Útgáfulýsing Iobs29.0.20261124.94

IOBS Bankasamskiptakerfi Wise

Útgáfunúmer - Iobs29.0.20261124.94

Dagsetning - 24.11.2026

Helstu viðbætur og breytingar:

Nýtt

  • Lokað af og Númer fylgiskjals lokunar — ný svæði í Hreyfingum netbanka og á línum bankaafstemmingar sem sýna hvaða viðbót lokaði bankafærslu, Wise Banking eða önnur viðbót eins og Wise Collection Claims, og með hvaða fylgiskjali. Finna þekktar færslur skráir nú lokunina og sleppir bankafærslum sem önnur viðbót hefur þegar lokað, svo sama færslan sé ekki færð aftur í fjárhag.

  • Wise AI í Wise Banking — með Wise AI getur notandinn séð greiðslur og þær greiðslur sem þarfnast athygli, stofnað greiðslutillögu fyrir opnar lánardrottnafærslur sem hann nefnir, staðfest greiðslur eða afturkallað staðfestingu þeirra, og séð stöðu greiðslna og greiðslustillingar lánardrottna. Í bankaafstemmingu getur hann ræst sókn bankayfirlita, séð bankayfirlitsfærslur og stöðu afstemmingar hvers bankareiknings, fært yfirlitsfærslur inn á bankaafstemmingu, keyrt sjálfvirka jöfnun, fengið tillögur að jöfnun lína sem stóðu eftir ójafnaðar, jafnað valdar línur, fært ójafnaðar línur í færslubók og bókað afstemmingu. Wise AI sendir aldrei greiðslur í bankann; notandi sendir þær úr Wise Banking eins og áður.

  • Greiðslur sem Wise AI hefur undirbúið eða staðfest eru athugaðar þegar þær eru sendar í bankann úr Wise Banking, meðal annars hvort bankareikningur viðtakanda hafi verið staðfestur og ekki nýlega breyttur, og hvort fyrri sending sömu greiðslu kunni þegar að hafa náð í bankann. Stillingarnar eru á síðunni Bankauppsetning Wise AI, og sendingar sem óvíst er hvort náðu í bankann eru leystar á síðunni Sendingartilraunir Wise AI í banka. Báðar eru opnaðar úr uppsetningu Wise Banking og af Greiðslum. Greiðslur sem Wise AI hefur ekki komið að eru sendar eins og áður.

Athugið

  • Útgáfan krefst Business Central 29. Umhverfi á eldri útgáfu fá hana þegar þau hafa verið uppfærð í útgáfu 29.

  • Wise AI aðgerðirnar nýtast þegar Wise AI hefur verið sett upp í Business Central. Án Wise AI er virkni Wise Banking óbreytt fyrir utan svæðin Lokað af og Númer fylgiskjals lokunar.

Hafðu samband

Þjónustuborðið okkar er opið alla virka daga frá kl. 09 – 17. Sérfræðingar okkar sitja þar fyrir svörum og aðstoða þig með ánægju.

Hafðu samband ef við getum aðstoðað þig í síma 545-3232, eða með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan til að stofna beiðni í þjónustukerfi Wise.