Laus störf
Yfirlit yfir þau störf sem hafa verið stofnuð. Hægt er að sjá þá umsækjendur sem hafa verið tengdir við starfið, hvort sem það eru nýir umsækjendur eða starfsmenn sem vinna hjá fyrirtækinu. Þar má einnig sjá fjölda umsækjenda, starfshlutfall og hvort starfsleit sé lokið eða ekki.
Almennt
Reitur | Skýring |
Nr. | Þegar laust starf er stofnað þá fær það sjálfgefið númer sem ekki er hægt að breyta. |
Stöðugild | Stöðugildi sem tilheyrir lausa starfinu sett inn. |
Heiti starfs | Kemur frá stöðugildinu. |
Starfshlutfall | Starfshlutfall sem er í boði. |
Gildir til dags. | Lokadagur umsóknafrests. |
Starfi lokað | Ef hakað er í reitinn þá er umsýslu um starfið lokið. |
Hæfniskröfur | Þær hæfniskröfur sem æskilegt er að umsækjandi hafi til að uppfylla kröfur fyrir starfið. |
Vægi | Hvað hver og ein krafa hefur mikið vægi vegna starfsins. |