Wise AI vinnur líka í þeim Wise-lausnum sem fyrirtækið notar. Í Wise-lausn getur notandinn gert með Wise AI það sem lausnin leyfir honum að gera á eigin síðum, með sömu heimildum.
Hvað þarf
-
Settu upp þá útgáfu lausnarinnar sem inniheldur Wise AI. Það er útgáfa lausnarinnar fyrir Business Central 29.
-
Ekki þarf nýja heimildasamstæðu. Wise AI - notandi nær yfir allar uppsettar Wise-lausnir. Notandinn þarf áfram sínar venjulegu heimildir í lausninni.
-
Kerfisstjórar geta slökkt á aðgerðum lausnar eins og öðrum aðgerðum Wise AI (sjá Stýringar og heimildir).
Wise-lausnir með Wise AI
Wise Approvals (Uppáskrift)
-
Sjá reikninga sem bíða uppáskriftar hjá þér, hjá samstarfsfólki eða í öllu fyrirtækinu, með aldursgreiningu.
-
Uppáskrifa, greiðslusamþykkja eða hafna reikningum, einum eða mörgum í einu. Gervigreindarþjónninn spyr þig alltaf fyrst.
-
Endurúthluta reikningi, afturkalla uppáskrift og bæta athugasemd við reikning.
-
Stofna reikning í skráningu, kóða línur hans og senda hann til uppáskriftar.
-
Senda áminningu um uppáskrift og bóka uppáskrifaðan reikning.
Wise Banking (Bankakerfi)
-
Stofna greiðslutillögu, fara yfir hana og staðfesta greiðslur, eða afturkalla staðfestingu.
-
Senda staðfestar greiðslur til bankans. Gervigreindarþjónninn spyr þig alltaf fyrst.
-
Staðfesta bankareikning viðtakanda áður en greitt er, og sjá stöðu greiðslna og greiðsluvandamál.
-
Sækja bankayfirlit, skoða yfirlitslínur og keyra sjálfvirka jöfnun.
-
Ljúka bankaafstemmingu: tillaga að jöfnun, jöfnun lína, færsla í færslubók og bókun.
-
Sjá ógreiddar kröfur og greiðslustillingar lánardrottna.
Wise Collection Claims (Innheimta)
-
Senda bókaðan sölureikning í innheimtu sem innheimtukröfu.
-
Lista innheimtukröfur.
-
Sjá stöðu og sögu hverrar innheimtukröfu.
Wise e-Invoices (Rafrænir reikningar)
-
Sækja ný rafræn skjöl og sjá innsend rafræn skjöl eftir stöðu.
-
Lykla línur innsendra reikninga og sjá bókun skjals.
-
Tengja bókunarreglu við innsendan reikning, eða samþykkja tillögu að bókunarreglu.
-
Stofna innkaupaskjal úr innsendum rafrænum reikningi, eða leggja reikning til hliðar.
-
Senda bókaðan sölureikning sem rafrænan reikning, sjá sendingarstöðu hans og reyna aftur ef miðlun hafnaði honum.
Wise Agreements (Samningar)
-
Lista samninga.
-
Sjá væntanlega reikningsfærslu samninga.
-
Sjá samninga sem renna út eða endurnýjast.
-
Sjá villur í reikningsfærslu.
Wise Bonds (Skuldabréf) – kemur bráðlega
Wise AI í Wise Bonds kemur bráðlega: afborganir, greiðslutillögur og innlestur vísitölu.
Leyfi
Til að nota Wise AI aðgerðir Wise-lausnar þarf bæði leyfi fyrir lausninni og Wise AI leyfi.