Skip to main content
Skip table of contents

Handbók Hluthafakerfis

Hluthafakerfi Wise hefur það meginhlutverk að halda utan um hluthafa fyrirtækis, viðskipti með hluti og eign þeirra í félaginu hverju sinni. Kerfið býður upp á möguleika á tengingu við Nasdaq verðbréfamiðstöð þar sem lesnar eru inn hreyfingar og breytingar á hlutafjáreign og rafrænar leiðir til að skila lögbundnum gögnum til RSK.

Hluthafakerfið býður einnig upp á arðgreiðsluútreikninga og greiðslu arðs, það heldur utan um hluthafafundi og innherja félags svo fátt eitt sé nefnt. Hægt er að sækja gögn og lesa beint inn í NAV í gegnum vefþjónustur.

Hugmyndin með Hluthafakerfinu er að fyrirtæki geti sjálf haldið utan um hlutafjáreign í félaginu og á auðveldan hátt fylgst með breytingum sem þar kunna að verða frá degi til dags. Kerfið er einfalt í notkun og því auðvelt að ná tökum á því fyrir daglega vinnslu.

Þessi handbók fyrir Hluthafakerfi Wise fylgir útgáfu BC23 eða nýrri.

Wise notar leyfisskrá fyrir sín kerfi. Allir notendur sem nota kerfið þurfa líka að hafa heimildasamstæðuna WISELCS BASIC á sér.

Þjónustuborð og frekari aðstoð

Þjónustuborðið okkar er opið alla virka daga frá kl. 09 – 17. Sérfræðingar okkar sitja þar fyrir svörum og aðstoða þig með ánægju. 

Hafðu samband ef við getum aðstoðað þig í síma 545 3232, eða með því að stofna beiðni í þjónustukerfi Wise

Almennt um Wise

Wise er stærsti og einn öflugasti söluaðili á Microsoft Dynamics 365 Business Central bókhalds- og viðskiptahugbúnaði á Íslandi og hefur sérhæft sig í lausnum á sviði fjármála, verslunar, sérfræðiþjónustu, sveitarfélaga, sjávarútvegs og flutninga.  Wise býður mikið úrval hugbúnaðarlausna sem byggir á þeirri hugmyndafræði að gera fyrirtækjum kleift að taka góðar og vel ígrundaðar viðskiptaákvarðanir, byggðar á öruggum upplýsingum úr viðskipta- og birgðakerfum fyrirtækisins.  

Innan Wise starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu í Microsoft lausnum. Þar fyrir utan hefur fyrirtækið sjálft hannað mikinn fjölda lausna fyrir íslenskan markað og jafnframt náð ágætis árangri í útflutningi á lausnum sínum og þjónustu.

Fyrirtækið leggur sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu.

Á flóknum úrlausnarefnum er gjarnan hægt að finna einfalda lausn. Það er okkar markmið.

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.