/image-20221124-113706.png?cb=a4256c185ac5e6a1d813792c99305069)

## Nýr notandi

Undir flipanum **Notendur** , smelltu á **Nýskrá notanda / Add user** efst á skjánum.

Merktu reitirnir eru þær upplýsingar sem þarf að skrá inn í upphafi (notandanafn, fornafn, eftirnafn, netfang og lykilorð). Athugið að notandi getur breytt lykilorði síðar.  
![image-20221124-113724.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_1bc4ef32143a96f8a1bd307ba7e9483e387a7589e7da216d06a9cbbc32eeca91/image-20221124-113724.png?cb=e0e2c07d6fe225801610e372c3440a75)  
**ATHUGIÐ** að tímabil auðkenningar er aðeins hjá þeim sem eru með kveikt á viðbótinni ++Advanced Security++ .

Þó svo að notandi sé með tímabil auðkenningar skráð þá þarf að óvirkja hann til að ekki sé greitt fyrir hann.

Ef notandi er til sem viðskiptavinur í CoreData, sjá [Viðskiptavinir](https://docs.wise.is/cored/5-viskiptavinir), þá er hægt að haka í reitinn **Nota þegar skráðan tengilið** og nýta þannig þær upplýsingar sem þegar hafa verið skráðar um viðkomandi.  
**ATHUGIÐ** að ef notandinn er til sem viðskiptavinur en ekki er hakað í **Nota þegar skráðan tengilið**þá verða til tveir viðskiptavinir í CoreData.  
**ATHUGIÐ**að ef notandinn er ekki til sem viðskiptavinur þá stofnast hann sem slíkur um leið og hann er stofnaður sem notandi í CoreAdmin.  
![image-20221124-113810.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_3f8f62f75bf24473a8418c8bd6111d2afe7817f7e80aca2b404f1b1cc3f152ad/image-20221124-113810.png?cb=f1f721b0409ba02a9da05df5f84fc6ac)

Veldu þá **aðgangshópa** sem notandinn á að vera skráður í. Smelltu í reitinn **Hópur / Group** og sláðu inn fyrsta stafinn í heiti hópsins þá detta inn þeir hópar sem eiga við. Hver notandi getur verið í mörgum hópum.

Sjá nánar [Nýr hópur og/eða Bæta notanda í hóp og/eða fjarlægja úr hóp](https://docs.wise.is/cored/5-oryggi#id-%C3%96ryggi-A%C3%B0gangur-B%C3%A6tanotanda%C3%ADh%C3%B3pog/e%C3%B0afjarl%C3%A6gja%C3%BArh%C3%B3p).

Smelltu á **Vista / Save** til að ljúka skráningu.

Upp kemur yfirlitssíða yfir notandann sem veitir m.a. upplýsingar um hvaða **aðgangshópum** notandinn tilheyrir og þar með upplýsingar um hvaða **svæði** og **skjalaflokkum** hann hefur réttindi að. Efst á síðunni eru síðan hnappar til að breyta lykilorði eða skilgreiningum á notandanum.  
![image-20221124-113829.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_e11e4f7049d59d667776f3e032fe204b6c4033f895028d2cdfa8aa0be91efe11/image-20221124-113829.png?cb=c1322dc9917925c60638e5ae049b5155)

Hægt er að virkja [innskráningu með rafrænum skilríkjum](https://docs.wise.is/cored/5-oryggi#id-5.%C3%96ryggi-A%C3%B0gangur-5.6Tengjanotandavi%C3%B0innskr%C3%A1ningume%C3%B0rafr%C3%A6numskilr%C3%ADkjum) (e. Electronic Authentication) og þá er notendanafn tengt við kennitölu.

Einnig er hægt að virkja innskráningu með SSO (e. Single Sign-On / User aliases) sem tengist þá skráningu notandans inn í tölvu.

### Ytri notendur

Ytri notendur eru stofnaðir með sama hætti og innri notendur. Gott er að huga því hvað ytri notendur eiga að sjá í kerfinu annað en fylgir þeim notendahópum sem þeir eru settir í (sjá hér fyrir ofan). Hægt er að setja þá í hópinn **external** og þá sjá þeir hvorki heimasvæði né viðskiptavini (mögulega þarf að búa hópinn til í CoreAdmin \> Öryggi \> Hópar). Gott getur verið að ytri notendur skrái sig inn í kerfið með rafrænum skilríkjum (viðbót sem hægt er að kveikja á - Electronic Authentication -- notendanafn tengt við kennitölu). Einnig þarf að huga að því hvaða aðgerðir ytri aðilar eiga að geta framkvæmt í kerfinu. Hægt er að kveikja á viðbót (Required Group Extention) ef ytri notendur eiga ekki að hafa réttindi til að hlaða niður skjölum, prenta skjöl eða sjá sögu skjala. Sjá einnig kafla [Aðgangshópar](https://docs.wise.is/cored/9-agangshopar).

