Þessi síða er ætluð kerfisstjórum sem vilja setja upp, dreifa eða fjarlægja nýja CoreData Desktop miðlægt á tölvur notenda, t.d. með PowerShell, Intune, SCCM eða öðrum dreifingartólum.
Almennar leiðbeiningar fyrir notendur má finna á síðunum CoreData Desktop og Stillingar á CoreData Desktop.
Uppsetningarskrár
Uppsetningarskrár eru aðgengilegar á https://www.coredata.is/um-okkur/uppsetning. Tvær gerðir eru í boði:
|
Skrá |
Lýsing |
|---|---|
|
|
MSI pakki – hentar best fyrir miðlæga dreifingu (Intune, SCCM, GPO, PowerShell) |
|
|
Uppsetningarpakki (bundle) |
Dæmin hér að neðan miða við útgáfu 26.4.2.0. Skiptið út útgáfunúmeri og slóð eftir þörfum.
Færibreytur (parameters)
CoreData Desktop styður tvær sérstakar færibreytur í MSI uppsetningu:
|
Færibreyta |
Lýsing |
Dæmi |
|---|---|---|
|
|
Stýrir því hvort CoreData Desktop ræsist sjálfkrafa við innskráningu í Windows |
|
|
|
Uppsetningarmappa forritsins |
|
Aðrar færibreytur eru hefðbundnar MSI / Windows Installer færibreytur, t.d.:
|
Færibreyta |
Lýsing |
|---|---|
|
|
Hljóðlát uppsetning – ekkert viðmót birtist notanda |
|
|
Kemur í veg fyrir að tölvan endurræsist eftir uppsetningu |
|
|
Skrifar uppsetningarlogg í tilgreinda skrá ( |
Dæmi – PowerShell
Hljóðlát uppsetning með MSI (án sjálfvirkrar ræsingar)
Start-Process msiexec.exe -Wait -ArgumentList '/i "coredata-desktop-x64-26.4.2.0.msi" AUTOSTARTUP=no /qn /norestart /l*v "C:\Temp\cdd-install.log"'
Hljóðlát uppsetning með EXE pakka
Start-Process ".\coredata-desktop-26.4.2.0.exe" -Wait -ArgumentList '/quiet /norestart /log C:\Temp\cdd-bundle.log'
Hljóðlát fjarlæging (uninstall) með MSI
Start-Process msiexec.exe -Wait -ArgumentList '/x "coredata-desktop-x64-26.4.2.0.msi" /qn /norestart /l*v "C:\Temp\cdd-uninstall.log"'
Góð ráð
-
Gangið úr skugga um að mappan fyrir loggskrár (t.d.
C:\Temp) sé til áður en uppsetning er keyrð. -
Keyra þarf uppsetningu með stjórnandaréttindum (Run as administrator).
-
Ef uppsetning mistekst, skoðið loggskrána sem tilgreind er með
/l*veða/log, og sendið hana til okkar ef þörf er á aðstoð. -
Eftir uppsetningu þarf notandi að skrá sig inn og tengja CoreData Desktop við vafra – sjá Stillingar á CoreData Desktop og Gefa CoreData Desktop leyfi til að tengjast CoreData.
Endilega ekki hika við að hafa samband við okkur ef við getum eitthvað aðstoðað eða ef þú hefur ábendingar um hvernig bæta má virkni CoreData.
Sími: 550 3900
Netfang: coredata@wise.is
http://www.coredata.is
© Wise lausnir ehf. Allur réttur áskilinn.