Uppsetning með uppsetningarálfi
Ef þú ert að nota Cronus B fyrirtækið þá er Wise búið að setja upp Skýrslupakka Wise fyrir þig og þú þarft ekki að keyra álf.
Til að byrja með þarf að setja Skýrslupakka Wise upp í Business Central.
Uppsetning Skýrslupakka Wise
Farið í Uppsetning með hjálp sem er aðgengilegt ef smellt er á tannhjólið sem er staðsett efst í hægra horni vafrans.
Veljið Setja upp Skýrslupakka Wise og fylgið leiðbeiningaraðstoðinni.
Við það opnast nýr gluggi Skýrslupakki Wise Uppsetning. Veljið þar Næsta.
Veljið hvort nota eigi Wise skýrslur eða ekki. Ef valið er að nota Wise skýrslur er smellt á hakið. Ýtið á Næsta.
Fjármálastjórnun - Næst er að velja hvaða fjármálastjórnunarskýrslur eiga að vera virkar. Ýtið á Næsta.
Sala - Næst er að velja hvaða söluskýrslur eiga að vera virkar, og ýtið síðan á Næsta.
Innkaup - hér er valið hvaða skýrslur eiga að vera virkar og ýtið síðan á Næsta.
Verk - hér er valið hvaða skýrslur eiga að vera virkar og ýtið síðan á Næsta.
Prentun sölureikninga - ef nota á sölureikning Wise þá skal velja hér stillingar atriði fyrir skýrsluna, síðan skal ýta á Næsta.
Við það opnast næsti gluggi þar sem valið er Ljúka.
Til hamingju, grunnuppsetningunni er nú lokið og þú getur byrjað að nýta þér möguleika kerfisins.