### Nýr hópur

Aðgangshópar skilgreina réttindi notanda að **svæðum**og þar með réttindum notanda að verkefnum og skjölum í CoreData.

Þegar búa á til hópa er gott er að hafa í huga að starfsemi (skipurit) breytist auk þess sem starfsfólk kemur og fer. Til þess að einfalda utanumhald hópa og þar með aðgangsstýringa er best að búa til hópa sem byggja á hlutverkum (e. role).

### Að búa til nýjan hóp

1. Smelltu á flipann **Öryggi** og síðan á **Hópar** og loks á á **Add Group** *.*

2. Sláðu inn umbeðnar upplýsingar um hópinn þ.e. **heiti og notendur (ekki nauðsynlegt að gera strax í byrjun)** .

   *2.1*Til að setja inn notanda. Sláðu inn nafn eða hluta úr nafni notanda í leitarglugganum og veldu hann svo með músinni eða örvartakkanum á lyklaborðinu.

3. Smelltu á **Save**

![image-20221124-114022.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_767423fc1538af38fe62e2ff18f76fededb078ecb0900f5f418b42b4a4b1fde4/image-20221124-114022.png?cb=5715ad3058a773dd31709790f9f7690d)

### Notandasíða - Notanda bætt við hóp eða fjarlægður úr hóp

1. Smelltu á sjónarhornið **Öryggi** og því næst á **Notendur** og ákveðinn notandi valinn. Yfirlitssíða yfir notandann opnast.

2. Smelltu á **Edit**.

3. Undir **Groups**, sláðu inn heiti eða hluta í heiti á aðgangshópnum sem bæta á notandanum í og veldu hann svo með músinni eða örvartakkanum á lyklaborðinu.

4. Til þess að fjarlægja notanda úr tilteknum hóp þá er smellt á **x** fyrir aftan heiti hópsins.

![image-20221124-114108.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_cf891d9b0d6de7cd9e797ceaeddff722b7c9da3890a141882916d1c21296aa04/image-20221124-114108.png?cb=5b846459d25107c8cbdf44da67981ff8)

### Hópur - Notanda bætt við hóp eða fjarlægður úr hóp

1. Smelltu á sjónarhornið **Öryggi** og því næst á flipann **Hópar** *.* Yfirlitssíða yfir hópinn opnast.

2. Smelltu á hnappinn **Edit**.

3. Sláðu inn nafn notanda í leitarglugganum og veldu hann svo með músinni eða örvartakkanum á lyklaborðinu.

4. Til þess að fjarlægja notanda úr tilteknum hóp þá er smellt á **x**fyrir aftan notandann.

![image-20221124-114156.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_d5a53b1f3630b998866e136afda453a978bf2fcd484e05fed168ddc146f25f2e/image-20221124-114156.png?cb=209ae42adeae3d3f86e2c5543ad6df85)

## Hópar - yfirlit og réttindi

Til þess að fá yfirlit yfir réttindi sem notendur í tilteknum hópum hafa þá er smellt á flipann **Öryggi** og síðan á viðkomandi hóp, en við það kemur upp yfirlitssíða hópsins.

Á yfirlitssíðunni eru upplýsingar um notendur í hópnum, hvaða réttindi hópurinn hefur á tiltekna skjalaflokka (sjá nánar [Öryggi](https://docs.wise.is/cored/5-oryggi)) og hvaða réttindi þeir hafa að skjölum á tilteknum svæðum. Sjá nánar [Svæði](https://docs.wise.is/cored/3-svi).

Til þess að **breyta réttindum hóps** þá þarf að breyta stillingum á svæðinu. Sjá nánar [Stillingar á svæði](https://docs.wise.is/cored/3-svi#Sv%C3%A6%C3%B0i-Stillingar%C3%A1sv%C3%A6%C3%B0i).

## Aðgangsstýringar

Til að einfalda yfirsýn yfir verkefni í CoreData ECM er hægt að setja þau á fyrirfram skilgreind svæði. Hægt er að gefa notendum mismunandi aðgang að gögnum verkefna eftir því hvaða svæðum þau tilheyra.

### Notendur

Aðgangi notenda að svæðum CoreData er stýrt með aðgangshópum. Notendur geta tilheyrt einum eða fleiri aðgangshópum.

