Í hverjum mánuði sendir HMS sveitarfélaginu Excel skjal með þeim húsnæðisbótum sem HMS hefur samþykkt. Innlesturinn les skjalið og skráir tölurnar á opinn húsnæðisbótasamning og umsókn hverrar kennitölu, svo sérstakur húsnæðisstuðningur reiknist út frá réttum tölum.
Það sem innlesturinn gerir ekki
Hann stofnar aldrei skjólstæðinga eða samninga. Einstaklingar í skjalinu sem eiga engan opinn húsnæðisbótasamning eru aðeins taldir upp í niðurstöðunni.
Hann breytir aldrei stöðu samnings.
Hann hreyfir ekki við upphafsdegi samnings.
Áður en byrjað er
-
Uppsetning: Þjónustugrunnur → Húsaleigubætur → Tegund þjónustu húsnæðisbóta þarf að vísa á þá tegund þjónustu sem notuð er fyrir húsnæðisbætur (yfirleitt HSLB). Ef aðeins ein tegund þjónustu hefur Kerfi = Húsaleigubætur fyllist reiturinn sjálfkrafa í fyrsta innlestri.
-
Samningar: hver einstaklingur í skjalinu þarf að eiga opinn samning af þeirri tegund (staða ekki Synjað eða Lokið). Stofnið samninga sem vantar á venjulegan hátt áður en lesið er inn.
Skjalið frá HMS
Notið skjalið nákvæmlega eins og það kemur frá HMS. Innlesturinn ber saman hauslínuna áður en nokkuð er lesið og stöðvast ef dálkarnir eru öðruvísi.
|
# |
Dálkur |
Notað |
Athugasemd |
|---|---|---|---|
|
A |
Kennitala |
Já |
9 eða 10 tölustafir. Núll fremst sem Excel hefur fellt niður er sett aftur. |
|
B |
Raðnúmer |
– |
Ekki notað |
|
C |
Mánuður / Tímabil |
– |
Ekki notað |
|
D |
Nafn |
Já |
Aðeins skráð ef samningur hefur ekkert nafn |
|
E |
Lögheimili |
Já |
Aðeins skráð ef samningur hefur ekkert heimilisfang |
|
F |
Heimilisfang leigjanda |
Já |
|
|
G |
Fjöldi heimilismanna |
Já |
Heil tala |
|
H |
Heildareignir |
Já |
Upphæð, 0 ef engin |
|
I |
Heildartekjur |
Já |
Upphæð, 0 ef engar |
|
J |
Upphæð greiðslu |
Já |
Upphæð, 0 ef engin |
|
K |
Leigufjárhæð samkv. samningi |
Já |
Upphæð, 0 ef engin |
|
L |
Leigusamningur frá |
– |
Ekki notað; samningurinn heldur sínum upphafsdegi |
|
M |
Leigusamningur til |
Já |
Dagsetning sem dd.MM.áááá, má vera auð |
|
N |
Tegund húsnæðis |
Já |
|
|
O |
Fastnúmer |
Já |
Með eða án F fremst, mest 7 stafir |
|
P |
Síðasta staða |
– |
Ekki notað |
|
Q |
Tegund |
– |
Ekki notað |
Skilyrði fyrir að lína sé lesin inn: kennitalan þarf að vera gild, upphæðareitir þurfa að innihalda tölu (HMS skráir 0, auður reitur þýðir að gögn vanti), upphæðir mega ekki vera neikvæðar og dagsetningin þarf að vera læsileg. Lína sem brýtur skilyrði er sleppt og sýnd með ástæðu; hinar línurnar eru lesnar inn eftir sem áður.
Hvar er innlesturinn
Yfirlit samninga → Vinnsla → Lesa inn húsnæðisbætur frá HMS
Einnig má leita að „Lesa inn húsnæðisbætur frá HMS“ með Segðu mér (Alt+Q).
Skref fyrir skref
-
Opnið Yfirlit samninga og veljið Lesa inn húsnæðisbætur frá HMS.
-
Glugginn sýnir þá tegund þjónustu sem verður notuð. Ýtið á Í lagi.
-
Veljið Excel skjalið frá HMS.
-
Staðfestið fjölda lína sem lesnar voru úr skjalinu.
-
Bíðið eftir framvindustikunni. Línur eru vistaðar ein í einu, svo villa í einni línu eyðir ekki hinum.
-
Lesið samantektina: hve margir samningar voru uppfærðir, hve margir einstaklingar áttu engan samning eða umsókn og hve mörgum línum var sleppt.
-
Niðurstöðusíðan opnast með einni línu fyrir hverja línu í skjalinu. Smellið á samningsnúmer til að opna samninginn.
Hvaða reitir fyllast
|
Dálkur í Excel |
Skráð í |
Á |
|---|---|---|
|
Leigusamningur til |
Lokadagur og Lok samnings |
Samning og umsókn |
|
Fjöldi heimilismanna |
Fjöldi heimilismanna |
Umsókn |
|
Heildareignir |
Hrein eign |
Umsókn |
|
Heildartekjur |
Árstekjur m. tryggingabótum |
Umsókn |
|
Upphæð greiðslu |
Upphæð húsaleigubóta |
Umsókn |
|
Leigufjárhæð samkv. samningi |
Upphæð leigu |
Umsókn |
|
Tegund húsnæðis |
Tegund húsnæðis |
Umsókn |
|
Fastnúmer |
Fastanúmer |
Umsókn |
|
Heimilisfang leigjanda |
Lýsing fasteignar |
Umsókn |
|
Nafn, Lögheimili |
Nafn, Aðsetur |
Samning, aðeins ef autt |
Samningur sem vantar umsóknarfærslu fær hana stofnaða. Ef einstaklingur á fleiri en einn opinn samning af tegundinni er sá með nýjasta upphafsdag uppfærður.
Niðurstaðan lesin
|
Aðgerð |
Merking |
Hvað skal gera |
|---|---|---|
|
Uppfært |
Samningur og umsókn voru skráð |
Ekkert |
|
Enginn samningur eða umsókn fannst |
Enginn opinn húsnæðisbótasamningur fyrir kennitöluna |
Stofnið samninginn ef einstaklingurinn á að hafa hann og lesið inn aftur |
|
Sleppt |
Gildi í línunni var ólæsilegt; sjá Villutexta |
Lagið reitinn í Excel skjalinu og lesið inn aftur |
Óhætt er að keyra innlesturinn aftur með sama skjali eða lagfærðu. Línur sem þegar hafa verið lesnar inn eru einfaldlega skráðar aftur með sömu gildum.