Millifærslur
Þessi aðgerð opnar glugga þar sem hægt er að skrá millifærslu vegna kröfu. Þá opnast þessi gluggi tómur og hér þarf að fylla inn upplýsingar um innborgun kröfunnar.
![](../__attachments/48136277/image-20220924-181008.png?inst-v=c4f894b0-bb17-4c44-a527-9a752120de39)
Aðgerðir
Hnappur | Skýring |
Nr. | Hér er sett inn viðskiptamannanúmer. |
Heiti | Heiti viðskiptamanns . |
Staða | Heildarskuldastaða viðskiptamanns. |
Sýna aðeins positivar tölur | Ef hak er haft á þá sjást bara plústölur. |
Upphæð sem greiða á | Hér er innslegin greiðsluupphæð. |
Reikna kostnað | Þegar búið er að slá inn upphæð greiðslu, þarf að velja þá línu sem greiðsla jafnast á móti og velja Reikna kostnað. |
Bókunardags. | Dagsetning færslu. |
Fjárh.reikn. vaxtakostnaður | Velja lykil sem vaxtatekjur bókast á . |
Bankareikningur greiðslu | Velja banka úr lista sem greitt er inná. |
Sniðmát inngreiðslubókar | Sækja það sniðmát úr lista sem á að nota. |
Keyrsla inngreiðslubókar | Velja keyrslu úr lista. |
Mynda greiðslu | Þegar búið er að fylla út alla reiti sem taldir eru upp hér að ofan er hægt að bóka greiðsluna. Við myndun greiðslu opnast færslubók sem þarf síðan að bóka. |
Opna færslubók | Opnar inngreiðslubók Innheimtukerfis. |
Hreinsa | Hreinsar öll innsláttargildi í glugganum og setur í frumstöðu. |