### Aðgangshópar

Aðgangshópar hafa aðgang að einu eða fleiri svæðum í CoreData ECM. Hægt er að stýra því hvernig aðgang viðkomandi hópur hefur að gögnum hvers svæðis.

Hægt er að búa til marga aðgangshópa með mismunandi aðgangi að sama svæði.  
![image-20221124-114448.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_29d58d80ba82036adb70145c9d432b8ac595282bfbb967163728d62473d038a9/image-20221124-114448.png?cb=67990ab5adb0f513d555ffd0990bef0f)

### Aðgangur að gögnum svæða

Þegar aðgangur að svæði er valinn þá eru skilgreindir þeir aðgangshópar sem mega sjá svæðin og hvers konar aðgang þeir hafa að gögnum innan svæðisins.

Eftirtaldir möguleikar eru á aðgangi hópa:

#### Lesaðgangur

Hægt er að stýra því hvort aðgangshópur hefur fullan aðgang að gögnum á svæði eða eingöngu lesaðgang. Eigiaðgangshópur eingöngu að hafa lesaðgang er hakað í boxið **Read**. Sé það gert geta notendur aðgangshópsins eingöngu skoðað gögn á viðkomandi svæði en ekki breytt þeim eða bætt við skjölum. Eini möguleiki notanda til að skrifa upplýsingar er í athugasemdasvæði við skjöl og verkefni.

#### Les- og skrifaðgangur

Ef notendur í viðkomandi aðgangshóp eiga að hafa fullan aðgang, þ.e. les- og skrifaðgang, að gögnum er hakað við boxið **Everything.**

#### Verkefnaaðgangur (e. user project) -- UP aðgangur

Hægt er að stýra því hvort aðgangshópur hafi aðgang að gögnum allra verkefna á svæði eða hvort notendur í aðgangshópnum hafi eingöngu aðgang að þeim verkefnum þar sem þeir eru sérstaklega tilgreindir sem ábyrgðaraðili eða tengdir verkefni.

Ef aðgangshópur er með aðgang að öllum verkefnum geta notendur í þeim hópi séð gögn allra verkefna á því svæði. Eigi notendur í aðgangshópnum eingöngu að sjá verkefni sem þeir eru settir á (ábyrgðaraðili eða tengdur), þá er hakað í **UserProject** þegar hópnum er gefinn aðgangur að svæði.

## Eyða / Loka notendum / hópum

Ekki er hægt að eyða notendum og hópum en hægt er að gera þá óvirka með því að taka hakið úr **Er virkur / Is active** . Notandi helst þá í hópum nema hann sé sérstaklega tekinn úr þeim, sjá hér fyrir ofan, en notandinn hefur ekki aðgang að CoreData lengur.

**ATHUGIÐ** að ef notandi er tengdur við innskráningu með rafrænum skilríkjum þá þarf að eyða þeirri tengingu áður en notandinn er gerður óvirkur, sjá [Aftengja notanda við innskráningu með rafrænum skilríkjum](https://docs.wise.is/cored/5-oryggi#id-%C3%96ryggi-A%C3%B0gangur-Aftengjanotandavi%C3%B0innskr%C3%A1ningume%C3%B0rafr%C3%A6numskilr%C3%ADkjum).  
![image-20221125-094312.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_fea674cb7241ce4b962ece020bded981cd87b8b13631f3e99077ac7f740bb29a/image-20221125-094312.png?cb=3855c9bc86174e80a94f55db11bcecdb)

![image-20221125-094405.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_9baabc216ae351d040bec6bc154276d3c007a6cd453adefa6c903e7e29d484f5/image-20221125-094405.png?cb=8a4129bbadd69958887c1e221e67950d)

## Tengja notanda við innskráningu með rafrænum skilríkjum

Smellum á **Öryggi** og svo á **Electronic Authentication**  
![image-20221230-093737.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_706e3bbc5592bb0a32b707193eaed98b577d81e3db67de5531747260cab9ffaa/image-20221230-093737.png?cb=6894cbd1797ea5827f3e67acda223d4a)

Smellið á **Add mapping** til að tengja notanda við innskráningu með rafrænum skilríkjum  
![image-20221230-094401.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_b1109044a7a1d068d413e8f6ae2621891a9ba4a727ad2ba7cf3c2104560be229/image-20221230-094401.png?cb=c1638d14a377cb1d0cd5611729c09a24)

## Aftengja notanda við innskráningu með rafrænum skilríkjum

Ef notandi á ekki lengur að geta skráð sig inn með rafrænum skilríkjum þá þarf að eyða honum úr **Electronic Authentication**.  
![image-20230209-141653.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_220806342540962704e374b179fe776b666528fd526bef59a1656526ec921b88/image-20230209-141653.png?cb=420e1109736f94fe1cca04da42da4814)  
**ATHUGIÐ**að ef notandinn er óvirkur þá sést hann ekki í listanum undir Electronic Authentication.

