Skip to main content
Skip table of contents

Ítarleg uppsetning RSM

RSM grunnur

Í RSM grunni þarf að athuga nokkur atriði. Til að fá betri skýringu á hverju atriði fyrir sig er bendill settur yfir heiti reits og þá birtist mynd með skýringum. Hér fyrir neðan nefnum við helstu atriði sem vert er að hafa í huga.

Undir flipanum Móttaka reikninga þarf að velja hver bókunaraðferð kerfisins á að vera. Þá þarf að breyta Bókunaraðferð í Færslubók eða Innkaup ef ekki er notað Uppáskriftarkerfi Wise fyrir skráningu reikninga. Undir flipanum Sending rafrænna reikninga þarf að haka í Ná í greiðsluupplýsingar Innheimtukerfi ef Innheimtukerfið er í notkun. Þá sækir RSM kerfið greiðsluröndina úr innheimtukerfinu og sendir með rafræna reikningnum.

Þar undir þarf einnig að skoða reitina undir Viðbótargögn til sendingar. Þar er valið hvað það er sem þarf að senda með rafræna reikningnum. Rafræni reikningurinn hefur 3 dálka sem hægt er að senda upplýsingar í; Lýsing, Bókunarupplýsingar og Bókunarupplýsingar lína. Í grunnuppsetningunni er sett upp Sölulínur og Yðar tilvísun. Þá sendist lýsing efstu línu sölureiknings með rafrænt, ásamt því sem slegið er inn í Yðar tilvísun á sölureikningi.

Undir flipanum Skeytamiðlarar þarf að fylla út viðeigandi skeytamiðlaraupplýsingar. Sem sagt ef gerður var samningur við t.d. InExchange þá þarf að velja InExchange sem skeytamiðlara og fylla út notandanafn og lykilorð, sama á við um Advania og Unimaze (áður Sendil). Þá þarf einnig að passa að haka í Í notkun hjá þeim skeytamiðlara sem valinn er. Mikilvægt er að haka í Sjálfgefinn skeytamiðlari.

Verkröð fyrir Rafræna reikninga

Hægt er að setja upp verkraðir til að auka sjálfvirkni. Í rafrænu reikninga kerfinu er hægt að láta verkröð sækja og senda rafræna reikninga.

Fyrst þarf að haka í RSM grunni hvort verkröðin eigi að senda, sækja eða bæði

Verkraðarfærslur er hægt að finna með því að fara í leitina (alt+Q) og slá inn verkraðarfærslur.
Sá aðili sem stofnar verkröð verður að vera fullur notandi.
Fyrir rafræna reikninga er hægt að nota verkröð til að senda og móttaka rafræna reikninga.

  • Codeunit 10008444 – RSM send and Recieve document

Hér er dæmi um hvernig verkröðin lítur út.
Það þarf að ákveða á hvaða dögum á að keyra verkröðina, upphafstíma og hámarksfjölda tilrauna til keyrslu.
Byrjað á því að finna verkraðarfærslur og smella á Nýtt fyrir nýja færslu.

 

Þá opnast færsluspjald verkraðar.
Setja inn Codeunit 1000844

 Neðar á spjaldinu er flipinn Endurtekning. Þar er skráð á hvaða dögum skýrslan á að vinna og klukkan hvað.

Þegar búið er að fylla út í reitina þarf að virkja keyrsluna með því að fara í Vinna og velja aðgerðina Breyta stöðu í tilbúið. Og því næst að velja Endurræsa. Þá á skýrslan að keyrast á þeim tíma sem er skráður á flipanum Endurtekning.

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.