Áætlun flutt í fjárhagsáætlun

Þegar áætlun er tilbúin fyrir fyrri umræðu þá er hún uppfærð upp í fjárhagsáætlun

image-20231212-090817.png
Áætlun flutt í fjárhagsáætlun

Á milli umræðna má búast við að ýmsar breytingar eru gerðar á launaáætlun. Hægt er að gera þær á tvo vegu, annað hvort í vinnubókum eða inn í sjálfri áætluninni. Ef valið er að gera það í vinnubókum, má stofna nýjar fyrir deildir sem á að breyta (sumir kjósa að gera það til að hafa söguna á hreinu) og fara í gegnum allt ferlið aftur. Ef valið er að gera það í áætluninni, má afmarka viðkomandi deild eða starfsmann

image-20231212-091132.png
Deild afmörkuð

og þaðan er unnið í launavinnubókum starfa sem á að breyta. Passa að gleyma ekki að reikna aftur viðkomandi línur, en kerfið sýnir hvenær línunni var breytt og hvenær hún var síðast reiknuð

image-20231212-091251.png

Ef dagssetningar eru ekki þær sömu, þá hefur líklega gleymst að reikna.

Að öllum breytingum loknum er áætlunin þá aftur flutt í fjárhagsáætlun, en þá yfirskrifast fyrri launaáætlanalínur í fjárhagsáætluninni.

Að seinni umræðu lokinni og launaáætlunin (og fjárhagsáætlunin) skoðast samþykktar í byggðarráði/bæjarstjórn, þá er mikilvægt að setja hak í lokuð. Þá er valið að breyta lista og hakið sett í (muna að velja aftur: breyta lista)

image-20231212-091631.png

Nú er samþykkt áætlun tilbúin og verður henni ekki breytt aftur.