Margir vörureikningar út frá sömu innkaupapöntun
Afrita fyrsta vörureikninginn: Ný Tollskýrsla – Afrita innkaupalínur. Innkaupapöntun er valin og í afstemmingarglugga er magn og upphæð stemmt af.
Afrita annan vörureikning: Valið er aftur - Afrita innkaupalínur. Ef sama innkaupapöntun er valin (og það hefur verið sett inn reikn.nr. lánardrottins á hana) þá kemur upp melding:
Ef um er að ræða annan innkaupareikning, þá er sett inn nýtt vörureikningsnúmer í þennan glugga og ýtt á Enter, þá koma inn línurnar sem eftir urðu í fyrri afritun. Ef um er að ræða fleiri línur (úr öðrum pöntunum jafnvel) á sama reikningi má ýta á Esc hér – eða Nei og heldur þá notandi áfram að vinna í sama reikningi.
Ef einn reikningur frá lánardrottni er í tveimur innkaupapöntunum frá sama lánardrottni má slá inn sama númerið aftur og ýta á Enter.
Í afstemmingarglugga eru magn og upphæðir stemmdar af eins og áður.
Vörureikningar: Hægt er að sjá yfirlit yfir alla tengda vörureikninga með því að kafa ofan í fjölda-reitinn í upplýsingaglugganum. Þar má einnig breyta eftir á ef þörf krefur.