Finna þekktar færslur
Þegar búið er að setja upp eina línu eða fleiri í stillingar fyrir þekktar færslur er hægt að láta kerfið sækja færslurnar í töfluna sem geymir innlesnar bankahreyfingar.
Aðgerðina er að finna undir Aðgerðir > Finna þekktar færslur.
Þegar smellt er á Finna þekktar færslur opnast keyrsluglugginn.
Oftast nægir að setja inn það dagsetningatímabil sem óskað er eftir. Ef óskað er eftir nánari afmörkun, t.d. á ákv. bankareikning eða ákv. aðila er hægt að setja slíka afmörkun inn með því að smella á + Afmörkun.
Ef óskað er eftir því að bóka færslubókina sjálfkrafa er sett hak í reitinn Bóka færslubók. Þegar búið er að sækja þekktar færslur og flytja í færslubók merkir kerfið færslurnar í töflunni svo það er ekki hætta á því að sömu færslur verði sóttar aftur og fluttar í færslubókina. Keyrslan er keyrð eins oft og þörf er á.