---
language: "is"
---
# Viðskiptavinir

Sjónarhornið **Viðskiptavinir** birtir lista yfir alla viðskiptavini, þ.e. öll **fyrirtæki** og **einstaklinga** sem skráð hafa verið í CoreData.

Allir notendur í CoreData stofnast einnig sjálfvirkt í viðskipavinalistanum við stofnun í CoreAdmin. Þegar smellt er á **Viðskiptavinir** birtist listi í stafrófsröð yfir alla viðskiptavini.  
![image-20221018-094628.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_eff22b60c6859215e1fddd2c9819db6087f9727a51d6e875e468ee7fba3251ef/image-20221018-094628.png?cb=6ecbdf0bd0efd27b1643bb532083c7b9)

![image-20221117-113542.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_30c070e530e8f82e61692cb758ce68a702635a5edcc1061e15fd36ef9323f3c8/image-20221117-113542.png?cb=00c740e4fb36da87977642d79e647086)

Hægt er að afmarka listann með því að nota **Afmörkun**og nota leitarglugga til þess að finna ákveðna einstaklinga eða fyrirtæki.

Til að **breyta röðun í dálkum** er smellt á heiti dálka, t.d. ef smellt er á **Kennitala**raðast listinn eftir því.

Til að sjá viðskiptavini með **virka stöðu** er farið undir **Afmörkun** \> **Virkur** . Einnig er hægt er að afmarka listann eftir **Tegund** með því að smella á **Fyrirtæki** eða **Einstakling** eða eftir skilgreindum hópum*.*  
Við mælum eindregið með því að skrá alltaf kennitölur einstaklinga og fyrirtækja þegar viðskiptavinir eru stofnaðir til að auka réttleika gagna.

## **Hópar**

Hægt er að búa til hópa fyrir viðskiptavini (CoreAdmin) en það býður upp á þægilega flokkun á viðskiptavinum sem gott getur verið að halda saman. Með þessum hætti er einfalt að sækja t.d. netföng aðeins þeirra sem eru í ákveðnum hópnum. Viðskiptavinur getur verið í fleiri en einum hóp.

Ef bæta á viðskiptavini í hóp (bæði hægt að skrá fyrirtæki og / eða einstaklinga í hóp) er það gert í skráningarspjaldi viðskiptavinar. Smellt er á **Breyta**.  
![image-20221117-113925.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_89a0e5c0d1b2c38fa7afb450445a0047abef3472611f3686d08c97db5dd4b9d4/image-20221117-113925.png?cb=a958b00c3c88e5cce0026750f1a62abc)

## Breyta eða bæta við upplýsingum um viðskiptavin sem þegar hefur verið stofnaður

Finnum viðkomandi viðskiptavin, smellum á hann og svo á Breyta.

![image-20240321-101217.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_6f9a83801ae9f01775de9e4353c03f60bfe6b0ccd464b461ee6ac1b437902029/image-20240321-101217.png?cb=ef0397599ee444569ba9ecfb287215ad)  
![image-20240321-101328.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_d8c71813e454121f6864f085ece7de4bd606e22a739d468d8f82533834520401/image-20240321-101328.png?cb=569f903ad8242183bc03404b530e16ea)

Viðeigandi upplýsingum bætt við eða áður skráðum upplýsingum breytt.

Smellt á **Vista**.

## Upplýsingar um viðskiptavini

Til að fá upp **yfirlit fyrir viðskiptavin** er smellt á viðkomandi í lista yfir viðskiptavini. Viðeigandi lína í listanum verður ljósblá þegar músarbendli er sveimað yfir, þá er hægt að smella.

Til hægri í flipanum **Yfirlit** eru dálkar í bláum lit sem birta helstu **upplýsingar sem skráðar hafa verið um viðskiptavin**; t.d. heimilisfang, kennitölu og þar er einnig hægt að skoða breytingasögu viðskiptavinar.

