WINN Innheimtukerfi Wise
Útgáfunúmer - Winn28.0.20261006.60
Dagsetning - 06.10.2026
Helstu viðbætur og breytingar: Breytingar:
-
Hægt að fela ónotaða innheimtuaðila. Þegar fyrirtæki skipta um banka er í lang flestum tilfellum stofnað nýtt sett af innheimtuaðilum. Með tímanum, og þá sér í lagi hjá sveitarfélögum, getur fjöldi af úreltum innheimtuaðilum orðið mjög mikill. Nú er s.s. möguleiki á að fela þá og þá detta þeir úr öllum vallistum. Einnig kemur villa ef reynt er að nota úrelta innheimtuaðila.
-
Greiðslusamningar í gegnum boðgreiðslur. Hingað til hefur aðeins verið hægt að innheimta greiðslusamninga með greiðsluseðlum. Nú er hins vegar einnig möguleiki á að gera það með kortagreiðslum. Framkvæmdin er samt talsvert frábrugðin þar sem ekki má senda allar kröfurnar til innheimtu á sama tíma. Virknin er útskýrð í meðfylgjandi skjali.
-
Villa lagfærð sem tengist röngum upplýsingum á hlutverki. Flísin "Ósendar ógildingar" var í ákveðnum tilfellum ekki að sýna rétta tölu, þ.e. hún sleppti þeim kröfum sem voru í stöðunni "Í bið".
-
Ferlið þegar krafa er stofnuð beint frá viðskiptamannafærslu var lagað, og nú eru kröfur sendar sjálfkrafa ef sú uppsetning er valin.
|
Málsnúmer |
Lýsing |
|---|---|
|
INN-52 |
Möguleiki á að fela ónotaða innheimtuaðila |
Villulagfæringar
|
Málsnúmer |
Lýsing |
|---|---|
|
INN-396 |
Villa þegar kröfur eru stofnaðar frá vskm-færslu |
|
INN-391 |
Villa í innheimtukerfi - 0 á flís |
Hafðu samband
Þjónustuborðið okkar er opið alla virka daga frá kl. 09 – 17. Sérfræðingar okkar sitja þar fyrir svörum og aðstoða þig með ánægju.
Hafðu samband ef við getum aðstoðað þig í síma 545-3232, eða með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan til að stofna beiðni í þjónustukerfi Wise.