Skilmálar II
Reitur | Skýring |
Fjöldi vaxtagjalddaga | Í þennan reit er einungis skráð þegar um afborgunarlausa gjalddaga er að ræða og aðeins eru greiddir vextir af láni. Hér er tilgreindur fjöldi þeirra vaxtagjalddaga sem líða áður en afborgunargjalddagar taka við. |
Fjöldi mán. milli vaxtagjalddaga | Þessi reitur er einungis notaður þegar um afborgunarlausa vaxtagjalddaga er að ræða á bréfinu. Hér er tilgreint hversu margir mánuðir líða milli vaxtagjalddaga áður en afborgunargjalddagar taka við. |
Fyrsti vaxtagjalddagi | Dagsetning fyrsta vaxtagjalddaga er tilgreind í þessum reit. |
Leyfa gjalddaga á helgidögum | Ef hakað er við reitinn geta gjalddagar lent á helgidögum. Ef ekki er hakað við geta gjalddagar ekki lent á almennum frídögum. |
Nota bankagengi | Gjaldmiðilsgengi getur verið mismunandi milli banka. Ef verið er að nota mismunandi gengi gjaldmiðla fyrir banka þá er hér tilgreint hvaða bankagengi á við um þetta tiltekna bréf. Þetta er eingöngu hægt að nota ef stilling í Skuldabréfagrunni er þannig að verið sé að nota skuldabréfagengi. |
Er lágmarksvísitala | Ef hakað er í þennan reit lækkar gengi bréfsins ekki niður fyrir grunnvísitölu. |
Er dagsvísitala | Ef hakað er í þennan reit þá er notast við dagvísitölu í uppreikningi á verðbótum. |
Nota 5 aukastafi í verðbótastuðli | Ef hakað er í þennan reit þá eru einungis notaðir 5 aukastafir við uppreikning á verðbótum, annars eru notaðir fleiri. |
Óreglulegar afborganir | Hakað er við þennan reit ef afborganir eru óreglulegar og gera þarf handvirkar breytingar á upphæð afborgunar. Þetta hak kemur í veg fyrir að kerfið yfirskrifi breytingarnar næst þegar afborganir eru uppreiknaðar. |