CoreData 2026.3 — Það sem er nýtt
Útgáfudagur: 4. nóvember 2026
CoreData 2026.3 færir notendum nýja og þægilegri leið til að breyta lýsingum, lagfæringu í verkliðum og stóra uppfærslu á undirliggjandi tækniumhverfi sem styrkir öryggi og stöðugleika kerfisins til framtíðar.
Nýjungar
-
Breyta lýsingu beint á yfirlitssíðu: Nú er hægt að breyta lýsingu beint á yfirlitssíðu verkefna, skráa, viðskiptavina og fasteigna, án þess að opna sérstakt breytingaform. Þegar músinni er rennt yfir lýsinguna birtist blýantstákn; smelltu á lýsinguna til að opna textaritilinn og veldu Vista til að vista breytingarnar. Ef lýsing er tóm birtist textinn „Bæta við lýsingu“.
-
Ef ýtt er á Esc eða smellt utan ritilsins lokast hann tímabundið en óvistaðar breytingar haldast þar til smellt er aftur á lýsinguna. Hætta við lokar ritlinum án þess að vista.
-
Hlekkir og netföng í lýsingu virka áfram eins og áður (opnast í nýjum flipa / póstforriti).
-
Aðeins notendur með skrifheimild geta breytt lýsingu. Ef skjal er læst eða deilt birtist lýsingin eingöngu til lesturs.
-
Virknin er hluti af nýja textaritlinum og er aðgengileg þar sem hann hefur verið virkjaður.
-
Lagfærðar villur
-
Flokkar í verkliðum: Lagfærð villa sem olli villuboðum þegar nýr flokkur var stofnaður úr verkliðahluta á yfirlitssíðu verkefnis, og þurfti þá að endurhlaða síðuna til að sjá hann. Nú birtist staðfesting: „Flokkur var stofnaður. Þú getur séð hann á flipanum Verkliðir.“
Breytingar sem notendur geta orðið varir við
-
Forskoðun tölvupósts: Öryggissíun í forskoðun tölvupósts hefur verið hert. Innbyggð litasnið, letur og bil úr upprunalegum pósti birtast því ekki lengur í forskoðun, og myndir sem eru felldar beint inn í póstinn (sjaldgæft) birtast ekki. Innihald póstsins er óbreytt.
Öryggi og tækniumhverfi
-
Uppfærður listi yfir traust rótarskilríki (certifi) vegna öryggisatviks hjá skilríkjaútgefandanum eMudhra / emSign, svo CoreData treysti ekki lengur skilríkjum sem tengjast atvikinu.
Hafðu samband
Endilega ekki hika við að hafa samband við okkur ef við getum eitthvað aðstoðað eða ef þú hefur ábendingar um hvernig bæta má virkni CoreData.
Sími: 550 3900 Netfang: coredata@wise.is