Í flipanum **Yfirlit** birtast nýjustu færslur fyrir verkefni, verkliði, skjöl og viðskiptavini. Aðrir flipar birta upplýsingar um **einstaklinga, verkefni, verkliði** og**skrár** sem tengjast viðkomandi viðskiptavin.  
![image-20221117-114903.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_2dd0df70561f267a3af4e2a12ef7ba72c9b097de24f30400f5ae6ec653c7eb5c/image-20221117-114903.png?cb=875c26a4803cac6ec8ed8afa328fedd0)

## Skrá nýjan viðskiptavin

Hægt að skrá nýja viðskiptavini með því að smella á **Stofna** . Þá kemur **upp skráningarviðmót fyrir nýjan viðskiptavin.** Ef smellt er á píluna fyrir aftan **Stofna** er hægt að velja um að stofna **Fyrirtæki** eða **Einstakling** *.*

* ![image-20221117-114956.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_7d2674d83d8978f13ea0e6f761ce96a0eeaa08ee7369cf850db38034e752a2dd/image-20221117-114956.png?cb=00aaf00ee2e7bb1ff6e434d5f32078e2)

  Skráðu inn nafn á nýjum viðskiptavini, að öðru leyti er valfrjálst hvað skráð er af upplýsingum um viðskiptavin. Hægt er að vista um leið og búið er að skrá nafn en gott er að skrá inn allar tiltækar upplýsingar. **Gott er að hafa sem reglu að skrá alltaf að lágmarki nafn og kennitölu** (minnkar hættu á að fyrirtæki / einstaklingar séu tvískráð).

<!-- -->

* Viðmót fyrir **Fyrirtæki** kemur upp sjálfkrafa þegar smellt er á ***Stofna*** . Ef um **Einstakling** er að ræða þarf að velja hann úr valstiku. Þá bætist við í skráningarviðmótið til að velja**Fyrirtæki** sem einstaklingur tengist en að öðru leyti er skráningin sú sama og ef um fyrirtæki er að ræða.

![image-20221117-115125.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_0237199b79ba3da90209a3ebb803e47d0368af6b670978930354be729cfe7274/image-20221117-115125.png?cb=96f1ca41282bcd05af73ddd36ecb3476)  
![image-20221124-160446.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_fc603534575cd55cd2b0024748036ffb3464070ae64f061496aa466673404104/image-20221124-160446.png?cb=23889f9745a681bb9dd0e35464f592d1)

* Smelltu á texta á svæðum eða á nafn svæðis til að fá upp skráningarglugga.

<!-- -->

* Ef verið er að skrá **Einstakling** er hægt að skrá fyrirtæki sem einstaklingur tengist í reitinn **Fyrirtæki**. Skrifaðir eru fyrstu stafir eða hluti af heiti til að fá fram fellilista með fyrirtækjum sem þegar eru skráð. Ef fyrirtæki hefur ekki verið skráð áður er hægt að skrá það inn í kerfið með því að ýta á Enter þegar byrjað er að skrá í svæðið eða á græna plúsinn fyrir aftan. Í báðum tilvikum kemur upp gluggi til að skrá nýtt fyrirtæki.

* Til að breyta um fyrirtæki er smellt á x fyrir aftan fyrirtæki og valið annað ef við á.

<!-- -->

* ![image-20221117-124719.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_c1f3e837a615127c6dc60b917e931118179afe9a1be17b35fd037dc26c2a74f1/image-20221117-124719.png?cb=4f98d0e52c649a0f474cc5e4d9d7c488)

  Skráið **kennitölu** . Til að gera breytingu þar er smellt á ***Breyta.***
* **Heimilisfang**. Skráið heimilisfang, veljið land af lista ef annað en Ísland. Til að eyða færslu er smellt á (-).

<!-- -->

* Þegar **Sími** , **Netfang** , **Vefslóð** er skráð þarf að velja af listum hvort um vinnu-, heima-, farsíma eða fax sé að ræða, einka- eða vinnunetfang og vefsíðu eða blogg. **Athugið að setja þarf +landsnúmer fremst í símanúmer (354** fyrir íslensk símanúmer, dæmi: **+3545503900**).

<!-- -->

* Hægt er að skrá fleiri en eitt símanúmer, netfang og vefslóð með því að smella á **Bæta við** .

  Til að hætta við / eyða færslu er smellt á (-).

* Lýsing. Hægt er að skrá nánari lýsingu sem tengist viðskiptavini.

<!-- -->

* Smellt á **Vista** til að ljúka skráningu viðskiptavinar.

  Smellt á **Hætta við** til að hætta við skráningu.

