Uppsetningaraðstoð leiðir notanda í gegnum fyrstu uppsetningu Sveitargáttarinnar. Kerfið notar tilkynningu á hlutverkamiðstöð til að benda nýjum notendum á að hefja uppsetningu.
Fyrstu skref
Þegar hlutverkamiðstöð sveitarfélags er opnuð í fyrsta skipti og engar tegundir vefumsókna hafa verið settar upp, birtist tilkynning:
"Sveitargátt Wise hefur ekki verið sett upp. Viltu setja hana upp núna?"
Notandi getur valið:
-
Setja upp núna – Opnar síðuna Tegundir vefumsókna þar sem uppsetning hefst
-
Minna mig á eftir 1 dag – Frestar tilkynningunni
-
Ekki sýna þetta aftur – Slekkur á tilkynningunni varanlega
Uppsetningarskref
Til að setja kerfið upp er farið í gegnum eftirfarandi skref:
-
Stofna vefkerfi – Skilgreina ytri kerfi sem tengjast (t.d. One-system, Vala, Sportabler)
-
Stofna vef – Skilgreina veftilvik fyrir hvert vefkerfi
-
Stofna tegundir vefumsókna – Skilgreina þjónustur sem boðið er upp á
-
Skilgreina línugerðir – Bæta við þjónustuliðum á hverja tegund
-
Stilla greiðsluhætti – Velja hvaða greiðsluhættir eru í boði
-
Stilla upplýsingakóða – Skilgreina viðbótarupplýsingar sem safnað er
-
Stilla tölvupóstsniðmát – Skilgreina sjálfvirka tölvupósta
-
Stilla aðgangsstýringar – Veita notendum réttindi
Villuleiting uppsetningar
Á hverri tegund vefumsóknar er aðgerðin Villuleita uppsetningu sem athugar hvort uppsetningin er rétt og bendir á það sem vantar.