Handbók fyrir API fyrir endurskoðendur
API fyrir endurskoðendur
Audit API veitir aðgang að gögnum sem tengjast gagnaskoðun innan kerfis. Vefþjónustan styður OData-staðalinn og býður upp á endapunkta sem gera notendum kleift að sækja gögn um viðskiptavini, lánardrottna, vörur og fjárhagsfærslur fyrir tiltekin bókhaldstímabil.
API-ið inniheldur lykilendapunkta á borð við:
/customers – Til að sækja upplýsingar um viðskiptavini innan ákveðins tímabils.
/items – Til að fá upplýsingar um vörur innan bókhaldstímabils.
/vendors – Til að sækja upplýsingar um lánardrottna fyrir skilgreint tímabil.
API-ið styður eingöngu GET fyrirspurnir, sem gera kleift að sækja gögn út frá bókhaldstímabilum sem heimild er gefin fyrir. Gögn eru send og móttekin í JSON-sniði, og hægt er að nota síun, röðun og afmörkun til að betrumbæta fyrirspurnir og fá sérsniðnar niðurstöður. Ekki er mögulegt að senda inn gögn eða breyta þeim.
Auðkenning er nauðsynleg og notast er við OAuth 2.0 eða API lykla, sem tryggja að einungis viðurkenndir notendur geti nálgast gögnin. Með þessu er öryggi gagna tryggt.
API-ið er hannað til að auðvelda samþættingu við ytri kerfi og til að auðvelda endurskoðun og eftirlit.
Wise gefur út handbók fyrir öll þau sérkerfi sem fyrirtækið hefur þróað. Handbækurnar taka fyrir virkni kerfanna og er því ekki um kennslubók að ræða. Farið er í gegnum aðalvalmynd kerfisins þar sem útskýrt er hvaða upplýsingar þar eru geymdar og hvaða virkni er í boði hverju sinni.
Þessi handbók fyrir API fyrir endurskoðendur fylgir útgáfu BC17 eða nýrri.
Wise notar leyfisskrá fyrir sín kerfi. Allir notendur sem nota kerfið þurfa líka að hafa heimildasamstæðuna WISELCS BASIC á sér.
Þjónustuborð og frekari aðstoð
Þjónustuborðið okkar er opið alla virka daga frá kl. 09 – 17. Sérfræðingar okkar sitja þar fyrir svörum og aðstoða þig með ánægju.
Hafðu samband ef við getum aðstoðað þig í síma 545 3232, eða með því að stofna beiðni í þjónustukerfi Wise.
Almennt um Wise
Wise er stærsti og einn öflugasti söluaðili á Microsoft Dynamics 365 Business Central bókhalds- og viðskiptahugbúnaði á Íslandi og hefur sérhæft sig í lausnum á sviði fjármála, verslunar, sérfræðiþjónustu, sveitarfélaga, sjávarútvegs og flutninga.
Wise býður mikið úrval hugbúnaðarlausna sem byggir á þeirri hugmyndafræði að gera fyrirtækjum kleift að taka góðar og vel ígrundaðar viðskiptaákvarðanir, byggðar á öruggum upplýsingum úr viðskipta- og birgðakerfum fyrirtækisins.
Innan Wise starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu í Microsoft lausnum. Þar fyrir utan hefur fyrirtækið sjálft hannað mikinn fjölda lausna fyrir íslenskan markað og jafnframt náð ágætis árangri í útflutningi á lausnum sínum og þjónustu.
Fyrirtækið leggur sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu.
Á flóknum úrlausnarefnum er gjarnan hægt að finna einfalda lausn. Það er okkar markmið.