Útgáfulýsing 29.0.20261124.39

APPR Uppáskriftarkerfi Wise

Útgáfunúmer - 29.0.20261124.39

Dagsetning - 24.11.2026

Helstu viðbætur og breytingar:

Nýtt

  • Athuganir á reikningi — nýr upplýsingakassi á reikningasíðum Wise Approvals (Skráning uppáskriftarreiknings, Uppáskriftareikningar, Uppáskriftareikningur, Greiðsluuppáskriftareikningur, Uppáskrifaður reikningur og Hafnaður reikningur). Hann sýnir athuganir á reikningnum áður en ákvörðun er tekin, til dæmis hugsanlega tvískráningu, upphæð hærri en venjulega frá lánardrottni, nýlega breyttan bankareikning lánardrottins, fyrri hafnanir, óvenjulegan fjárhagsreikning og hvort reikningurinn þarf greiðsluuppáskrift. Athuganirnar eru til upplýsinga og stöðva ekkert.

  • Wise AI í Wise Approvals — með Wise AI getur notandinn séð reikningana sem bíða hans, flett upp reikningum eftir númeri, lánardrottni eða stöðu og séð hvaða reikningar hafa beðið lengi og hjá hverjum. Hann getur stofnað reikning í skráningu, kóðað línur hans og sent hann til uppáskriftar, samþykkt, greiðslusamþykkt eða hafnað reikningi, afturkallað uppáskrift, endurúthlutað reikningi til annars uppáskrifanda, bætt við athugasemd, sent uppáskrifanda áminningu og bókað uppáskrifaða reikninga. Wise AI vinnur með heimildum notandans í Wise Approvals, og samþykkt, greiðslusamþykkt, höfnun og aðrar ákvarðanir eru aðeins framkvæmdar eftir að notandinn hefur staðfest þær.

Lagað

  • Uppáskrifandi á haus reiknings fékk áminningu í tölvupósti um reikning þótt línur hans biðu enn annarra uppáskrifenda. Áminningar taka nú mið af því hvort reikningurinn bíður hans í raun.

Fjarlægt

  • Beiðnir eru úreltar: aðgerðir og reitir fyrir beiðnir eru faldir, og virknin verður fjarlægð í síðari útgáfu. Heimildin „Má bóka reikning“ á uppáskriftanotanda nær nú aðeins til reikninga.

Athugið

  • Útgáfan krefst Business Central 29. Umhverfi á eldri útgáfu fá hana þegar þau hafa verið uppfærð í útgáfu 29.

  • Wise AI aðgerðirnar nýtast þegar Wise AI hefur verið sett upp í Business Central. Athuganir á reikningi sjást á reikningasíðunum óháð því.

Hafðu samband

Þjónustuborðið okkar er opið alla virka daga frá kl. 09 – 17. Sérfræðingar okkar sitja þar fyrir svörum og aðstoða þig með ánægju.

Hafðu samband ef við getum aðstoðað þig í síma 545-3232, eða með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan til að stofna beiðni í þjónustukerfi Wise.