Til að sjá nánar eða breyta upplýsingum um viðskiptavin sem er nú þegar til í kerfinu er smellt á hnappinn **Breyta (1)** efst á yfirlitssíðunni**.**

Sé smellt á **Tannhjólið (2)** við hlið **Breyta** er hægt að skrá **(4)** viðskiptavin á verkefni eða breyta fyrirtæki í einstakling og öfugt **(3)**. Einnig er hér hægt að eyða viðskiptavini.  
![image-20221117-130040.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_89c29f62448acb8c9d53b7ed2e14407cf6102e5aa1271460eb6967d6838d7c6b/image-20221117-130040.png?cb=9b2850761c660e12a727fce5f5e45298)

## Breyta mörgum viðskiptavinum í einni aðgerð

Hægt er að nota **Breyta mörgum** virknina í viðskiptavinasýn til að gera samskonar breytingar á mörgum viðskiptavinum í einu.

Virknin er möguleg ef "Multi edit" extension er virkjuð. Þá er mögulegt að velja hvaða svæði mega vera virk í "breyta mörgum" hamnum. Svæðin eru skilgreind undir: `CoreAdmin` → `Configuration` → `Dynatypes` → `Contacts`→ (`Enable Multiedit` svæðin):

![93119d0e-675d-4dba-9042-53e85483ce17#media-blob-url=true&id=a5eb6023-c4a1-4202-8a1b-dccd8bff1d2a&collection=&contextId=58473&height=575&width=713&alt=](https://docs.wise.is/__attachments/a_e7b608022f51dae877df36fa21c4b1e4f3a253a129cbb24ab2a20eb434de3fcb/93119d0e-675d-4dba-9042-53e85483ce17%23media-blob-url=true&id=a5eb6023-c4a1-4202-8a1b-dccd8bff1d2a&collection=&contextId=58473&height=575&width=713&alt=?cb=3378679cf2d2b3da5bc753a137a3c7b7)

Þegar þetta hefur verið stillt af þá birtist hnappurinn ef einn eða fleiri viðskiptavinir / tengiliðir eru valdir.  
Endilega ekki hika við að hafa samband ef ykkur vantar aðstoð við þetta, sjá nánar um **Configuration** í **CoreAdmin** [hér](https://docs.wise.is/cored/7-configuration).  
![image-20240124-205424.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_813b3ae20d91c9227845ef72bdbec2434f0abf63a09abe83d91b4707a8deefa8/image-20240124-205424.png?cb=115957ae6cf884ea593f319e0251ae06)

Ef við veljum nokkra viðskiptavini / tengiliði þá birtast þau svæði sem stillt hafa verið í dynatype Contact:  
![image-20240124-210143.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_b601089f0cf4b8df455fd9e5a756173eed6a719024f3140d8d70814a4a2642ca/image-20240124-210143.png?cb=320822bbd6600386e490a037a06ee23b)

Þegar svæðin sem breyta á hafa verið valin, gildum breytt og smellt hefur verið á **Vista** / **Save**þá kemur staðfestingargluggi eins og þessi:  
![image-20240124-210342.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_289b9f92708ecc7202f2b8167fc14f5bb923e7cf816bc4b2be1d56e450f336c8/image-20240124-210342.png?cb=d67a35b417ffad5c73c5a8a276f59c91)

Við höfum þrjá valmöguleika í þessum glugga:

1. `Staðfesta og vista` vistar breytingar.

2. `Hætta við` lokar glugganum og hættir við aðgerðina.

3. `Til baka` fer til baka í gluggan þar sem valið er hverju á að breyta.

Ef við veljum að `Staðfesta og vista` þá fáum við tilkynningu um að Viðskiptavinum / Tengiliðum hafi verið breytt.  
![image-20240124-211225.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_a580c6f8b19fcd287cd1ca9441d693a7d7b55633be06c90abb0e745003d6d778/image-20240124-211225.png?cb=32ece8dbada31617f4652b9f29501e44)

---
language: "is"
---
# Óútkljáð

Varðveisla, tilfærsla eða eyðing skjala í CoreData ákvarðast á skilgreiningum sem settar eru á skjalaflokka og skjalalykla.

Sjónarhornið **Óútkljáð** veitir yfirsýn yfir skjöl, verkefni og svæði sem eru komin á geymslu- eða grisjunartíma.

Í öllum tilvikum þarf skjalastjóri að samþykkja eyðingu skjala sem birtast í eftirfarandi fjórum flokkum.

## **Space cutoff**

Skjali sem er raðað neðar í leitarheimtum samkvæmt skilgreindri geymslu- og grisjunaráætlun fyrir svæði birtist hér.

### **Space Disposition**

Skjali sem er eytt samkvæmt skilgreindri geymslu- og grisjunaráætlun fyrir svæði birtist hér.

### **Fileplan cutoff**

Skjali sem er raðað neðar í leitarheimtum samkvæmt skilgreindri geymslu- og grisjunaráætlun fyrir skjalalykla birtist hér.

