Aðilar undanþegnir fjármagnstekjuskatti
Hér þarf að skrá aðila sem greiða ekki fjármagnstekjuskatt eða greiða ekki skatthlutfallið sem skráð er í stofngögnum. Þetta er að finna undir Uppsetning.
Ef bæta á við nöfnum er smellt í línu og ýtt á Nýtt í borðanum. Að sama skapi er hægt að eyða línum út af listanum með því að velja tiltekna línu og ýta á Eyða.
Athuga þarf að ef nafn á listanum hefur enga tölu aftan við nafn sitt reiknast enginn fjármagnstekjuskattur (0%) á viðkomandi.