Ritill fyrir lýsingu (Rich text editor)

Í CoreData er hægt að forsníða texta í reitnum Lýsing með nýjum ritli. Hægt er að nota feitletrun, skáletrun, fyrirsagnir, lista, gátlista, töflur, tengla o.fl. svo upplýsingar verði skýrari og auðlesnari – t.d. dagskrá stjórnarfunda.

Athugið: Ritillinn er viðbót sem kveikt er á fyrir hvert kerfi. Ef ritillinn birtist ekki hjá ykkur, hafið samband við CoreData þjónustuna (coredata@wise.is / 550 3900).

Hvar er ritillinn notaður?

Ritillinn birtist í reitnum Lýsing þegar verið er að stofna eða breyta:

  • Verkefnum

  • Verkliðum

  • Skrám / skjölum

  • Viðskiptavinum / tengiliðum

  • Eignum

  • Fjöldabreytingu (breyta mörgum í einu)

02-nytt-verkefni-form.png
Formið „Nýtt verkefni“ með útfylltri lýsingu

Tækjastikan

Efst í reitnum er tækjastika. Ef músinni er haldið yfir hnappi birtist heiti hans.

Tækjastikan í reitnum Lýsing
Tækjastikan í reitnum Lýsing

Hnapparnir, frá vinstri til hægri:

Hnappur

Hvað gerir hann

Afturkalla (Ctrl+Z) / Endurgera (Ctrl+Y)

Afturkallar eða endurtekur síðustu breytingu

Feitletrað / Skáletrað / Undirstrikað

Forsníður valinn texta. Flýtilyklar: Ctrl+B, Ctrl+I, Ctrl+U (Cmd á Mac)

Yfirstrikað

Dregur línu í gegnum valinn texta

Innfelldur kóði

Birtir valinn texta með föstu letri

Aðalatriði

Litar bakgrunn valins texta gulan til áherslu

Blokkgerð (fellilisti)

Málsgrein, Tilvitnun eða Fyrirsögn 1–6

Punktalisti / Númeraður listi / Gátlisti

Býr til lista. Gátlisti er listi með hökum sem hægt er að haka við

Búa til hlekk

Setur inn tengil á vefsíðu eða netfang

Setja inn töflu

Setur inn töflu

Setja inn þema línubrot

Setur inn lárétta skillínu

Sniðinn texti / Mismunurhamur / Upprunahamur

Skiptir á milli sýna (sjá neðar)

Fellilistinn Blokkgerð
Fellilistinn Blokkgerð

Svona forsníður þú texta

  1. Opnaðu formið til að stofna eða breyta (t.d. Nýtt verkefni eða Breyta á yfirlitssíðu verkefnis).

  2. Skrifaðu textann í reitinn Lýsing.

  3. Veldu (merktu) textann sem á að forsníða og smelltu á viðeigandi hnapp á tækjastikunni.

  4. Smelltu á Vista neðst í forminu.

Gott að vita: Ritillinn breytir ekki texta sjálfkrafa á meðan þú skrifar. Ef þú skrifar t.d. #, -, 1. eða > í upphafi línu helst textinn nákvæmlega eins og þú skrifaðir hann. Forsnið er eingöngu sett á með tækjastikunni eða flýtilyklum.

Fyrirsagnir og tilvitnanir

Settu bendilinn í línuna og veldu Fyrirsögn 1–6 eða Tilvitnun í fellilistanum Blokkgerð. Veldu Málsgrein til að breyta aftur í venjulegan texta.

Listar

  • Veldu Punktalisti, Númeraður listi eða Gátlisti á tækjastikunni.

  • Enter býr til nýtt atriði í listanum.

  • Tab færir atriði inn um eitt stig (undirlisti), Shift+Tab færir það til baka.

  • Ýttu á Enter í tómu atriði til að hætta í listanum.

  • Í gátlista er hakað við atriði með því að smella á reitinn – kláruð atriði birtast yfirstrikuð.

