Fjárhagsaðstoð bakfærð
Til að bakfæra færslur er bendilinn hafður á réttri samningslínu og farið í hnappinn aðgerðir og valið Kreditfæra. Þá myndast kreditfærsla í færslubók.

Fjárhagsaðstoð kreditfærð
Einnig er hægt að kreditfæra samninga sem voru bókaðir í sölureikninga. Það er gert á sama hátt. Athugið að hægt er að kreditfæra í einni aðgerð reikning sem er á er bókaðar bæði gjaldfærslur og greiðslur sbr. húsaleiga og húsaleigubætur. Þá bakfærist fylgiskjalið í heild sinni.
Áður en við bókum færslur, þurfum við alltaf að vera búin að stofna þær, og er þá upphæð til bókunar sú upphæð sem við ætlum að greiða. Einfalt er að bóka með því að ýta á F9 eða smella á „Heim“ og velja „Bóka“.
Mjög mikilvægt er að bakfæra alltaf úr þjónustukerfinu ef færslurnar eiga uppruna þaðan en ekki beint á viðskiptamanninum sjálfum því annars mun þjónustukerfið og fjárhagur ekki stemma sem gæti m.a leitt til vandræða t.d við úttekt á launamiðum ofl.
Eins er hægt að vera í yfirliti samninga og stofna færslur á alla með vissa tegund og samþykkta samninga. Einnig er hægt að eyða út öllum óbókuðum færslum, t.d. ef eitthvað hefði átt að breytast í grunninum en gleymdist og því þurfi að reikna alla uppá nýtt.

Valmöguleikinn „Bóka í færslubók“, bókar alla samninga með bókunaraðferð í færslubók og ef búið er að stofna færslur. Valmöguleikinn „Búa til sölureikninga“, bókar alla samninga með bókunaraðferð Sölureikningar og ef búið er að stofna færslur á þá.