Útgáfulýsing Wise Settlements - 28.0.20260923.7

Wise Settlement 

 

Útgáfunúmer - Wise Settlements - 28.0.20260923.7

 

 

 

 

 

 

 

 

Dagsetning - 23.09.2026

 

Helstu viðbætur og breytingar: 
Ný útgáfa af Wise Settlements (28.0.20260923.7) er komin út. Hún kemur til vegna breytinga sem Teya hefur gert á vefþjónustu sinni fyrir kortauppgjör.

Helstu breytingar

  • Ný útgáfa vefþjónustu: Wise Settlements tengist nú nýrri útgáfu af vefþjónustu Teya (settlement 3.7 í stað 3.6).

  • Bunkakeyrslur: Teya styður ekki lengur bunkakeyrslur í vefþjónustunni. Því er ekki lengur hægt að sækja bunkakeyrslur eða vinna með þær í Wise Settlements. Bunkakeyrslur sem þegar hafa verið sóttar sjást áfram, en aðeins til skoðunar. Innlestur og bókun kortauppgjöra virka eins og áður.

  • Debetuppgjör: Virkni tengd debetvefþjónustunni hefur verið fjarlægð, þar sem Teya styður hana ekki lengur.

  • Betri villumeðhöndlun: Villuboð frá vefþjónustu Teya eru nú skýrari. Það auðveldar að finna orsök vandans ef eitthvað kemur upp.

  • Innlesin uppgjör sjást strax: Eftir innlestur uppfærist síðan þannig að nýtt uppgjör sést strax. Áður gat það lent utan við sýnilega hluta gluggans og þá þurfti að skrolla upp til að finna það.

Eftir uppfærslu

Ekki þarf að gera neitt sérstakt eftir uppfærsluna. Uppfærslan færir uppsetninguna sjálfkrafa yfir á nýju vefþjónustuna og lykilorðið helst óbreytt. Að öðru leyti virkar allt eins og áður.


Málsnúmer

Lýsing

WS-60

Uppfæra síðu eftir innlestur

WS-57

Breyting á vefþjónustu hjá Teya

WS-52

Setja inn villumeðhöndlun fyrir villur frá vefþjónustunni


 

Hafðu samband 

Þjónustuborðið okkar er opið alla virka daga frá kl. 09 – 17. Sérfræðingar okkar sitja þar fyrir svörum og aðstoða þig með ánægju. 

Hafðu samband ef við getum aðstoðað þig í síma 545-3232, eða með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan til að stofna beiðni í þjónustukerfi Wise.