Verkbókhaldsnotandi
Allir notendur sem nota Sérfræðiverkbókhaldið verða að vera settir upp á síðunni Verkbókhaldsnotandi.
Kenni - Kenni notanda.
Heiti - Heiti notanda.
Verkbók - Verkbókarkeyrsla notandans.
Forðanúmer - Númer forðans sem er skráð á forðasíðu.
Heiti forða - Útreiknaður reitur sem sækir heiti forða á forðasíðu.
Yfirnotandi verkbókhalds - Þeir sem eru með hak sér eru yfirnotendur og hafa aðgang að öllum upplýsingum og öllum aðgerðum í kerfinu.
Nota mín verk - Þegar kafað ofan í verk númer í tímaskráningarglugga þá kemur upp listinn Mín verk, í stað listi yfir öll verk, þegar hakað hér.
Læsing verkbóka óvirk - Ef hakað hér þá er horft fram hjá læsingum á verkbók sem er stillt í verkagrunni og notandi getur skráð færslur á hvaða dagsetningu sem er.
Verkbók læst til - Hér er hægt að tilgreina að ákveðnir notendur geti skráð færslur fram að þessari dagssetningu. Ef eitthvað er skráð hér þá yfirtekur þessi reitur stillinguna í verkagrunni.