Tenglar

  1. Veldu textann sem á að verða tengill.

  2. Smelltu á Búa til hlekk og límdu inn slóðina.

  3. Staðfestu. Þegar lýsingin er skoðuð opnast tengillinn í nýjum flipa og netföng opna póstforritið.

Töflur

Smelltu á Setja inn töflu og skrifaðu svo beint í reitina. Þegar bendillinn er í töflunni birtast stjórnhnappar til að bæta við eða eyða línum og dálkum.

Sýnir (fyrir lengra komna)

  • Sniðinn texti – sjálfgefin sýn þar sem textinn birtist forsniðinn.

  • Mismunurhamur – sýnir hvað hefur breyst miðað við vistaða útgáfu.

  • Upprunahamur – sýnir textann á Markdown-sniði, sem er sniðið sem lýsingin er vistuð á. Hentar þeim sem þekkja Markdown, t.d. til að líma inn tilbúinn texta.

Dæmi: Dagskrá stjórnarfundar

Í dæminu hér að neðan er notuð fyrirsögn, feitletrun, skáletrun, aðalatriði, númeraður listi, gátlisti, tafla, tilvitnun og tengill:

Lýsingin eins og hún birtist á yfirlitssíðu verkefnis
Lýsingin eins og hún birtist á yfirlitssíðu verkefnis

Hvernig birtist lýsingin?

Hvar

Hvernig

Yfirlitssíður (verkefni, skrár, viðskiptavinir, eignir, samningar)

Öll lýsingin, forsniðin

Listar í ítarlegri sýn, leit, Nýleg verkefni og Uppáhalds á heimasíðu, gluggar til að færa skrár/verkliði, stjórnarfundasvæði og leitargluggi í Outlook viðbót

Forsniðin en stytt, allt í sömu leturstærð

Töflusýn í listum og leit, og breytingasaga

Textinn eins og hann er vistaður, stytt (forsniðstákn á borð við ** eða # geta sést)

Stytt lýsing í Nýleg verkefni á heimasíðu
Stytt lýsing í Nýleg verkefni á heimasíðu

Eldri lýsingar

  • Lýsingar sem skrifaðar voru áður en ritillinn var tekinn í notkun birtast óbreyttar, t.d. halda línur sem byrja á dagsetningu („15. janúar 2026: …“) sínu útliti og númeri.

  • Þegar skjalið er vistað næst er lýsingin vistuð á nýja sniðinu og lítur áfram eins út. Eftir það virkar forsnið eðlilega.

  • Sama á við þegar nýtt skjal er stofnað út frá sniðmáti með útfylltri lýsingu.

Ráð: Ef þú sérð forsniðstákn birtast bókstaflega í lýsingu (t.d. **texti** í stað texti), opnaðu skjalið með Breyta og vistaðu það aftur.

Outlook viðbót (Send to CoreData)

  • Í nýrri Outlook (Microsoft 365) er ritillinn einnig í boði í lýsingarreitnum þegar tölvupóstur er vistaður í CoreData. Mælt er með nýjustu útgáfu Outlook viðbótarinnar.

  • Í eldri Outlook (t.d. Office 2016/2019) er lýsingin áfram venjulegur textareitur og vistast sem óforsniðinn texti.

Ef slökkt er á ritlinum

Ef viðbótin er ekki virk hjá ykkur er reiturinn Lýsing venjulegur textareitur, eins og áður.

Væntanlegt

  • Breyta lýsingu beint á yfirlitssíðu – smellt verður beint á lýsinguna á yfirlitssíðu verkefnis, skráar, viðskiptavinar eða eignar til að breyta henni, án þess að opna breytingaformið. Þessi síða verður uppfærð þegar sú virkni er komin í notkun.

  • Frekari viðbætur eru í þróun, t.d. ritillinn í athugasemdum og stuðningur við myndir í lýsingu.

Hafið samband ef spurningar vakna eða ef þið hafið ábendingar: Sími: 550 3900 · Netfang: coredata@wise.is