Vefumsóknir eru kjarninn í Sveitargátt Wise. Kerfið tekur við umsóknum frá íbúum um ýmsa þjónustu sveitarfélaga í gegnum vefviðmót og vinnur þær sjálfkrafa í Business Central.
Í listanum hér til hliðar er að finna frekari upplýsingar um tegundir vefumsókna og vinnslu stakra umsókna.
Lykilhugtök
-
Tegund vefumsókna – Sniðmát sem skilgreinir hvers konar þjónustu er boðið upp á, þ.m.t. bókunarreglur, greiðsluhætti, afsláttarreglur og tölvupóstsniðmát
-
Vefumsókn – Stök umsókn frá íbúa um tiltekna þjónustu
-
Umsóknarlínur – Einstakir þjónustuliðir innan hverrar umsóknar (t.d. sundkennsla, knattspyrna)
-
Upplýsingakóðar – Viðbótarupplýsingar sem hægt er að tengja við tegundir umsókna
Vinnsluferli umsókna
Vefumsóknir fara í gegnum eftirfarandi stöðuferli:
-
Opin – Umsókn móttekin úr vefkerfi
-
Lokið skráningu – Umsókn staðfest og tilbúin til samþykktar
-
Samþykkt – Umsókn samþykkt, reikningur stofnaður (eða hafnað)
-
Reikningsfært – Sölureikningur stofnaður og sendur
-
Lokið – Vinnslu lokið
Á hverju stigi sendir kerfið sjálfkrafa tölvupóst til umsækjanda samkvæmt sniðmáti sem er skilgreint á tegund vefumsóknar.
Aðgerðir á vefumsókn
-
Staðfesta skráningu – Merkir umsókn sem fullkláraða
-
Samþykkja (F9) – Samþykkir umsókn og stofnar reikning
-
Hætta við – Hafnar umsókn og sendir höfnunarpóst
-
Kanna styrkhæfi á Island.is – Athugar hvort umsækjandi eigi rétt á fristundastyrkjum (aðeins sýnilegt fyrir Island.is tegundir)
-
Prenta – Prentar umsóknina
-
Opna viðhengi – Sýnir skjöl sem fylgja umsókninni
Fjöldaaðgerðir á yfirlitssíðu
-
Samþykkja allar (Shift+F9) – Samþykkir allar síaðar umsóknir í einu
-
Stofna kreditreikninga – Býr til sölukreditreikninga fyrir valdar umsóknir
-
Vinna færslur í verkröð – Vinnur umsóknir sem bíða í verkröð
-
Breyta stöðu umsókna – Breytir stöðu á völdum umsóknum