Skip to main content
Skip table of contents

Handbók fyrir Skuldabréfakerfi Wise

Skuldabréfakerfið er verkfæri til að halda utan um útreikninga skuldabréfa. Kerfið meðhöndlar hinar ýmsu tegundir skuldabréfa, hvort sem um er að ræða bréf í erlendri mynt, innlend verðtryggð eða óverðtryggð.
Skuldabréfakerfið er einfalt í notkun og með einni aðgerð getur notandi kallað fram öll bréf sem eru komin á gjalddaga í hvert sinn. Þar sem útreikningar á afborgunum, vöxtum og verðbótum er oft á tíðum flókinn er mikilvægt að vandað sé til verka í uppsetningu á bréfum í upphafi. Hvort sem um er að ræða ný bréf eða eldri bréf sem eru skráð í kerfið á miðjum lánstíma.

Wise gefur út handbók fyrir öll þau sérkerfi sem fyrirtækið hefur þróað. Handbækurnar taka fyrir virkni kerfanna og er því ekki um kennslubók að ræða. Farið er í gegnum aðalvalmynd kerfisins þar sem útskýrt er hvaða upplýsingar þar eru geymdar og hvaða virkni er í boði hverju sinni.

Þessi handbók fyrir Skuldabréfakerfi Wise fylgir útgáfu BC17 eða nýrri.

Wise notar leyfisskrá fyrir sín kerfi. Allir notendur sem nota kerfið þurfa líka að hafa heimildasamstæðuna WISELCS BASIC á sér.

Þjónustuborð og frekari aðstoð

Þjónustuborðið okkar er opið alla virka daga frá kl. 09 – 17. Sérfræðingar okkar sitja þar fyrir svörum og aðstoða þig með ánægju. 

Hafðu samband ef við getum aðstoðað þig í síma 545 3232, eða með því að stofna beiðni í þjónustukerfi Wise

Almennt um Wise

Wise er stærsti og einn öflugasti söluaðili á Microsoft Dynamics 365 Business Central bókhalds- og viðskiptahugbúnaði á Íslandi og hefur sérhæft sig í lausnum á sviði fjármála, verslunar, sérfræðiþjónustu, sveitarfélaga, sjávarútvegs og flutninga.  Wise býður mikið úrval hugbúnaðarlausna sem byggir á þeirri hugmyndafræði að gera fyrirtækjum kleift að taka góðar og vel ígrundaðar viðskiptaákvarðanir, byggðar á öruggum upplýsingum úr viðskipta- og birgðakerfum fyrirtækisins.  Innan Wise starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu í Microsoft lausnum. Þar fyrir utan hefur fyrirtækið sjálft hannað mikinn fjölda lausna fyrir íslenskan markað og jafnframt náð ágætis árangri í útflutningi á lausnum sínum og þjónustu.
Fyrirtækið leggur sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu.

Á flóknum úrlausnarefnum er gjarnan hægt að finna einfalda lausn. Það er okkar markmið.

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.