Getur Wise AI gert meira en ég?
Nei. Wise AI vinnur sem innskráði notandinn, með hans eigin heimildum í Business Central. Það sem notandinn getur ekki gert í Business Central getur Wise AI ekki heldur gert fyrir hann.
Vinnur Wise AI upp á eigin spýtur?
Nei. Wise AI vinnur aðeins þegar notandi biður um það. Það vinnur ekki eftir tímaáætlun.
Þarf að setja upp samþykktir?
Nei. Engra samþykkta er þörf og slökkt er á þeim eftir uppsetningu. Fyrirtækið getur kveikt á samþykktum fyrir tilteknar aðgerðir ef það vill (sjá Samþykktir).
Sé ég breytingu áður en hún er gerð?
Já. Hver breyting er sýnd áður en hún er gerð. Áður en samþykktarbeiðni er samþykkt eða hafnað, greiðsla samþykkt eða eitthvað sent í banka eða til innheimtuaðila spyr gervigreindarþjónninn þig fyrst.
Hvar sé ég hvað Wise AI hefur gert?
Hver breyting er skráð í Business Central, og skjöl sem Wise AI stofnar eða bókar eru venjuleg skjöl í Business Central.
Hvaða gögn fær Wise?
-
Engin lykilorð, lykla eða leyndarmál.
-
Ekkert afrit af rekstrargögnunum. Wise AI les og breytir gögnum í Business Central og þau eru áfram þar.
-
Stutta tæknilega skráningu um beiðnir, án nafns eða auðkennis notandans, til að reka þjónustuna og veita aðstoð.
-
Samantekinn fjölda notkunar vegna leyfa, án rekstrargagna.
Hvaða gervigreindarþjóna get ég notað?
Microsoft 365 Copilot, Claude, ChatGPT og Gemini. Hvernig hver þeirra er tengdur er á síðunni Uppsetning kerfisins og á https://bc.ai.wise.is/onboarding.
Virkar Wise AI á íslensku?
Já. Hægt er að spyrja á íslensku eða ensku. Svör á íslensku nota íslensk heiti Business Central.
Af hverju sé ég [masked] í stað kennitölu eða nafns?
Kerfisstjóri hefur falið persónuupplýsingar fyrir gervigreindarþjónum í fyrirtækinu. Hafðu samband við kerfisstjórann ef þú þarft að sjá þær.
Hvað kostar Wise AI?
Hafðu samband við Wise til að fá upplýsingar um verð og leyfi. Wise AI aðgerðir Wise-lausnar þurfa bæði leyfi fyrir lausninni og Wise AI leyfi.
Er prufutími?
Prufutími fyrir Wise AI kemur bráðlega. Þangað til geturðu haft samband við Wise.
Wise AI virkar ekki í sandkassa. Hvað á ég að gera?
Í Viðbótastjórnun skaltu velja Grunnstilla fyrir Wise AI og Wise Licensing og kveikja á Leyfa HttpClient-beiðnir. Gerðu það aftur eftir að umhverfi er afritað.
Eftir afritun í raunumhverfi biður Wise AI allt í einu um samþykktir. Af hverju?
Þegar sandkassi eða fyrirtæki er afritað í raunumhverfi biður Wise AI um samþykktir í afritinu þar til kerfisstjóri staðfestir stillingarnar þar. Kerfisstjóri opnar Setja upp Wise AI í afritinu og velur Staðfesta stillingar fyrir þetta umhverfi.
Gervigreindarþjónninn segir að aðgerðin sé óvirk.
Kerfisstjóri hefur slökkt á aðgerðinni eða stöðvað Wise AI í fyrirtækinu. Hafðu samband við kerfisstjórann.
Ég fæ villu við innskráningu.
Kerfisstjóri Microsoft 365 þarf fyrst að samþykkja Wise AI fyrir fyrirtækið á https://bc.ai.wise.is/onboarding: með Samþykkja fyrir Claude, ChatGPT og Gemini (skref 3a), og með uppsetningu Microsoft 365 Copilot á sömu síðu fyrir Copilot (skref 3c). Sjá Uppsetning kerfisins. Ef aðeins tiltekinn hópur má nota Wise AI þarftu að vera í þeim hópi.
Hvert leita ég eftir aðstoð?
Hafðu samband við þjónustuborð Wise alla virka daga kl. 9–17: sími 545 3232, netfang hjalp@wise.is. Sjá líka Handbók fyrir Wise AI.