Greiðslubækur
Hér geta notendur stofnað sínar eigin greiðslubækur. Í stærri fyrirtækjum og stofnunum getur verið nauðsynlegt að notendur hafi aðeins sýn á þær greiðslur sem þeir mynda. Þegar stofnuð er greiðslubók er hægt að skrá á hana hvaða notanda hún tilheyrir. Þetta verður til þess að allar greiðslur sem viðkomandi notandi myndar merkjast sjálfkrafa sjálfgefinni greiðslubók hans. Einnig getur sami notandi aðeins séð greiðslur sem eru í hans greiðslubókum í greiðsluyfirlitinu. Reiturinn Sjálfgefin bók segir til um hvaða greiðslubók er sjálfkrafa valin fyrir viðkomandi notanda, bæði þegar hann stofnar nýja greiðslu eða opnar greiðsluyfirlit. Ef greiðslubækur eru í notkun þarf að haka við Nota greiðslubækur í Bankasamskiptagrunni:
![](../__attachments/143425824/worddav9c7d895960f43ef22268b94d3dceb658.png%3Fversion=1&modificationDate=1662400428228&cacheVersion=1&api=v2&width=604?inst-v=c4f894b0-bb17-4c44-a527-9a752120de39)
Greiðslubækur er þá hægt að sækja út frá Bankasamskiptagrunni:
![](../__attachments/143425824/image-20230130-172810.png?inst-v=c4f894b0-bb17-4c44-a527-9a752120de39)
og stofna þar greiðslubækur eftir þörfum:
![](../__attachments/143425824/image-20230130-172822.png?inst-v=c4f894b0-bb17-4c44-a527-9a752120de39)
Á spjaldi greiðslunnar má þá sjá hvaða greiðslubók viðkomandi greiðsla tilheyrir:
![](../__attachments/143425824/image-20230130-172841.png?inst-v=c4f894b0-bb17-4c44-a527-9a752120de39)
Einnig er hægt að velja filter á greiðslubók og setja þá afmörkun á sýn greiðslubóka eftir notendum.