Skip to main content
Skip table of contents

Velkomin í Business Central í Microsoft SaaS

Við viljum byrja á því að bjóða ykkur hjartanlega velkomin í viðskipti til Wise. Á þessari síðu förum við með ykkur yfir fyrstu skrefin í Microsoft Dynamics 365 Business Central, kynnum ykkur fyrir umhverfinu og sýnum helstu aðgerðir, svo sem stofnun notenda og stofnun viðskiptavina. Síðan höldum við áfram yfir í kennslu á uppsetningu stofngagna fyrir sérkerfi Wise.

Þessi handbók er fyrir þá viðskiptavini sem eru í Microsoft Dynamics 365 Business Central Online (Microsoft SaaS).

Wise notar leyfisskrá fyrir sín kerfi. Allir notendur sem nota kerfið þurfa að hafa heimildasamstæðuna WISELCS BASIC á sér.


Þjónustuborð og frekari aðstoð

Þjónustuborðið okkar er opið alla virka daga frá kl. 09 – 17. Sérfræðingar okkar sitja þar fyrir svörum og aðstoða þig með ánægju. 

Hafðu samband ef við getum aðstoðað þig í síma 545 3232, eða með því að stofna beiðni í þjónustukerfi Wise


Almennt um Wise

Wise er stærsti og einn öflugasti söluaðili á Microsoft Dynamics 365 Business Central bókhalds- og viðskiptahugbúnaði á Íslandi og hefur sérhæft sig í lausnum á sviði fjármála, verslunar, sérfræðiþjónustu, sveitarfélaga, sjávarútvegs og flutninga.  Wise býður mikið úrval hugbúnaðarlausna sem byggir á þeirri hugmyndafræði að gera fyrirtækjum kleift að taka góðar og vel ígrundaðar viðskiptaákvarðanir, byggðar á öruggum upplýsingum úr viðskipta- og birgðakerfum fyrirtækisins. 

Innan Wise starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu í Microsoft lausnum. Þar fyrir utan hefur fyrirtækið sjálft hannað mikinn fjölda lausna fyrir íslenskan markað og jafnframt náð ágætis árangri í útflutningi á lausnum sínum og þjónustu.

Fyrirtækið leggur sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu.

Á flóknum úrlausnarefnum er gjarnan hægt að finna einfalda lausn. Það er okkar markmið.

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.