Húsaleigubætur
Skráning samninga vegna húsaleigubóta og annarra greiðsluliða í kerfinu er eins og ferill fjárhagsaðstoðar að flestu leiti nema umsóknarflipinn er breytilegur eftir tegund.
Athugið að þegar stofnaður er samningur vegna húsaleigubóta þá er ýtt á Nýtt og svo F4 til að sækja númeraröðina sem nota skal. Þegar númeraröðin hefur verið valin þá kemur kerfið sjálfkrafa með tegundina inn í gluggann.
Þá er næsta skref að skrá inn kt. samningsaðila og aðrar upplýsingar um hann koma með úr skjólstæðingaspjaldinu (það þarf að vera búið að stofna skjólstæðingaspjald áður en samningur er stofnaður). Dagsetning samnings er dagurinn þegar sótt var um húsaleigubætur. „Upphafsdagur“ er sá dagur sem reikna skal bætur frá og „Lokadagur“ segir til um hvenær eigi að hætta að reikna bæturnar. Þegar búið er að skrá dagsetningu í reitinn „Lokadagur“ þá reiknast ekki lengur bætur á þann samningsaðila.
Umsóknarflipinn í húsaleigubótunum er talsvert frábrugðinn umsóknarflipanum í fjárhagsaðstoðinni.
Hér eru settar inn upplýsingar um húsnæðið sem leigt er, tekjur og leigu til að reikna húsaleigu-bæturnar út frá.
Reiturinn „Fastanúmer“ er tenging við „Fasteignaskrá“ úr kerfinu „Fasteignastjóri“ sem flest sveitarfélög eru að nota. Með því að tengja fastanúmerið við húsaleigubótaumsóknina getum við komið i veg fyrir að verið sé að leigja sömu eignina oftar en einu sinni.

Fastanúmer sett í húsaleiguumsókn
Hægt er að keyra keyrslu reglulega sem vísitölubreytir húsaleigu inn á öllum samþykktum samningum.
Athugið að nú eru tveir tekjureitir á umsóknarflipa um húsaleigubætur, ástæðan er að sérstakar húsaleigubætur eru reiknaðar samkvæmt öllum tekjum en almennar húsaleigubætur skv. tekjum fyrir utan tryggingabætur. Þess vegna verður að setja inn í reitinn „Árstekjur m. tryggingabótum“ þegar reikna á sérstakar húsaleigubætur, því þær reiknast út frá honum.
Ef greiða á húsaleigubæturnar til annars en samningsaðilans þá er hægt að skrá það á flipanum „Bókun“ og velja „Millifærsla greiðslu“, og annar. Bankaupplýsingar og kennitala svo sett í viðeigandi reiti.
Eins er hægt að draga húsaleigubætur frá húsaleigu leigi samningsaðilinn hjá sveitarfélaginu og þarf þá að passa uppá að merkja samninginn með bókunaraðferðinni „Sölureikningur“ og bóka svo alltaf saman bæði húsaleigubætur og húsaleigu til að fá báðar færslurnar inná sama sölureikning og senda síðan út kröfu með nettóupphæð.
Við stofnum færslur til að sjá hvað samningsaðili kemur til með að fá í greiðslu og megum eyða þeim og stofna aftur ef við höfum breytt einhverju í samningi í millitíðinni. Stofnaðar samningsfærslur eru svo bókaðar yfir í færslubók í fjárhag. Athugið að hægt er að stilla kerfið þannig að ekki þurfi að stoppa með færslurnar í færslubók heldur bóka alla leið. að hefur í för með sér að ekki er hægt að breyta neinu í færslubókinni en kemur líka í veg fyrir að færslum í færslubók sé breytt óvart og þessi tvö kerfi stemmi þá ekki saman.