Stafrænt Ísland.is Tengilinn fyrir Business Central er viðbót fyrir Business Central. Kerfið leyfir líka umsýslu fyrir önnur kerfi enn Business Central sem geta API samskipti, svo sem PowerPlatform ( Sharepoint, Workpoint og fleiri kerfi ). Viðbótin virkar bæði fyrir Business Central 14 og Business Central í skýinu.
Wise gefur út handbók fyrir öll þau sérkerfi sem fyrirtækið hefur þróað. Handbækurnar taka fyrir virkni kerfanna og er því ekki um kennslubók að ræða. Farið er í gegnum aðalvalmynd kerfisins þar sem útskýrt er hvaða upplýsingar þar eru geymdar og hvaða virkni er í boði hverju sinni.