Skip to main content
Skip table of contents

Fjárhagsaðstoð

Hægt er að vinna með fjárhagsaðstoð annað hvort beint út úr skjólstæðingaspjöldum, sem og stofna nýja frá yfirliti samninga eða samningsspjaldinu. 

Skráning fjárhagsaðstoðar 

Þegar stofnuð er fjárhagsaðstoð þá er skjólstæðingurinn fundinn og smellt á Stofna samning, þá birtist þessi listi og veljum við þá FJST/fjárhagsaðstoð.  

image-20250604-091349.png

Tegundir þjónustu

Upphafsdagur og Lokadagur segja til um hvort reikna eigi fjárhagsaðstoð, ef þessar dagsetningar eru utan þess tímabils sem verið er að reikna, þá reiknast ekkert.  Eins er hægt að nota þessar dagssetningar til að hlutareikna mánuði, sbr. ef samningsaðilinn á að fá hálfa fjárhagsaðstoð í janúar myndum við setja upphafsdagsetningu 15.01 og lokadagsetningu 30.01 þá reiknast 15 dagar.  Passa verður uppá ef samningsaðili á að fá hálfan mánuð að ef 31 dagur er í þeim mánuði að miða dagsetningar við 15. og 30. þá teljast aðeins dagarnir þarna á milli.  Annars reiknar kerfið 30 ef heill mánuður er skráður. 

image-20250604-094456.png

Dæmi um samning um fjárhagsaðstoð

Samningur hefur stöðuna „Umsókn“ þar til búið er að skrá inn allar upplýsingar í hann, fylla út umsóknarflipann og setja inn þá kóta í línurnar sem við á.  Þegar því er lokið, er samningur samþykktur. 

Umsóknargögn og ástæður umsóknar 

Hægt er að skrá í kerfið ástæður umsóknar og er þá ýtt á hlekkinn í „Ástæður“ og þá opnast „ástæða umsóknar“.  Smellt er á blýantinn til þess að bæta við ástæðu umsóknar.  Ef þörf er á að setja inn fleiri ástæður, er hægt að bæta þeim við með því að fara í næstu línu og velja aðra ástæðu.

image-20250604-095234.png

Ástæða umsóknar

Umsóknargögn er líka hægt að velja á sama hátt. Ef viðkomandi er ekki búinn að skila inn öllum gögnum þá er stöðu umsóknar ekki breytt í samþykkt.  Það er ekki gert fyrr en öll gögn liggja fyrir. 

image-20250604-095458.png

Umsóknargögn

Í Þjónustugrunni, undir „Fjárhagsaðstoð“ er settur upp hver grunnur fjárhagsaðstoðar er. 

image-20250604-095723.png

Þjónustugrunnur

Undir „Fjárhagsaðstoðarumsókn“ (í þjónustusamningnum sjálfum) eru svo forsendur fjárhagsaðstoðar settar upp. 

image-20250604-095900.png

Forsendur fjárhagsaðstoðar

Ef reikna á út skammtímagrunn þá er hakað við „Skammtímagrunnur“ og tekjuliðir og útgjaldaliðir slegnir inn. Kerfið reiknar þá út grunninn skv. þeim fyrir sig. 

Til að skrá inn tekjuliði er smellt á línuna út frá „samtals tekjur“ og stofnaðar jafn margar línur og tekjuliðirnir eru hjá samningsaðila.  Sama á við um útgjaldaliðina.  Síðan er smellt á Reikna til að láta kerfið reikna út mismun á tekjum og gjöldum. 

Mismunurinn er þá sú upphæð sem samningsaðilinn á að fá greidda. 

