RSM Rafrænir reikningar Wise
Útgáfunúmer - RSM 29.0.20261124.127
Dagsetning - 24.11.2026
Helstu viðbætur og breytingar:
Nýtt
-
Wise AI í Wise e-Invoices — með Wise AI getur notandinn séð innsend rafræn skjöl sem þarfnast yfirferðar, með ástæðum og hugsanlegum tvíbókunum, og sótt ný skjöl eins og með Sækja skeyti. Hann getur séð hvernig línur skjals verða bókaðar ásamt ráðgefandi tillögu út frá fyrri reikningum lánardrottins, lyklað línur, tengt bókunaruppsetningu sendanda við skjal og stofnað innkaupaskjal úr innsendum rafrænum reikningi (ekkert er bókað eða samþykkt). Hann getur líka lagt til hliðar annan lestur sama rafræna reiknings, sett bókaðan sölureikning eða kreditreikning í sendiröð, látið reyna aftur sendingu sem miðlun hafnaði og séð sendingarstöðu bókaðs reiknings. Stjórnendur Wise AI geta að auki vistað tillögu að nýrri bókunaruppsetningu, sem er óvirk þar til hún er virkjuð. Wise AI vinnur með heimildum notandans og sendir enga reikninga sjálft; sendivinnsla Wise e-Invoices sér um það eins og áður.
Athugið
-
Útgáfan krefst Business Central 29. Umhverfi á eldri útgáfu fá hana þegar þau hafa verið uppfærð í útgáfu 29.
-
Wise AI aðgerðirnar nýtast þegar Wise AI hefur verið sett upp í Business Central. Án Wise AI er virkni Wise e-Invoices óbreytt.
Hafðu samband
Þjónustuborðið okkar er opið alla virka daga frá kl. 09 – 17. Sérfræðingar okkar sitja þar fyrir svörum og aðstoða þig með ánægju.
Hafðu samband ef við getum aðstoðað þig í síma 545-3232, eða með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan til að stofna beiðni í þjónustukerfi Wise.