Skip to main content
Skip table of contents

Sjálfvirkur innlestur á vöxtum og kostnaði

Þessi aðgerð uppfærir vexti og kostnað á öllum kröfum sem eru skráðar með RB stöðu um að þær séu virkar í banka. Einnig uppfærir kerfið stöðu á öllum kröfum sem eru í milli-innheimtu hjá Motus.

Til þess að virka þessa aðgerð þarf að skrá aðgerð 10003027 – INN Autom. update interests í Verkröð.

Í flestum tilfellum er þessi aðgerð keyrð einu sinni að morgni alla virka daga.

Breyta þarf stöðunni á verkröðinni í Tilbúið svo hún keyri.

Næst þarf að merkja við ákveðinn reit í stofngögnum Innheimtukerfisins. Þetta er reiturinn Sjálfvirkur innlestur vaxta og er undir hópnum Annað.

Að lokum þarf að skilgreina fyrir hvaða innheimtuaðila á að lesa inn vexti. Ef þú varst að setja hakið á, þarftu fyrst að loka Innheimtukerfisgrunn og opna hann aftur.
Veldur svo aðgerðina Vextir og kostnaður í valborða í uppsetningaglugga Innheimtukerfisins.

Hér er síðan skráðir inn þeir innheimtuaðilar sem kerfið uppfærir sjálfvirkt vexti og kostnað fyrir. Röðun skiptir ekki öllu máli, en það er mikilvægt að haka í dálkinn Virk. Sjálfvirknikeyrslan uppfærir aðeins virkar línur.

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.