Skip to main content
Skip table of contents

Uppsetning á Sveitargátt Wise

Uppsetning Sveitargáttarinnar fer fram á nokkrum stöðum innan Business Central. Hér er lýst helstu uppsetningarsvæðum og stillingum.


Vefkerfi og vefir

Vefkerfi skilgreina ytri kerfi sem tengjast Sveitargáttinni. Vefir (Web Instance) eru einstök tilvik af hverju vefkerfi.

  • Vefkerfategundir – Skilgreiningar á tegundum vefkerfa

  • Vefkerfi – Listi yfir öll tengd ytri kerfi (t.d. One-system, GoPro, Nori, Sportabler)

  • Vefir – Einstök tilvik sem keyra á ákveðnu vefkerfi


Tegundir vefumsókna

Tegundir vefumsókna eru grunnuppsetning kerfisins. Hver tegund skilgreinir eina þjónustu sem sveitarfélagið býður upp á.

[Mynd: Skjáskot af tegund vefumsóknar spjaldi]

Á hverri tegund er skilgreint:

  • Bókunartegund – Hvernig umsóknir eru bókaðar (reikningur, tímabilsreikningur, færslubók, millifærsla, stuðningur)

  • Tekjulykill – Fjárhagslykill sem tekjur eru bókaðar á

  • VSK viðskiptabókunarflokkur – VSK meðhöndlun

  • Vefkerfategund – Hvaða vefkerfi tegundin tilheyrir

  • Vefur – Hvaða veftilvik tegundin tilheyrir


Aðgerðir á tegund vefumsóknar

  • Upplýsingakóðar – Skilgreina viðbótarupplýsingar sem safnað er í umsóknarferli

  • Greiðsluhættir – Skilgreina hvaða greiðsluhættir eru í boði

  • Afsláttarreglur – Skilgreina afsláttarreglur fyrir tegundina

  • Tölvupóstsniðmát – Skilgreina tölvupósta sem sendir eru sjálfkrafa (móttaka, staðfesting, höfnun)

  • Afrita tegund – Afritar tegund með öllum stillingum og línum (gagnlegt þegar ný tímabil eru sett upp)

  • Afrita línur tegunda – Afritar línur á milli tegunda

  • Villuleita uppsetningu – Athugar hvort uppsetning tegundar er rétt


Aðgangsstýringar

Aðgangsstýringar ákvarða hvaða notendur hafa réttindi til að vinna með hverja tegund vefumsóknar.

  • Aðgangsstýring – Hvort notandi hefur aðgang

  • Getur breytt umsókn – Hvort notandi má breyta umsóknum

  • Getur meðhöndlað umsókn – Hvort notandi má samþykkja/hafna umsóknum

  • Getur breytt uppsetningargögnum – Hvort notandi má breyta stillingum tegundarinnar


Hlutverkamiðstöð

Sveitargáttin hefur sérstaka hlutverkamiðstöð (Sveitagátt) sem sýnir yfirlit yfir opin mál og flýtileiðir að helstu aðgerðum. Hlutverkamiðstöðin er aðgengileg af hlutverkamiðstöð sveitarfélaga.

Ef engar tegundir vefumsókna hafa verið settar upp birtist tilkynning sem hvetur notanda til að hefja uppsetningu.

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.