Dagleg vinna

Þú vinnur með Wise AI í gervigreindarþjóninum þínum, Microsoft 365 Copilot, Claude, ChatGPT eða Gemini. Skrifaðu á íslensku eða ensku eins og þú myndir biðja samstarfsmann. Wise AI svarar úr gögnunum í Business Central og vinnur verkin þar, með þínum heimildum.


Áður en þú byrjar

  • Kveiktu á Wise AI í spjallinu (í Claude: kveiktu á Wise AI tenginu).

  • Ef þú hefur aðgang að fleiri en einu fyrirtæki skaltu nefna fyrirtækið, t.d. „í CRONUS“.

  • Ef þú veist ekki hvað þú mátt gera skaltu spyrja: „Hvað get ég gert í Business Central?“


Spyrja um stöðu og færslur

Dæmi:

  • „Hvaða viðskiptamenn eru gjaldfallnir?“

  • „Sýndu aldursgreindar skuldir við lánardrottna.“

  • „Hver er staðan á bankareikningunum?“

  • „Sýndu sjóðstreymisspá fyrir næstu átta vikur.“

  • „Hvaða færslur eru á fjárhagslykli 7210 í október?“

  • „Hvað kostar vara 1000 og hve mikið er til?“

Niðurstöður birtast sem töflur í spjallinu. Þú getur beðið um skýrslu sem PDF- eða Excel-skjal.


Stofna, losa, bóka og senda skjöl

Dæmi:

  • „Stofnaðu sölureikning á viðskiptamann 10000 fyrir 5 stk. af vöru 1000.“

  • „Bókaðu sölupöntun 101005 og sendu reikninginn á viðskiptamanninn sem PDF.“

  • „Losaðu innkaupapöntun 106001.“

  • „Opnaðu sölutilboð 1002 aftur.“

Svona gengur breyting fyrir sig:

  1. Wise AI sýnir þér breytinguna áður en hún er gerð. Áður en skjal er bókað sérðu skjalið sjálft.

  2. Breytingin er gerð og þú færð númer skjalsins með tengli í Business Central.

  3. Ef breytingin yrði önnur en þú baðst um spyr gervigreindarþjónninn þig fyrst.


Viðskiptamenn, lánardrottnar og vörur

Dæmi:

  • „Stofnaðu nýjan lánardrottin: Dæmi ehf., Laugavegi 1, 101 Reykjavík, netfang …“

  • „Breyttu netfangi viðskiptamanns 20000 í …“

Reglur Business Central gilda áfram.


Samþykktir

Dæmi:

  • „Hvaða samþykktarbeiðnir bíða mín?“

  • „Samþykktu innkaupareikning 107003.“

Áður en þú samþykkir eða hafnar samþykktarbeiðni sýnir gervigreindarþjónninn forskoðun og spyr einnar spurningar. Ákvörðunin er aðeins gerð eftir að þú svarar já. Þú getur líka afgreitt marga reikninga í einu.

Sama gildir um að samþykkja greiðslu og að senda eitthvað í banka eða til innheimtuaðila.


Viðhengi

Dæmi:

  • „Hengdu skjal við innkaupareikning 107003.“

Í Claude og Microsoft 365 Copilot birtist reitur undir svarinu. Þar velur þú skrána, eða dregur hana inn, og velur Hengja við.

Ef gervigreindarþjónninn sýnir ekki reitinn getur hann gefið þér tengil á færsluna svo þú getir hengt skjalið við í Viðhengi í Business Central.


Í Wise-lausnum

Í Wise-lausn getur þú gert með Wise AI það sem lausnin leyfir þér að gera á eigin síðum. Sjá Wise-lausnir.


Gott að vita

  • Wise AI getur aldrei gert meira en þú getur sjálf(ur) gert í Business Central.

  • Ef þú sérð gildið [masked] eru það persónuupplýsingar sem eru faldar fyrir gervigreindarþjónum í fyrirtækinu.

  • Ef aðgerð er óvirk eða Wise AI stöðvað í fyrirtækinu segir gervigreindarþjónninn það. Hafðu samband við kerfisstjórann.

  • Ef fyrirtækið hefur kveikt á samþykktum getur aðgerð beðið samþykktar áður en hún er gerð (sjá Samþykktir).