Þegar búið er að ákveða upphæð fjárhagsaðstoðarinnar er farið í línurnar í neðri hluta gluggans og skráður inn kóti aðstoðar sem á að greiða.  Í þessu tilviki hefur verið valið „FJST“ sem er hefðbundin fjárhagsaðstoð.  Og mun greiðslan bókast skv. bókunarupplýsingum sem settar eru upp undir liðnum  „Uppsetning“.  Síðan er upphæðin slegin inn í línuna, umsóknin er svo samþykkt og þá er hægt að fara í stofna færslur, sem er undir Heim til að sjá hvað samningsaðilinn muni fá greitt.  Þar er svo hægt að sjá útreikning á staðgreiðslu og bótum.  

image-20250604-100749.png

Samningslína

Skattkort 

Neðst á skjólstæðinga-spjaldinu eru skráðar allar upplýsingar um skattkort viðkomandi ef hann er að fá greiðslur frá Félagsþjónustunni.  Ef skrá þarf uppsöfnun þegar komið er með kort í fyrsta sinn, þá þarf að bora sig niður í reitinn Uppsafnaður persónuafsláttur og skrá hann í viðkomandi töflu. 

Ef skjólstæðingur er með t.d. 20% skattkort og hefur notað það í mars en kemur svo með nýtt kort uppá 80% þá er ekki hægt að nota það frá mars þar sem kerfið er búið að reikna á þann mánuð áður.  Þá er rétt að skrá kortið inn frá 1. apríl en hafa uppsöfnun á mars mánuð. 

 

Hægt er að skoða skattkortaútreikning með því að fara ofan í færsluna sem við vorum að reikna og þar er hægt að bora  sig niður í „Persónuafslátt“ til að sjá útreikninginn á skattkortinu. 

image-20250604-100924.png

Persónuafsláttur

Ef t.d. ekki reiknast persónuafsláttur þá er hægt að fara ofan í færslulínuna (ef hún er óbókuð) og eyða henni út, laga upplýsingar um skattkortið og stofna færslur aftur.  Þetta er hægt að gera eins oft og maður vill áður en færslan er bókuð.  Þegar búið er að bóka færsluna er ekki hægt að eiga við hana öðru vísi en með bakfærslu. 

Skoða færslur samnings 

Hægt er að bora sig niður og skoða færslur samningsaðila.   

image-20250604-101124.png

Bókun

Á flipanum „Bókun“ er hægt að sjá hvernig útreikningur styrksins er.  Hversu mikið er reiknaður skattur, hve mikið á samningsaðilinn í ónýttan persónuafslátt og hvað mikið er þá til útborgunar. 

image-20250604-102547.png

Bókun samnings

Ferill

Á flipanum ferill eru ýmsar upplýsingar um samninginn og er hægt að setja inn dagsetningarafmörkun til að skoða bókaðar greiðslur ákveðins tímabils. 

Dæmi um dagsetningarafmörkun er 010125..150325 en þá eru bókaðar færslur frá 1. janúar 2025 til 15. mars 2025 kallaðar fram. 

Í Þjónustukerfinu þarf svo að „Stofna færslur“ (undir Heim) sem síðan eru bókaðar í fjárhag.  Hægt er að stofna greiðslur og eyða þeim, breyta forsendum og stofna svo aftur.  Þegar við stofnum greiðslur þarf að passa uppá að allar afmarkanir séu réttar.  Við þurfum að velja „Tegund“, „Nr.“ og fara svo á valkostaflipann og segja til um hvaða mánuð færslan á að vera fyrir.  Hægt er að setja upp á „Tegund samninga“ í „Uppsetningu“ ef tímabil mega skarast, en það er yfirleitt ekki leyfilegt í Húsaleigubótum en mætti kannski leyfa í Fjárhagsaðstoð. 

image-20250604-102736.png

Færslur stofnaðar

Þegar búið er stofna greiðslur og við erum sátt við þær þá er hægt að fara í „Aðgerðir“ og velja „Bóka“ til að bóka færslurnar í færslubók eða reikninga eftir því sem við á. 

Að lokum er hægt að fara í Hnappinn „Aðgerðir“ og velja „Afrita í nýjan samning“, þá stofnast nýr samningur með sömu upplýsingum og eru í þeim sem afritaður var.  Lítið mál er þá að breyta þeim atriðum sem breyta þarf í nýja samningnum og loka síðan þeim eldri. 

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.