### **Fileplan disposition**

Skjali sem er eytt samkvæmt skilgreindri geymslu- og grisjunaráætlun fyrir skjalalykla birtist hér.

**Ef upp kemur að geymslu- og grisjunaráætlanir stangast á þá hefur fileplan (skjalalykill) forgang.**

---
language: "is"
---
# Verkliðir

Hægt er að skrá **verkliði** á verkefni og flokka þá niður eftir þörfum. Til að skrá nýjan verklið eða flokk verkliða verður fyrst að opna verkefnið sem verkliðurinn / flokkurinn á að tilheyra. Smellt er á flipann **Verkliðir** og þarer hægt að velja milli þess að **skrá nýjan verklið eða nýjan flokk verkliða**. Skráning verkliða og flokka verkliða er gerð á sama hátt.

Hægt er að hafa sérstök **verkliðasniðmát** fyrir ákveðin svæði og einnig er hægt að búa til verkliði sem stofnast sjálfkrafa með **verkefnasniðmátum** , sjá nánar í [Verkefni](https://docs.wise.is/cored/3-verkefni).  
![image-20221117-130735.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_015ced07b56476ef0967368e9ef02f447d253073a5400d8ddac5b7ef89a67483/image-20221117-130735.png?cb=0ef84f2279c293738aaf1c9570e9bbba)

## Skráning á nýjum verklið eða nýjum flokki verkliða

Smellið á örina hjá **Stofna** og síðan á **Flokkur** eða**Verkliður** *.*Þá kemur upp skráningarviðmót fyrir nýjan flokk/verklið:

* **Titill.**Lágmarksupplýsingar til að geta vistað verklið.

* **Lýsing.**Hægt er að skrá inn nánari lýsingu á verkliðnum.

* **Lokið fyrir** . Veljið lokadagsetningu ef við á. Til að velja dagsetningu dagsins er smellt á **Í dag** eða valið er af **dagatali** sem kemur sjálfkrafa upp þegar valið er **skrá dagsetningu** . Verkliður birtist þá í **Lokið fyrir** virkni efst upp í hægra horninu í CoreData.

<!-- -->

* ![image-20221117-130956.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_14f05d0bc5cdf070a7ed193d3d34b238645e2c7d64f197abce1f661c33f84ccf/image-20221117-130956.png?cb=820bf05d9da56afb95843735317eed96)

  **Ábyrgðaraðili** . Til að velja ábyrgðaraðila er smellt á **Skrá ábyrgðaraðila** *.* Skrifið byrjun eða hluta af nafni og veljið af lista sem þá kemur upp. Hægt er að skrá fleiri en einn ábyrgðaraðila.

  Smellt á **x** til að eyða út völdum aðila.
* **Tengdur starfsmaður** . Smelltu á **Skrá tengdan starfsmann** til að skrá einn eða fleiri starfsmenn sem tengjast verkliðnum. Smelltu á **x** til að eyða út völdum aðila.

![image-20221118-121326.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_8d8c0bf8df17f382897187b82b48766a3606636a566bc694c2916054050b1d44/image-20221118-121326.png?cb=ab9ac51a9de6c1c0d0fcffbc2d3b2415)

* **Viðskiptavinur** . Smellt er á **Skrá viðskiptavin** og síðan skrifaðir fyrstu stafir eða hluti af heiti. Ef viðskiptavinur hefur ekki verið skráður áður er hægt að skrá hann strax inn í kerfið, með því að ýta á**Enter** þegar byrjað er að skrá í svæðið, eða á græna plúsinn fyrir aftan. Í báðum tilvikum kemur upp gluggi til að skrá nýjan viðskiptavin (einstakling/fyrirtæki).

![image-20221118-121538.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_0da5addb105c0d545b51e364f28c243b26731513ecc94afb4686a1010b4f715c/image-20221118-121538.png?cb=51d596dcbd480bc529159f7c44895439)

* **Skráið upplýsingar um nýjan viðskiptavin** (einstakling/fyrirtæki) og smellið á **Vista.**

* **Efnisorð** . Hægt er að skrá inn efnisorð. Skráðu inn efnisorð og ýttu á **Enter** eða **kommu** (**,** ). Hægt er að skrá inn mörg efnisorð en athugið að eftir hvert orð sem skrifað er verður að ýta á **Enter eða kommu.**

![image-20221118-121717.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_dea014d42cf73197888cbe0316efea991ecd97e46c2eaa5c53e320f502e460c9/image-20221118-121717.png?cb=1cf44b356c9c1cf1410a62308ac2cfb9)

* Staða er valin úr lista og nánari skýring skráð ef við á í svæði merkt **skýring** *.*

* Smelltu á **Vista**til að vista verkliðinn.

