Skip to main content
Skip table of contents

Stillingar fyrir Wise vefþjónustu

Hér er skilríki fyrirtækisins sett upp ásamt vefþjónustum fyrir hverja aðgerð.

Í reitinn Einkenni aðgangs þarf að setja aðgangslykil sem Wise útvegar. Þegar nýr lykill er skráður inn í reitinn tengist kerfið sjálfkrafa inn á vefþjónustuna sem er tilgreind í reitnum Vefþjónustuslóð og opnast þá þessi gluggi þar sem hakað er í Leyfa alltaf: 

Næsta skref er að setja upp búnaðarskilríki fyrirtækisins. Það er gert með því að smella á punktana þrjá aftan við reitinn Skilríki. Þá opnast þessi gluggi þar sem hakað er í Lesa inn skilríki og Í lagi: 


Við það opnast windows explorer þar sem skilríkið er sótt.

Ef skilríkið var lesið inn og er til staðar færist sleðinn aftan við reitinn Skilríki til hægri. Því næst er lykilorðið fyrir skilríkið skráð inn í reitinn Lykilorð.

Athugið að ef skilríkjaskráin er ekki til staðar en skilríkið hefur þegar verið sett upp þarf að byrja á því að "exporta" skilríkinu með "private key", gefa því lykilorð og vista.

Þegar búið er að skrá inn lykilorðið, fer fram ákveðin prófun á skilríkinu. Ef sú prófun er í lagi fyllist inn í reitina Upplýsingar um skilríki, Gildistími skilríkis frá og Gildistími skilríkis til. 

Næsta skref er að virkja aðgerðirnar sem eru neðst í glugganum með því að haka í reitinn Aðgerð virk aftan við hverja aðgerð. Ef uppsetningin er í lagi kemur sjálfkrafa hak í reitinn Tenging í lagi. 

Þegar ofangreindri uppsetningu er lokið og opnað hefur verið á notandann í bankanum er hægt að hefja notkun á kerfinu. Ekki er óalgengt að notandi fái villuskilaboð frá banka í fyrsta sinn. Þá þarf að hafa samband við bankann þar sem skilríkin eru tengd og aðgangur virkaður.
Aðgerðalínur sýna aðgerðir bankakerfisins. Þessar aðgerðir eru síðan valdar inn í viðeigandi reiti í uppsetningu kerfisins.

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.