Skip to main content
Skip table of contents

Uppsetningaraðstoð Skuldabréfakerfisins

Hafi skuldabréfakerfið ekki verið sett upp mun kerfið láta vita þegar farið er í Uppsetningu skuldabréfakerfis og bjóða notanda aðstoð við uppsetningu kerfisins. Sé smellt á Opna þá opnast uppsetningaraðstoðin.

Fyrsta skrefið er bara útskýring á ferlinu og er smellt á Áfram til að hefja uppsetninguna.

Skref 1: Hér þarf að velja þá færslubók sem þú vilt að kerfið noti. Allar færslur sem kerfið myndar sjálfkrafa munu fara í þessa færslubók. Einnig þarf að velja gjaldmiðil verðtryggingar, sem ætti að vera ISK eða eitthvað afbrigði af þeim gjaldmiðli. Að lokum er skilgreindur sá bankareikningur sem kemur sjálfkrafa sem mótlykill á þær færslur sem kerfið myndar. Einnig biðreikning sem kemur sjálfkrafa sem mótlykill þegar bakfæra þarf afborganir. Þessum lyklum er alltaf hægt að breyta í færslubókinni áður en bókað er.


Skref 2: Hér þarf að velja þær tegundir bréfa sem stendur til að skrá í kerfið. Kerfið mun sjálfkrafa stofna bókunarflokka eftir því sem valið er hér. Athugið að það má alltaf bæta við eða eyða bókunarflokkum síðar.

Skref 3: Hér þarf að slá inn fjárhagslykla fyrir bókunarflokka skuldabréfa sem voru stofnaðir skv. vali í síðasta skrefi. Ef einhverjir bókunarflokkar voru þegar til þá birtast þeir hér líka.


Skref 4: Sambærilegt og síðasta skref nema núna eru það lyklar fyrir bókunarflokka vaxta.

Skref 5: Hér valið hvort nota eigi gengistöflu Business Central kerfisins eða stofna eigi sérstaka gengistöflu fyrir skuldabréfakerfið. Sjálfgefið er að val gengis sé Fjárhagur og ef því er ekki breytt þarf ekki að gera neitt nema smella á Áfram.

Síðasta skrefið er svo að smella á Ljúka eða Fara til baka til að lagfæra uppsetninguna.

 

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.