Uppsetningaraðstoð

Mikilvægt er að vera búin að sækja um rafræn skilríki ef ekki hefur verið sótt um þau nú þegar, en það er gert hjá Auðkenni ehf. (http://www.audkenni.is ). Athugið að kerfið styður einungis búnaðarskilríki, svo kortaskilríki duga ekki til. Fyrsta skref er að breyta hlutverkinu í Hlutverk Innheimtukerfis, en það er gert undir Mínar stillingar (alt+T):

worddav7495c274ce8ab1cad39aef53853fab9a.png?version=1&modificationDate=1670433197549&cacheVersion=1&api=v2

Uppsetning

Til að byrja með þarf að setja Innheimtukerfi Wise upp í Business Central.

Farið í Uppsetning með hjálp sem er aðgengilegt ef smellt er á tannhjól sem er staðsett efst í hægra horni vafrans:

worddavd73c20208be50f6c44168797b92c82ad.png?version=1&modificationDate=1670433197466&cacheVersion=1&api=v2&width=199

Veljið Setja upp Innheimtukerfi Wise og fylgið leiðbeiningaraðstoðinni:

worddav48a9778f75c3f804d074cf8093b9b146.png?version=1&modificationDate=1670433197305&cacheVersion=1&api=v2&width=643

Við það opnast nýr gluggi með uppsetningaraðstoð fyrir Innheimtukerfi Wise.  Veljið þar Áfram:

worddav3b190651c090371ade9ae1cd4fa6b1d0.png?version=1&modificationDate=1670433197228&cacheVersion=1&api=v2&width=443

Veljið banka eða innheimtustofnun til að stofna þjónustu fyrir og ýtið á Áfram.

Veljið banka fyrir valda vefþjónustu og ýtið á Áfram.

worddavad36d547d6f78daae6c8bfd449b48a08.png?version=1&modificationDate=1670433197140&cacheVersion=1&api=v2&width=419
worddav148949d186336484d0a2de18644bcf6d.png?version=1&modificationDate=1670433197054&cacheVersion=1&api=v2&width=485

Veljið hvort stofna eigi nýjan innheimtuaðila eða hvort velja eigi uppsetningu af innheimtuaðila sem þegar hefur verið stofnaður fyrir sömu innheimtustofnun. Veljið Áfram.

worddave6313206784b2c52cd4be832ca4b30ba.png?version=1&modificationDate=1670433196971&cacheVersion=1&api=v2&width=425


Á næstu mynd þarf að stofna Kenni notanda fyrir Innheimtukerfið. Ýtið á örina við Kenni notanda og veljið Nýtt.

worddav6d0733bb3d5db214673fdc6e1b987fe7.png?version=1&modificationDate=1670433196892&cacheVersion=1&api=v2&width=565

Ýtið á örina og veljið Nýtt.

worddav99b64acbaab2e4cda6d9b96b089b5ce0.png?version=1&modificationDate=1670433196811&cacheVersion=1&api=v2&width=553


Skráið notendanafn í Kenni notenda, uppflettilisti með notendanöfnum birtist og hægt að velja úr honum. Veljið Í lagi.

worddav9ee5e15a98d4906472dceb6f0d37110d.png?version=1&modificationDate=1670433196732&cacheVersion=1&api=v2&width=569

Ýtið Í lagi.

worddav0b9b4dc49a35cb8d68da3ea8955c09f2.png?version=1&modificationDate=1670433196655&cacheVersion=1&api=v2&width=509

Skráið inn Notandanafn og Lykilorð, sem notandi fær uppgefið hjá þeirri vefþjónustutengingu innheimtukrafna sem hann er að nota. Ýtið á Áfram.

worddavba83d06d3bd283d98aee6d743d0bb554.png?version=1&modificationDate=1670433196564&cacheVersion=1&api=v2&width=477

Skráið Kennitölu, Bankanúmer og Bankareikning fyrir nýjan innheimtuaðila, vegna kröfupottsins. Kröfu-auðkenni innheimtuaðila segir til um greiðslur hvaða auðkenna verða lesnar inn í kerfið.  Ef ekkert er tilgreint eru greiðslur allra auðkenna kröfuhafans lesnar inn. Komma er notuð til að skipta niður auðkennunum ef þau eru fleiri en eitt. Þegar búið er að fylla þetta út, ýtið á Áfram.

worddav47895c5ae4c951692404525df073558a.png?version=1&modificationDate=1670433196488&cacheVersion=1&api=v2&width=412

Hér þarf að skrá inn Wise Api vefþjónustu sem er úthlutað af Wise. Notandi ætti að hafa fengið tölvupóst með þessum upplýsingum.

