2026.2 - CoreData útgáfulýsing

CoreData 2026.2 — Það sem er nýtt

Útgáfudagur: 29. september 2026

CoreData 2026.2 er útgáfa sem leggur áherslu á öryggi, stöðugleika og afköst. Uppfærslur á undirliggjandi hugbúnaði og öryggisuppfærslur — en auk þess eru lagfæringar sem notendur verða varir við og endurbætur á hraða.

Uppfærslan er að mestu leyti án virknibreytinga fyrir notendur.

Lagfærðar villur

  • Textaritill í fjöldabreytingum: Lagfærð villa sem gat valdið því að lýsingarreitur (nýi textaritillinn) birtist ekki rétt þegar margar færslur voru uppfærðar í einu.

  • Fasteignir: Lagfærð villa sem kom upp við forskoðun á fasteignum.

Afköst og hraði

  • Hraðari vinnsla við skráningu og leit í efni skjala (indexing), sérstaklega í stórum skjalasöfnum.

  • Endurbættur gagnagrunnsvísir fyrir ábyrga notendur skjala, sem flýtir fyrir leit og síun eftir ábyrgðaraðila.

Öryggi og tækniumhverfi

  • Fyrsti áfangi í uppfærslu kerfisins yfir í Python 3.12, nýrri útgáfu forritunarmálsins sem CoreData byggir á.

  • Endurbætur á sjálfvirkum prófunum og útgáfuferli sem styrkja gæði komandi útgáfa.

Hafðu samband

Endilega ekki hika við að hafa samband við okkur ef við getum eitthvað aðstoðað eða ef þú hefur ábendingar um hvernig bæta má virkni CoreData.

Sími: 550 3900 Netfang: coredata@wise.is