Innflutningskerfi Wise
Wise gefur út handbók fyrir öll þau sérkerfi sem fyrirtækið hefur þróað. Handbækurnar taka fyrir virkni kerfanna og er því ekki um kennslubók að ræða. Farið er í gegnum aðalvalmynd kerfisins þar sem útskýrt er hvaða upplýsingar þar eru geymdar og hvaða virkni er í boði hverju sinni.
Wise notar leyfisskrá fyrir sín kerfi. Allir notendur sem nota kerfið þurfa líka að hafa heimildasamstæðuna WISELCS BASIC á sér.
Þjónustuborð og frekari aðstoð
Þjónustuborðið okkar er opið alla virka daga frá kl. 09 – 17. Sérfræðingar okkar sitja þar fyrir svörum og aðstoða þig með ánægju.
Hafðu samband ef við getum aðstoðað þig í síma 545 3232, eða með því að stofna beiðni í þjónstukerfi Wise.
Almennt um Wise
Wise er stærsti og einn öflugasti söluaðili á Microsoft Dynamics 365 Business Central bókhalds- og viðskiptahugbúnaði á Íslandi og hefur sérhæft sig í lausnum á sviði fjármála, verslunar, sérfræðiþjónustu, sveitarfélaga, sjávarútvegs og flutninga. Wise býður mikið úrval hugbúnaðarlausna sem byggir á þeirri hugmyndafræði að gera fyrirtækjum kleift að taka góðar og vel ígrundaðar viðskiptaákvarðanir, byggðar á öruggum upplýsingum úr viðskipta- og birgðakerfum fyrirtækisins. Innan Wise starfar öflugur hópur sérfræðinga með áralanga reynslu í Microsoft lausnum. Þar fyrir utan hefur fyrirtækið sjálft hannað mikinn fjölda lausna fyrir íslenskan markað og jafnframt náð ágætis árangri í útflutningi á lausnum sínum og þjónustu.
Fyrirtækið leggur sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu.
Á flóknum úrlausnarefnum er gjarnan hægt að finna einfalda lausn. Það er okkar markmið.