Setja þarf upp hugbúnaðarskilríki frá Auðkenni og skrá lykilorð. Ýtið á Áfram.

worddav8811ccc71253736ec077f720915d46ba.png?version=1&modificationDate=1670433196395&cacheVersion=1&api=v2&width=429

Veljið greiðsluhátt sem á að nota fyrir innheimtuaðilann. Ýtið á örina við Greiðsluháttur innheimtuaðila og veljið Nýtt.

worddavb5d5551dc8a23d75f377409e06fc1e22.png?version=1&modificationDate=1670433196317&cacheVersion=1&api=v2&width=491


Næst þarf að stofna nýjan greiðsluhátt. Skráið GRS í dálkinn Kóti og í Lýsingu er skráð Greiðsluseðill. Veljið Í lagi.

worddav49477087d5b94b5e764db6c40a6395bb.png?version=1&modificationDate=1670433196240&cacheVersion=1&api=v2&width=563

Einnig þarf að ákveða hvort að krafa myndist við bókun sölureiknings. Þegar það er búið er ýtt á Áfram.

worddav20f5680928fdbee220c38ebd024ba085.png?version=1&modificationDate=1670433196154&cacheVersion=1&api=v2&width=473

Þetta er lokaskrefið. Ýtið á Ljúka.

worddav09c1d3d03ea68bea95b623e9bdb87fa8.png?version=1&modificationDate=1670433196075&cacheVersion=1&api=v2&width=438

Til hamingju, grunnuppsetningunni er nú lokið og þú getur byrjað að nýta þér möguleika kerfisins.


Uppsetning innheimtuaðila

Því næst er farið í spjald innheimtuaðila með því að velja réttan innheimtuaðila og valin aðgerðin Uppsetning. Stuðst er við innheimtusamning sem gerður hefur verið við bankann þegar helstu stillingar eru settar inn. Skýringar eru við þá reiti sem verða að vera útfylltir, aðrir reitir eru fylltir út ef við á. Farið vel yfir bókunaruppsetningar til að vera viss um að þær séu eins og þið óskið.

worddava045c6d1ee3604ec4b6633e26490834b.png?version=1&modificationDate=1670433195993&cacheVersion=1&api=v2&width=643

Innheimtukerfi – stillingar

Því næst þarf að setja upp stillingar innheimtukerfisins. Það er gert í verkhlutanum Stofngögn Innheimtukerfis. Búið er að fylla út í helstu reiti en það þarf að fara yfir eftirfarandi atriði:

worddav73a5ca18905f4b3dccbb56c7f9b09143.png?version=1&modificationDate=1670433195720&cacheVersion=1&api=v2&width=643

Greiðsluháttur/Innheimtuaðila

Í þessari töflu er settur inn sá innheimtuaðili sem nota á. Byrjið á að velja Breyta lista áður en listanum er breytt.

worddav8dfe13b7e83bca6a7bd6fc8620373981.png?version=1&modificationDate=1670433195649&cacheVersion=1&api=v2&width=643

Í reitinn Greiðsluháttur er valinn sá greiðsluháttur sem þeir viðskiptamenn sem eiga að fá kröfu í banka, eru merktir með. Athugið að merkja viðskiptamenn með þessum valda greiðslumáta svo það sé öruggt að þeir fái kröfurnar í bankann. Það er gert undir flipanum Greiðslur á viðskiptamannaspjaldinu.

worddav61fe5f6aff8958164ffb4090c93d787a.png?version=1&modificationDate=1670433195570&cacheVersion=1&api=v2&width=643

Í reitinn Innheimtuaðili er síðan valinn sá innheimtuaðili sem þið munið nota.


Notendur vefþjónustu

Það þarf að setja upp notendur og skilríki þeirra til að tengjast við bankann beint úr Business Central. Það er gert undir listanum Innheimtuaðilar. Þar velur þú innheimtuaðilann og smellir á Vefþjónustur í aðgerðastikunni:

worddav942932e392d2f6230c48558f5db440b6.png?version=1&modificationDate=1670433195480&cacheVersion=1&api=v2&width=643


Þegar þangað er komið þá er valið Notendur.

worddav6748fa75736e5c790c59ad5ac9c6123b.png?version=1&modificationDate=1670433195396&cacheVersion=1&api=v2&width=538


Þá opnast þetta spjald.

worddav2f17577537258cd3bc0ae8c37e956bc9.png?version=1&modificationDate=1670433195319&cacheVersion=1&api=v2&width=643

Hér er sett inn Notandi í Business Central, Notandanafn í bankann og Lykilorð í bankann. Því næst er smellt á Skilríki. Þar opnast þessi gluggi:

worddav6b2c5e1e99bd986d1fd1abf3e863af55.png?version=1&modificationDate=1670433195238&cacheVersion=1&api=v2&width=643

Undir Tegund skilríkis er valið Soft-skilríki sem er búnaðarskilríki. Athugið að kerfið styður einungis búnaðarskilríki, svo kortaskilríki duga ekki til. .

worddav1dcd615db865b144db42fff99f8498d9.png?version=1&modificationDate=1670433195153&cacheVersion=1&api=v2&width=496

Nú ætti uppsetningu Innheimtukerfisins að vera lokið og hægt að stofna kröfur.