Um Innheimtukerfi Wise
Innheimtukerfi Wise gerir fyrirtækjum kleift að innheimta viðskiptakröfur með einföldum hætti ásamt því að ná góðri yfirsýn yfir innheimtuferlið í heild. Hægt er að velja á milli mismunandi innheimtuleiða s.s. bankakröfur, boðgreiðslur, greiðslusamninga eða milliinnheimtu. Mikill vinnusparnaður er t.d. þegar greiðslur eru lesnar inn þá bókast þær á viðskiptamann og jafnast á móti reikningi kröfunnar sem er verið að greiða, vextir og innheimtukostnaður bókast sjálfkrafa á fyrirfram skilgreinda reikninga. Kerfið byggir á íslenska sambankastaðlinum (IOBS) sem gerir ráð fyrir notkun búnaðarskilríkja og uppfyllir ströngustu öryggisstaðla.
Helstu aðgerðir:
- Kröfukeyrsla.
Kröfur stofnast annað hvort við bókun reikninga eða valið er að stofna þær eftirá t.d. ef stofna á kröfur á tímabil. Kröfum getur verið breytt, þær sendar eða felldar niður - Kröfulisti.
Listi yfir allar kröfur. Hægt að uppfæra stöðu krafna frá vefþjónustu, breyta kröfum og fella niður kröfur - Lesa inn greiðslur.
Greiðslur lesnar inn og bókast sjálfkrafa nema valið hafi verið í uppsetningu að þær stoppi í færslubók - Milliinnheimtur.
Tenging við Motus og Inkasso fyrir milliinnheimtu - Boðgreiðslur.
Tenging við bæði Valitor og SaltPay til að innheimta greiðslur með boðgreiðslum - Greiðslusamningar.
Setja upp greiðslusamning og stofna allar kröfur við staðfestingu samnings
.