Skip to main content
Skip table of contents

2.58 - CoreData útgáfulýsing

15. desember 2021

Eftir þunga Python 3 uppfærslu undanfarinna mánuði var komið að því að útfæra spennandi eiginleika sem þið notendur hafið verið að bíða eftir. Í blálokin kom upp veikleiki kenndur við „log4j“ og fórum við strax í að bregðast við honum þar sem öryggi er okkur alltaf ofarlega í huga.

Hér eru nýjungar í úgáfu 2.58

Uppfærsla vegna log4j öryggisógnar

Minnisblað um aðgerðaráætlun var sent út á tengiliði CoreData. Þar kom fram að 13.12.2021 voru gerðar config breytingar á þessum kóðasöfnum sem tengjast þessum veikleika. Það var ein af þeim leiðum sem framleiðendur ráðlögðu m.a. til að koma í veg fyrir þennan veikleika. Í framhaldinu var þetta kóðasafn uppfært í þá útgáfu sem inniheldur ekki þennan veikleika og sú uppfærsla hluti af þessari útgáfu.

Notendur geta breytt röðun í „Flýtileiðir“

Nú geta notendur sjálfir breytt röðuninni á þeim hlutum sem þeir hafa merkt við að hafa í flýtileiðum (e. my favourites). Notandi einfaldlega fer með músina yfir myndina fremst í línunni og þá myndast „kross“ þar sem músabendillinn er staðsettur, dregur línuna til og sleppir henni þar sem þú vilt að hún sé í röðinni.

Aðgerðarhnappar í „Allar skrár“ flipanum fyrir yfirverkefni

Þeir sem nýta sér yfirverkefni sjá nú að við höfum bætt við aðgerðarhnöppum sem flýtileið fyrir notendur þegar þeir eru að vinna í flipanum „Allar skrá“.

Þeir sem óska eftir að geta haft yfirverkefni geta haft samband við okkur á þjónustuborðinu, coredata@coredata.is og við stillum þetta fyrir ykkur.

Brauðmylsluslóð

Í yfirverkefnum er nú hægt að sjá “brauðmylsluslóð” eins og fyrir venjuleg verkefni (undirverkefni).

Númer verkefnis / máls

Nú hefur verið settur svigi utanum númer verkefnis til þess að hjálpa notendum við að aðgreina betur númerið í slóð verkefnisins. Það er algengt að ártöl og dagsetningar séu í heitum verkefna viðskiptavina okkar. Notendur hafa beðið um betri aðgreiningu þarna og nú höfum við brugðist við með því að draga fram númerið á þennan hátt.

Skjalalykill kominn í afmörkun 

Möguleikinn við að bæta við upplýsingum um skjalalykil í afmörkun fyrir skjöl hefur nú verið aðlöguð – bestu þakkir sendum við notendahópnum okkar sem bennti á að þetta væri fýsilegur kostur fyrir notendur.

Þeir sem óska eftir að fá þessa breytingu geta haft samband við þjónustuborðið, coredata@coredata.is og við stillum afmörkunina.

Enn meiri sveigjanleiki í framsetningu málsnúmera / verkefnanúmera

Búið er að bæta möguleika á sveigjanlegri framsetningu máls- / verkefnanúmera.

Nú er hægt að setja saman málsnúmer/verkefnanúmer á nokkra vegu sem er samsettur úr mismunandi framsetningu einnig er hægt að raða númerinu saman á þá vegu sem hentar hverjum og einum. Sjá til dæmis:

  • 2021-12-hlaupandi teljari (byrjar 1. hvers mánaðar)

  • 2021 – hlaupandi teljari (byrjar í upphafi árs)

  • Teljari/ár

Þeir sem óska eftir að breyta framsetningu á málsnúmerum / verkefnanúmerum geta haft samband við þjónustuborð, coredata@coredata.is og við förum yfir hvaða möguleikar eru í boði.

CoreAdmin – utanumhald og skráning þjónustureikninga hjá notendum

Útbúin er möguleiki á skráningu og utanumhaldi á notendum í kerfisstjóraaðgangi CoreData (CoreAdmin). Nú er hægt að skrá þjónustureikninga í viðmótinu og viðhalda lykilorðum (e.secrets) á þeim. Þetta er mjög takmarkaður aðgangur fyrir umsjónamenn kerfisins og nauðsynlegur m.a. til að tryggja rétta notkun og reglulegar breytingar á lykilorðum fyrir slíka þjónustureikninga. Það er góð venja í öryggismálum að breyta þessum lykilorðum reglulega.

Bætt afköst, minni lagfæingar og API viðbætur

Síðast en ekki síst eru það allar þær minni lagfæringar sem þarf alltaf að taka með inn í allar útgáfur þar sem við erum að bæta afköst og gæði kerfisins auk þess að bæta við möguleikum í notkun á API lagi CoreData. Viðskiptavinir okkar eru í enn meira mæli að samþætta lausnir sínar við CoreData þannig að skjöl séu varðveitt á réttum stöðum. Þá skiptir miklu máli að þessar aðgerðir séu einfaldar og auðvelt að nota. Það sparar ykkur tíma í innleiðingu, samþættingu og viðhaldi á heildar tækniumhverfi ykkar.

Ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar, endilega sendið okkur línu á þjónustuborðið, coredata@coredata.is

JavaScript errors detected

Please note, these errors can depend on your browser setup.

If this problem persists, please contact our support.