Skip to main content
Skip table of contents

Skjólstæðingar

Skjólstæðingaspjald 

Skjólstæðingurinn er grunnurinn í félagsmálakerfinu.  Til að hægt sé að skrá samninga hvort heldur sem er í fjárhagsaðstoð, húsaleigubótum, barnavernd eða hvað annað sem er, þarf í flestum tilvikum að vera til skjólstæðingur en þó er hægt að tengja samningana beint við viðskiptamenn og er það helst notað í t.d. innheimtu á húsaleigu o.þ.h. 

Skjólstæðingur er að mörgu leyti eins og viðskiptamaður eða lánadrottinn og geymir allar grunnupplýsingar um viðkomandi. 

image-20250604-104604.png

Dæmi um skjólstæðingsspjald

Þar sem þjóskrá er tengd kerfinu þá koma allar upplýsingar um skjólstæðinginn þegar búið er að stofna nýtt spjald og kennitala hefur verið slegin inn.

Húsnæði, núverandi dvalarstaður og bankareikningur eru atriði sem þarf að slá inn en önnur atriði á þessari mynd koma sjálfkrafa úr þjóðskránni. 

Á neðri hluta skjólstæðingsspjaldsins sjást þeir samningar sem eru opnir á viðkomandi skjólstæðing.  Hægt er að fara í samning beint út úr þessari mynd með því að velja Opna samning. Til að skrá nýjan samning þá er smellt á Stofna samning, sem er beint fyrir ofan kennitölu skjólstæðings. 

Ekki er hægt að stofna samninga um fjárhagsaðstoð, húsaleigubætur, heimaþjónustu og liðveislu, sem og skrá í barnavernd og málaefni fatlaðra, nema búið sé að stofna skjólstæðing.

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.