Tegundir vefumsókna
Tegundir vefumsókna eru grunnuppsetning Sveitargáttarinnar. Hver tegund skilgreinir eina þjónustu sem sveitarfélagið býður upp á, t.d. sundnámskeið, fristundaskráning eða leyfaumsókn.
Tegundaspjald
[Mynd: Skjáskot af tegund vefumsóknar spjaldi]
Á tegundaspjaldinu eru eftirfarandi reitir:
Kóði – Einkvæmt auðkenni tegundarinnar
Lýsing – Heiti þjónustunnar eins og íbúar sjá hana
Bókunartegund – Hvernig umsóknir eru bókaðar:
Reikningur – Sölureikningur stofnaður
Tímabilsreikningur – Tímabilsbundinn reikningur
Færslubók – Bókað beint í fjárhag
Millifærsla – Millifærsla á milli lykla
Stuðningur – Enginn reikningur stofnaður
Tekjulykill – Fjárhagslykill sem tekjur bókast á
VSK viðskiptabókunarflokkur – Ákvarðar VSK meðhöndlun
Vefkerfategund – Hvaða ytri vefkerfi tegundin tilheyrir
Vefur – Hvaða veftilvik tegundin tengist
Línugerðir
Hver tegund getur haft margar línugerðir sem skilgreina einstaka þjónustuliði.
Kóði – Auðkenni línugerðar
Lýsing – Heiti þjónustuliðarins (t.d. "Sundkennsla 6 ára", "Knattspyrna unglingar")
Einingarverð – Verð á hverjum lið
Aldursbil – Aldursmörk ef þjónustan er aldursbundin
Aðgerðir á tegundaspjaldi
Upplýsingakóðar – Skilgreina viðbótarupplýsingar sem umsækjandi þarf að gefa upp
Greiðsluhættir – Stilla hvaða greiðsluhættir eru í boði
Afsláttarreglur – Tengja afsláttarreglur við tegundina
Tölvupóstsniðmát – Stilla sjálfvirka tölvupósta (móttöku, staðfestingu, höfnun)
Nafnalisti afsláttar – Sjá/breyta kennitölum með afsláttarrétt
Afsláttalínur – Skoða afsláttarlínur
Endurvinnslukort – Stjórnun endurvinnslu-/sorpkorta (ef við á)
Villuleita uppsetningu – Athugar hvort uppsetningin er rétt
Afrita tegund – Afritar tegund ásamt öllum stillingum og línum
Afrita línur tegunda – Afritar línur á milli tegunda (gagnlegt þegar ný tímabil eru sett upp)