Til að sjá nánar eða breyta verklið eða flokk er smellt á nafn verkliðs eða flokks**.**Ef flokkur/verkliður er valinn (hakað í boxið fyrir framan nafnið) er hægt að ljúka, færa eða eyða tilteknum flokk/verklið.  
![image-20221118-121958.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_bafbc15bfdaf6e150900127a2cd9d330c707bb656aaee6e5c17881e956f81283/image-20221118-121958.png?cb=ca1b36ae957089739bda824bbb92da1f)

## Flokkun verkliða

Þegar **Nýr flokkur** er skráður eru allir verkliðir undir honum tengdir flokknum. Hægt er að færa verkliði til með því að smella á **krossinn (1)**fyrir framan verkliðinn og draga hann ofar eða neðar í listann eða undir nýjan flokk. Ef sjálfur flokkurinn er færður fylgja með allir þeir verkliðir sem tilheyra honum.  
![image-20221118-122458.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_9880dea08587726de6e36a5a2e2226a955b77ccbd9e3509f6bc5d0307049a2bb/image-20221118-122458.png?cb=cf57005d72e08ae195320e2f9d9ebadb)

## Magnaðgerðir verkliða

Eins og í vinnslu skjala þá er hægt að vinna samtímis með marga verkliði og flokka. Hægt er að **Loka** , **Færa, Breyta mörgum, Eyða, Breyta** og**Skrá á mig** mörgum verkliðum/flokkum í einu. Það er gert með því að haka í reitinn framan við verkliðina eða flokkana og smella síðan á **viðkomandi aðgerð** **(2)**.

**Loka** þá fá allir valdir verkliðir stöðuna **Lokið**.

**Færa** er valið þegar færa á verkliði yfir í annað verkefni. Gluggi opnast sem notandi getur flett upp verkefninu sem færa á verkliðina yfir á.

**Breyta** **/ Breyta mörgum**(séraðlögun) býður upp á að breyta stöðu, lokadagsetningu og ábyrgðaraðila á öllum völdum verkliðum. Hakað er við það sem á að breyta og því næst er hægt að breyta því sem við á.  
![image-20221118-122727.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_3e9e0362f1611f11436514be1af1304d52444ecf6069dd41fef50a14819143e4/image-20221118-122727.png?cb=8e101f864b6456bb94caad850385d54b)

**Eyða** þýðir að öllum völdum verkliðum er eytt.

**Skrá á mig** býður notendum upp á að skrá sig sem ábyrgðaraðila á valda verkliði. Þegar smellt er á hnappinn kemur upp gluggi þar sem sjá má titil og núverandi ábyrgðaraðila (ef skráður). Ef annar notandi er skráður ábyrgðaraðili helst hann sem slíkur og nýi ábyrgðaraðilinn bætist við.  
![image-20221118-124202.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_db708e0bdd0cbdbef8894c5ec021b9752fd8abcfe2be18e0d9d0e4c81ceb99e7/image-20221118-124202.png?cb=74d027ca3e354edc9f958b6ffa610068)

---
language: "is"
---
# Configuration

Undir Configuration \> Efnisorð sést listi yfir öll skráð efnisorð.

Efnisorð eru notuð í CoreData til að skilgreina verkefni / skjöl / verkliði nánar til að auðvelda leit og afmörkun.

Hægt er að bæta við efnisorðum eða fjarlægja þau sem fyrir eru.

Þótt efnisorð sé fjarlægt úr efnisorðalista hverfa þau ekki af verkefnum / skjölum / verkliðum í CoreData .  

![image-20221124-124837.png](https://docs.wise.is/__attachments/a_81cea3d43b2ea7a2be5b8240ae69286df108c1180d2da965446fcfe84b55d2ec/image-20221124-124837.png?cb=d9de1036b5a26deaf29c82c9a7bf8e62)

Allir notendur geta búið til efnisorð í CoreData en aðeins sá sem hefur CoreAdmin réttindi getur sýslað með þau hérna megin. Mögulegt er að loka fyrir að almennir notendur geti búið til ný efnisorð og þá geta aðeins skilgreindir notendur búið þau til. Endilega hafið samband ef frekari upplýsinga er óskað, [coredata@wise.is](mailto:coredata@coredata.is).  
**ATHUGIÐ** að annað sem er undir Configuration er gott að fá aðstoð við hjá notendaþjónustu CoreData ([coredata@wise.is](mailto:coredata@wise.is)) þar sem breytingar geta haft áhrif á grunnvirkni í kerfinu.

[Next Page](https://docs.wise.is/llms-full.txt/1)
