RSM Rafrænir reikningar Wise
Útgáfunúmer - RSM 28.0.20261123.126
Dagsetning - 23.11.2026
Samantekt
Í þessari útgáfu er ein nýjung og tvær lagfæringar.
-
Fyrirframgreidd upphæð á rafrænum sölureikningum (RSM-728): Þegar greiðsla hefur verið jöfnuð á móti sölureikningi áður en hann er sendur, til dæmis kortagreiðsla í vefverslun, kemur greidda upphæðin nú fram sem fyrirframgreidd upphæð og upphæð til greiðslu lækkar sem því nemur. Á við um sölureikninga á PEPPOL BIS 3 og BII sniði.
-
Eitt skjal stöðvar ekki lengur sendingu í verkröð (RSM-751, RSM-754): Ef skjal stenst ekki PEPPOL-villuprófun eða önnur villa kemur upp við sendingu þess eru villuboðin nú skráð á viðkomandi skjal og verkröðin heldur áfram að senda önnur skjöl. Áður fór verkröðin á villu í hverri keyrslu og ekkert skjal var sent fyrr en villan var lagfærð.
Task
Bug