Skip to main content
Skip table of contents

Stofnun innkaupareiknings

Í hlutverkinu Viðskiptastjórnandi sem er sett upp sem sjálfgefið hlutverk í biðlaranum, er hnappur á aðgerðastikunni á forsíðunni sem vísar beint inn í autt innkaupareikningsspjald.

Til þess að opna lista yfir alla innkaupareikninga sem hafa verið skráðir, en eru enn óbókaðir, er farið í Innkaup - innkaupareikningar. 

Ef þú ert með annað hlutverk valið fyrir þinn notanda þá getur þú farið í listann Innkaupareikningar og valið Nýtt í aðgerðastikunni. Við það opnast autt innkaupareikningsspjald.


Hér má sjá að reikningurinn hefur haus og línur. Í hausinn eru settar upplýsingarnar um lánardrottinn, bókunardagsetningu og fleira sem við kemur haus reiknings. Í línurnar eru síðan settar vörurnar sem verið er að kaupa ásamt magni, verði, afslætti línu og þess háttar.
Þegar búið er að setja reikninginn upp þá er hann bókaður með aðgerðinni Bóka í aðgerðastikunni.

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.