Útgáfudagur: 29. september 2026
Nýjar útgáfur CoreData Desktop 2026.4.2 og Outlook Addin 2026.3.1 eru komnar á uppsetningarsíðuna okkar: https://www.coredata.is/um-okkur/uppsetning
Við hvetjum alla viðskiptavini CoreData til að uppfæra þessi forrit þegar nýjar útgáfur koma út.
Í þessum útgáfum er lögð áhersla á öryggi gagna við vistun, stöðugleika og einfaldari uppsetningu og rekstur fyrir kerfisstjóra.
CoreData Desktop 2026.4.2
Helstu nýjungar
-
Einfaldari uppfærslur – Uppsetningarforritið greinir nú hvort drifrekill sýndardrifsins hafi breyst. Ef hann er óbreyttur er hann ekki fjarlægður og settur upp aftur við uppfærslu.
-
Hljóðlát uppsetning og fjarlæging (quiet mode) – Kerfisstjórar geta sett upp og fjarlægt CoreData Desktop án notendaviðmóts, t.d. við miðlæga dreifingu.
-
Hreinsunarskrifta – Ný skrifta fyrir kerfisstjóra til að hreinsa eldri uppsetningu.
-
Tæknilegar endurbætur – Undirritun hugbúnaðar fer nú fram í Azure og eldra kóðasafn (PostSharp) hefur verið fjarlægt.
-
Breytt sjálfgefið netfang fyrir sendingu atvikaskráa (log) í CoreData Desktop og Outlook Addin.
Lagfærðar villur
-
Lagað að skjal sem hafði verið eytt gat vistast staðbundið á tölvu notanda.
-
Lagað að vistun skjals gat lent í endalausri lykkju þegar notandi hafði eingöngu lesaðgang að verkefni.
Outlook Addin 2026.3.1
Helstu nýjungar
-
Stillingum læst þegar CoreData Desktop er til staðar – Þegar CoreData Desktop er uppsett og í keyrslu er ekki hægt að breyta stillingum í Outlook Addin. Stillingum er þá stýrt úr CoreData Desktop svo forritin séu alltaf samræmd.
-
Bætt atvikaskráning við vistun tölvupósta í CoreData, sem auðveldar greiningu og villuleit.
-
Tæknilegar endurbætur – Undirritun hugbúnaðar fer nú fram í Azure, byggingarferlið er ekki lengur háð Office-íhlutum sem skráðir eru á vélinni og eldra kóðasafn (PostSharp) hefur verið fjarlægt.
-
Breytt sjálfgefið netfang fyrir sendingu atvikaskráa (log).
Uppsetningarskrár
-
coredata-outlook-x64-26.3.1.0.msi (64-bita Office)
Fyrir kerfisstjóra
-
Ný stilling MaxUploadRetries (sjálfgefið 5) stýrir hámarksfjölda endurtekinna tilrauna við upphleðslu þegar netþjónn skilar villu 403, 429 eða 500.
-
Við villur 401, 408, 502, 503 og 504, og þegar ekki næst samband við netþjón, er áfram reynt aftur án takmarkana.
-
Uppsetningarforrit CoreData Desktop skráir nú útgáfu drifrekils í registry (HKLM) til að greina hvort uppfæra þurfi drifrekil.
-
Stuðningur við hljóðláta uppsetningu og fjarlægingu (quiet mode). Færibreytur og PowerShell-dæmi má finna á síðunni CoreData Desktop – uppsetning fyrir kerfisstjóra.
Gagnlegir tenglar
-
Uppsetningarskrár: https://www.coredata.is/um-okkur/uppsetning
-
Notendaleiðbeiningar fyrir CoreData Desktop: https://docs.wise.is/cored/8-coredata-desktop-z-drif-coredata-syndardrif
-
Leiðbeiningar fyrir kerfisstjóra (miðlæg uppsetning og dreifing): CoreData Desktop – uppsetning fyrir kerfisstjóra
Endilega hafið samband ef við getum aðstoðað eða ef þið hafið ábendingar. Sími: 550 3900 · Netfang: coredata@wise.is