Senda Fjármagnstekjuskatt eða hlutafjármiða til RSK

Fjármagnstekjuskattur

Með því að fara í Tímabilsaðgerðir > Fjármagnstekjuskattur til RSK er hægt að senda upplýsingar um fjármagnstekjuskatt til RSK.

image-20231129-095929.png
  • Tekjuár - Kemur sjálfkrafa, útfrá dagsetningunni í dag

  • Tekjutímabil - Tekjutímabil kemur einnig sjálfkrafa, skiptir um tímabil þegar það eru komnir 45 dagar framyfir seinasta mánuðinn í tímabilinu

  • Númer sendingar - Þegar aðgerðin Breyta er valin þá sækir hún nýjustu eða seinustu númer sendingar úr hluthafagrunninum.

  • Ný sending - Þegar send er ný sending þá uppfærir hún númer sendingu í hluthafagrunninum.


Hlutafjármiðar

Hægt er að senda hlutafjármiða til RSK með einu handtaki. Það er gert með því að fara í Tímabilsaðgerðir > Senda hlutafjármiða til RSK. Viðvörun kemur upp sem býður upp á að hætt sé við aðgerðina.


image-20231129-100129.png